Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1985, Page 30
DV. LAUGARDAGUR15. JUNl 1985.
* 30
AÐALFUNDUR
Almenns lífeyrissjóðs iðnaðarmanna verður haldinn mánudaginn 1. júlí næstkomandi kl. 16ífundarsal Lands-
sambands iðnaðarmanna, Hallveigarstíg 1 Reykjavík.
Dagskrá: 1. Breytingar á reglugerð sjóðsins. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. 3. Önnur mál. Stjórnin.
Áhaldahús
Hafnarfjarðar
Vélaverkstæði
Bifvélavirki eða vélvirki óskast til starfa við almennar við-
gerðir og smíðar. Upplýsingar veitir verkstjóri.
Bæjarverkfræðingur.
LIAg&TÆIT
VEm i
Viðskiptavinir Heklu.
Við bendum á hagstætt
verð á vatnsdælum
og bensíndælum.
Komið og gerið góð kaup.
Verð kr
890
2.690
380
Verð kr.:
Vatnsdælur í:
Golf 1100 cm3-
Galant 1600 ’77
Lancer1600 '17
Range Rover
Mini
Bensíndælur í:
VW 1200 og 1300 ...... 750
Golf 1100 cm3 ’84 .... 750
Land Rover............ 890
VHDURKENND VARA
MEÐ ÁBYRGÐ
SAMA VERÐ
UM LANDALLT!
HEKLA
J Laugavegi 170 -172 Sír
HF
Sími 21240
Meiraum
málfarsmun
I þessum og næsta pistli mun ég
greina frá tveimur könnunum sem
geröar voru í Armúlaskóla haustið
1984. Tiidrög þess voru að ég kenndi
málfræðiáfanga einn sem er dáUtið
frjálslegur hvað varðar námsefni.
Yfirleitt ákveður kennari í samráöi við
nemendur hvað skuU tekiö til með-
ferðar en efnið verður vitaskuld að
tengjast islenskrí málfræði í viðustum
skilningi þess orðs.
Umrætt haust voru í hópnum
nemendur sem höfðu mikinn áhuga á
máUýskum. Það varð úr aö athuganir
á íslenskum mállýskum urðu aðalefni
áfangans.
Aðalverkefni nemendanna voru mál-
iýskukannanir. Vitaskuld urðu þær
ekki yfirgripsmiklar. Þær einskorð-
uðust viö athuganir á málfari nemenda
skólans sem eru á aldrínum 16—20 ára.
Hér verður greint frá helstu niður-
stöðum tveggja athugananna.
Orðaforði
kynjanna
Fyrri athugunin beindist að því hvort
munur væri á orðaforða karla og kvenna í
skótanum.
Könnunin fór þannig fram að búinn var
til langur orðalisti Á listanum vcru orð
sem algeng eru í máli unglinga. Um það
bil 36 nemendur voru látnir merkja við
þau orð sem þeir notuðu í daglegu tali.
Þessir 36 nemendur voru vitaskuld jafn-
margir af hvoru kyni.
Síöan var búinn til annar listl Þar voru
þau orð úr fyrri könnuninni sem mestan
mun sýndu milli kynja. Tilgangurinn var
að prófa þau enn f rekar.
Seinni listinn var síðan lagður fyrir 50
nemendur, jafnmarga af hvoru kynL
Af rúmlega 100 oröum sýndu 25 mun,
sum umtalsverðan.
Itrekað skal að orðin voru valin úr
orðaforða unglinga. Sérstaka athygli
mína vakti það hve litla útbreiðslu
hvert orð virtist hafa. Það taídist til
hreinna undantekninga ef orð naut
meira en 50% útbreiöslu. Það finnst
mér mæla dalítið á móti þeirri
kenningu sem heyrist oft að tískuorð
íslensk
tunga 18
Eiríkur
Brynjólfsson
grípi um sig meðal unglinga og nái
verulegri útbreiðslu. Þó kann það aö
vera að tískusveiflur séu örari en svo
að þær náist i svona könnun. Þessi orð
höfðu umtalsverða útbreiðslu (innan
sviga er fjöldi af 36 svarendum) :meiri-
háttar (24), hrikalegt (24), fíla (20),
sætur (26), glataður (27), vera á
skallanum (26). öll þessi orð eru notuð
jafnmikið af hvoru kyni.
A eftirfarandi má sjá þau orð sem
sýndu mestan mun eftir kynjum.
Fjöldi svarenda var 50, jafnt af hvoru
kyni.
kvk. kk.
sjúklegt 25 13
dama 9 19
antípat 23 9
beibifeis 5 13
blondína 1 6
deli 4 10
nagli 0 10
naggur 1 8
sjarmur 18 7
boddí 4 14
lummó 12 3
Á þessum litla lista má sjá að til eru
orð sem sýna greinilega mismunandi
útbreiöslu eftir kynjum. Nú kann sum-
um aö finnast þetta sjálfsagöir hlutir.
Og reyndar er þetta eðlilegt. Hins veg-
ar gleyma menn gjarnan að sjálfsagða
hluti þarf að rannsaka til aö fá óyggj-
andiniðurstööur.
Þessi könnun er vitaskuld langt frá
því að vera gallalaus. Niöurstööur
hennar benda þó til þess aö mismunur
sé á oröaforða karla og kvenna. En
marga fyrirvara verður óumflýjan-
lega að gera. I fyrsta lagi var könnunin
gerð meðal framhaldsskólanemenda. I
öðru lagi voru allir svarendur innan
tvítugs. I þriðja lagi má eflaust greina
ýmsa galla í aðferöunum við
könnunina.
Hins vegar þykir mér rétt að benda
kennurum á að hér er tilvalin leið til að
gera kennsluna skemmtilega og afla
um leið upplýsinga um ástkæra, yl-
hýra málið.
Að gefnu tílefni
Sumum finnst ef til vin skólatíma illa
varið í eltingarleik við slangur og
óíslenskuleg orö eins og þaö er kaQaö.
Skoðun mín er hins vegar eindregið sú
aö rétt sé aö rannsaka íslenskt mál og
þessi orðaforði er óumdeilanlega hluti af
oröaforða íslenskunnar. Hvort þessi orð
eru æskileg er hins vegar allt annar hand-
leggur. Um það eru vitaskuld skiptar
skoðanir. Og enn hæpnara er það hvort við
ráðum yfirleitt miklu um orðaforða
unglinga eöa um þróun málsins
yfirleitt.
Austur í Rússlandi eru til svo dónaleg
orð að þau komast ekki á orðabækur og
fólk getur fengið sektir fyrir að viðhafa
þau á almannafæri. Mér dettur þetta oft í
hug þegar fólk er að amast við orðaforða
ýmissahópa.
Með þessari aðferð mætti líka hugsa
sér aö leysa atvinnumál islensku-
fræðinga og stofna einhvers konar
mállögreglu og sekta menn fyrir að
segja til dæmis mér langar i stað mig
langar.
Reyndar mæli ég ekki meö þessari
leið.
SUMARNÁMSKEIÐ í SAUMASKAP FYRIR BYRJENDUR OG LENGRA KOMNA Ásgerður Ósk Júlíusdóttir klæðskeri, Brautarholti 18. Upplýsingar í síma 74965.
St. Jósefsspítali
Landakoti
Svæfingardeild:
Lausar eru eftirfarandi stöður: Hjúkrunarfræðinga með
sérnám, sjúkraliða eða starfsstúlku (dagvinna). Umsóknir
ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma
19600frá kl. 11 —12 og 13—14alla virka daga.
Reykjavík 13. júni 1985.
Skrifstofa hjúkrunarforstjðra.