Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985. 3 14 tommu skjár, 16 minnisrásir, þar af e fyrir video og tölvur, þráðlaus íjarstýring, 14 tommu skjár, 16 rásir, þar af ein fyrir video og tölvur, þráðlaiis íjarstýring, Brú á Ölf usárós milli Þorlákshaf nar og Eyrarbakka: Framkvæmdir á næsta ári Kortið sýnir veginn fyrirhugaða milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka og hvar brúin kemur yfir Ölfusárós. Mikil ölvun í fyrrinótt: Allar fanga- geymslurfullar Mikil ölvun var í höfuðborginni að- faranótt sunnudags. Að sögn lögregl- unnar fylltust allar fangageymslur á tímabili, meðan hinir þorstlátu voru látnir sofa ur sér. x Mikið annríki var hjá lögreglunni vegna veðurhamsins sem geisaði í fyrrinótt. Mikið var um að jámplötur fykju, svo og grindverk, ljósastaurar og jafnvel bílar. I austurbænum fuku vinnupallar af nýbyggingu og í Árbæ sviptist gluggi úríbúð, íheilulagi. Að sögn lögreglunnar var nokkuð um útköll vegna þessa. Þó var fokið miklu minna en í óveðrinu aðfaranótt föstudagsins síðastliðins, „enda fauk þá allt sem fokið gat”, eins og einn lög- reglumaöur komst að orði. -JSS Hafnarfjörður: Þrír slösuðust Þrír slösuöust í Hafnarfiröi af völdum óveðursins sem gengið hefur yfir undanfarna daga. Á föstudaginn fauk bíll á ljósastaur á móts við Bitabæ. Hlaut ökumaður minni háttar meiðsl. Þá misstu tvær konur fótanna í vindhviðum og hlutu slæma byltu. Þær beinbrotnuðu báöar. Allmikiö annríki var hjá Hafnar- fjarðarlögreglu aöfaranótt sunnu- dagsins vegna óveðursins. Þakplötur fuku víöa svo og annað lauslegt. Tjón varð þó ekki umtalsvert og engin slys á mönnum að undanskildum hinum ofangreindu. Var Hjálparsveit skáta fengin til að liðsinna fólki sem lenti í vandræðum vegna óveðursins. -JSS Trilla brotn- aðií spón Trilla brotnaði í spón í höfninni í Hafnarfirði í fyrrinótt. Er talið að hún hafi lamist utan í bryggjukantinn í veðurofsanum. Það var um níuleytið á sunnudags- morgun sem lögreglan í Hafnarfirði tók eftir gúmbát á reki í höfninni. Þegar að var gáð kom í ljós aö hann var úr 3—4 tonna trillu, Kristínu Hf— 11, sem hafði legið í höfninni. Hafði trillan mölbrotnaö, eöa „leyst upp í frumeindir sínar”, eins og lögreglu- maður orðaði það. Var brak úr henni á reki í höfninni þegar að var komið. —JSS Framkvæmdir við veg og brú milli Þorlákshafnar og Eyrarbakka yfir Ölfusárós hefjast á næsta ári, sam- kvæmt vegaáætlun. Gert er ráð fyrir að 18 milljónum króna verði varið á árinu 1986 til að leggja veg frá Eyr- arbakka að Oseyrarnesi. Gert er ráð fyrir að meiri kraftur verði settur í framkvæmdir á árinu 1987. Það ár er áætlaö að verja 60 milljónum króna til verksins og sömu fjárhæð á árinu 1988. Þá mun vanta enn töluvert til að ljúka brúnni því að samkvæmt framreiknaðri kostnaöaráætlun verður heildar- kostnaður 230 milljónir króna. Veg- arlagning er talin kosta 70 milljónir króna en brúin, garðar og grjótvörn 160 milljónir króna. Meö brúnni styttist leiðin milli Reykjavíkur og Eyrarbakka um 10 kílómetra, úr 70 kílómetrum í 60 kiló- metra. Frá Þorlákshöfn verða 16 kílómetrar til Eyrarbakka. Styttist sú leið um 28 kílómetra. Leiðin milli Selfoss og Þorlákshafnar styttist um 4 kílómetra. Helstu rökin fyrir brúnni eru þau að með henni nýtist landshöfnin í Þorlákshöfn betur Eyrarbakka og Stokkseyri. Leng’d brúarinnar verður um 300 metrar og breidd 4 metrar. Á henni miðri verður útskot, sem gerir bílum mögulegt að mætast. Aö brúnni þarf að leggja 11,8 kílómetra langan veg, sem bundinn verður slitlagi. -KMU. MANSTU HVERSU OFT ÞU HEFUR ÓSKAÐ, AÐ ÞÚ ÆTTIR •• TVO SJONVARPST/EKI? Við bjóðum þér 14” littæki sem aukatæki á heimilið. GoldStar tækin eru meðfærileg, mjög góð og ódýr. Útborgun 7.000,- Eftirstöðvar á 6 mán. GS Til dæmis þegar þú færð gesti og vilt fá frið til að sinna þeim, en sjónvarpið er inni í stofu og þú varst búinn að lofa krökkunum, að þau fengju að horfa á dagskrána. Eða þegar allir á heimilinu eru að