Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1985, Blaðsíða 10
10
Útlönd
Útlönd
Útlönd
DV. MÁNUDAGUR 7. OKTOBER1985.
Utlönd
Mæðurnar á Placa dal Mayo með myndir barna sinna og barnabarna í mótmælagöngu ó tima skítuga stríðsins. Sum barnanna eru nú fundin
llL \\\
rr 1 ]
LL i 1 /
///
Umsjón: Þórir Guðmundsson og Guðmundur Pétursson
Börn skítuga stríðsins
farin að koma í leitirnar
Elizabeth Silvana Silva, 10 ára göm-
ul, frétti í þessum mánuöi aö hún væri
ekki sú sem hún hélt aö hún væri. Hún
komst aö því aö raunverulegt nafn
hennar væri Maria Eugenica Gatica og
aö lögreglumaðurinn, sem hún hélt aö
væri faðir sinn, var í raun alls ekki
skyldur henni.
Fyrir tugi argentínskra barna hafa
endalok „skítuga stríösins”, sem fyrr-
um valdhafar hersins háöu gegn
vinstrisinnuðum skæruliöum, þýtt nýtt
hf — ný nöfn, nýjar fjölskyldur og nýja
sjálfsvitund.
Þau eru þau heppnu. Þeim hefur
verið komiö til sinna raunverulegu
fjölskyldna. En nærri 200 börn týndust
á tímum skítuga stríösins þegar herinn
fór meö völd frá 1976 tii 1983.
Stríðsgóss
Mannréttindahópurinn Ömmurnar á
Plaza del Mayo segir að hinna barn-
anna sé allra saknaö. Ömmurnar segja
aö sum þeirra kunni aö vera látin, en
önnur hafi verið ættleidd ólöglega eftir
aö foreldrar þeirra voru látnir
„hverfa”.
„Þau voru tekin sem stríösgóss,”
segir Maria de Ignace, meðlimur
Ömmusamtakanna. „Eftir einhvern
tíma fór fósturforeldrunum Uklega aö
þykja vænt um þau, svona eins og
manni þykir vænt um gæludýr, en þaö
var ekki ást.”
Flest barnanna, sem hurfu, voru
börn sem féllu í hendur öryggissveita
þegar mæður þeirra voru teknar vegna
gruns um landráö. Önnur fæddust í
fangelsi.
„Þaö er mögulegt aö sum börnin hafi
veriö ættleidd af sömu mönnum og
pyntuðu mæöur þeirra,” sagöi de Ign-
ace.
Skaðlegt uppeldi
I þessum mánuöi voru þrjú börn af-
hent sínum raunverulegu fjölskyldum
eftir aö ömmurnar fóru í mál fyrir
þeirra hönd. Meöal þessara þriggja
barna var María.
Mannréttindasamtökin, sem eiga
rætur sínar aö rekja til stööugra mót-
mælagangna eldri kvenna í Plaza del
Mayo torginu, voru stofnuö fyrir átta
árum, sérstaklega til aö finna börn
sem var saknaö. Eitt barnanna
þriggja bjó hjá eftírlýstum öfgasinn-
uöum hægri manni.
Ömmurnar segja aö uppe'.diö, sem
útsendarar herforingjastjórnanna
geta veitt börnunum, sé þeim skaölegt.
„Öll börnin, sem viö höfum fundið,
hafa átt viö sams konar persónuveikl-
un og lærdómserfiðleika aö etja,” segir
de Ignace.
Sálarstríð
Sálfræöingar vara viö því að María
og önnur börn í hennar stööu kunni aö
veröa fyrir miklu áfalli viö þessa
breytingu á hfi þeirra. Sjálfsvitund
þeirra bíöi mikinn hnekki.
„Maöur veröur að muna aö þessi
börn hafa myndað náiö samband viö
ræningja sína þó aö þeim hafi verið
rænt,” segir barnasálfræðingurinn
Arnaldo Rascovsky. „Þaö er barnið
sem verður fyrir mestum sálarkvölun-
um.”
Hann segir aö börn í þessari stööu
séu líkleg til að leggjast í þunglyndi,
færö frá foreldrunum sem þau þekkja,
því þaö væri eins og verið væri að gera
þau aö munaðarleysingjum.
Ömmurnar skilja þetta og gera allt
sem í þeirra valdi stendur til aö aölaga
börnin hinu nýja umhverfi þeirra. Þær
fá sálfræðinga til aö hjálpa til viö það.
„Sannleikurinn er sársaukafullur en
hann læknar allt,” segir de Ignace.
„Þaö er eins og aö skera burt kýli.”
Eljusamt rannsóknarstarf
De Ignace segir aö fólk, sem ætt-
leiddi börn í góöri trú á meðan á skít-
uga stríöinu stóö, komi nú til Ömmu-
samtakanna til að athuga hvort þaö sé
nokkuð meö barn sem á fjölskyldur á
lífi.
Samtökin treysta aöallega á elju-
samt rannsóknarstarf til aö finna
börnin. Þegar rannsóknarfólk er sann-
fært um að það hafi fundið týnt barn
biður þaö dómstóla um aö fyrirskipa
erföarannsóknir, sem þaö segir aö séu
90 prósent áreiðanlegar til aö kanna
skyldleika.
Vegna þess að foreldrarnir eru
venjulega meöal þeirra 90.000 sem
hurfu í skítuga stríöinu reynist venju-
lega nauösynlegt aö bera erfðaeigin-
leika barnanna saman viö erfðaeigin-
leika ömmu barnanna og afa.
Hingaö til hefur náöst aö koma 12
börnum til fjölskyldna þeirra. Fleiri
mál eru fyrir dómstólunum.
Lokaathugasemd: María var hepp-
in. Móöir hennar liföi fangelsunina af
og náöi aö sameina fjölskyldu sína eft-
ir skítuga stríöiö. María á núna tvo
bræður og eina systur í nýju f jölskyld-
unni sinni.
Daufur kosningaáhugi
í Belgíu að þessu sinni
Tungumélaerjur Flandrara (sem tala flsemsku) og Vallóna (sem tala
frönsku) hafa jafnan satt mestan svip é pólitikina í Belgiu. Hér eru
Flandrarar afl mótmæla þvi sem þeim þykir gengifl é hlut flæmskumœl-
andi.
Þegar frönskumælandi sósíalistar
vildu útmála fyrir kjósendum ósam-
lyndiö mihi frönskumælandi og
flæmskutalandi íbúahluta Belgíu
réöu þeir sér tvo fjölbragðaglímu-
kappa.
Flæmski þungavigtarkappinn
traökaöi á og barði keppinaut sinn
frá Vallóníu, á meöan dómarinn leit
undan. Þulurinn, sem útskýrði gang
glímunnar, lét þau orö falla í leiðinni
að Vallónía þyrfti nú á öflugum
sósíalistaflokki aö halda til þess aö
rétta hlut sinn.
Þetta þætti einhverjum skrítið
kosningasjónvarp hér á landi, en
þessi stutti auglýsingar- eöa áróöurs-
þáttur áréttar hversu sérstætt
stjórnmálalífið í Belgíu er. Og þver-
sprungan í gegnum allt flokkakerfi
eru hinar aldagömlu ýfingar Flandr-
ara, sem tala flæmsku, og Vallóna,
sem tala frönsku.
Annars hefur undirbúningurinn
fyrir kosningarnar núna 13. október í
Belgíu verið aö því leyti ólíkur fyrri
kosningabaráttu, aö tungumálaerj-
unum hefur minna veriö haldiö á
lofti. Þaö er helst sósíalistaflokkur
Vallóna sem reynt hefur aö slá á þá
strengi í kosningabaráttunni.
En þessi eilífa gjá milli íbúanna
leiöir af sér að sérhver pólitísk fylk-
ing er klofin í tvo flokka eftir tungu-
málalínunni. Þaö á jafnt viö um hina
rótgrónu stærri flokkana eins og
sósíalista, frjálslynda og kristilega
demókrata, eða hina nýrri eins og
hina umhverfissinnuðu græningja.
Frambjóöendur sama flokks boða oft
sína stefnuna hvor, eftir því hvort
þeir beina máli sínu til Flandrara í
norðurhluta landsins, sem er efna-
hagslega betur á vegi staddur, eöa til
Vallóna í suöurhlutanum þar sem
námarekstur og stóriðja hefur veriö
á niöurleiö.
Belgía er fræg fyrir langar stjórn-
arkreppur eftir hverjar kosningar,
enda sambræðingurinn erfiöur þar
sem flokkarnir eru æði margir. I
höfuöborginni Brussel eru 25 fram-
boðsflokkar, en þar er töluð bæöi
flæmska og franska. Rétt eins og
fjölmiðlar hér birta árlega leiðbein-
ingar fyrir skattframtal þurfa blöðin
í Brussel leiðbeiningar til kjósenda
um hvernig þeir geta kosið eins og
hugur þeirra stendur til, án þess að
eiga á hættu að ógilda kjörseðilinn.
I þessu flokkageri öllu kennir
margra grasa og sumir smáflokk-
arnir enda til orðnir af sérmörkuðu
einu stefnumáli. Einn hefur að hjart-
ans máli öryggi á vegum og í umferð-
inni, annar mannúðarmál og svo
framvegis. Þeir öfundast út í stærri
flokkana fyrir að hafa meira fé úr að
spila í kosningabaráttunni. Stóru
flokkarnir eru sakaöir um aö geta
einokað kosningaspjöldin í upplím-
ingarstríði framboðsaðila. Þeir eru
jafnframt sakaöir um að auka hættu
í umferöinni á vegunum meö því að
setja upp stór áróðurspjöld, sem
byrgja fyrir útsýni og jafnvel
skyggja á viðvörunarskilti eöa um-
feröarmerki. Og smærri flokkarnir
hafa ekki heldur fjárhagslegt bol-
magn til þess aö kaupa sér auglýs-
ingapláss í blööunum í neinum líkum
mæli og stóru flokkarnir.
Þessi aragrúi flokka kann aö fjölga
eitthvað valkostum kjósenda en þeir
sem standa fyrir skoðanakönnunum
fá af því vonandi höfuðverk.
Kjörsókn í Belgíu hefur jafnan
veriö mikil. Sjaldan undir 95%, enda
varðar þaö eins til þriggja franka
sekt (um 22 krónur íslenskar) aö
nota ekki atkvæðisrétt sinn. Sam-
kvæmt lögum frá 1985 var gert ráð
fyrir þriggja franka sekt hámark, en
hún er verðtryggð og er því komin
upp í um 1300 krónur í dag. En það
þyngjast viöurlögin ef menn marg-
endurtaka það að skila ekki atkvæði.
Við fjórða brot (fimmtán árum
héðan frá) má svipta viðkomandi
kosningarétti í tíu ár og meina hon-
um að gegna opinberu starfi eða
þiggja opinberar viðurkenningar.
Nýjustu skoðanakannanir gefa
helst til kynna að núverandi sam-
steypustjórn f jögurra hægri- og mið-
flokka muni halda velli.þó með eitt-
hvaö minna fylgi. En það er bannaö
aö birta niðurstöður nýrra skoöana-
kannana síðustu þrjár vikurnar fyrir
kosningar.
Aðalkosningamálin hafa verið at-
vinnuleysið, sem er mikiö, og strang-
ar sparnaðarráðstafanir til höfuðs
verðbólgunni.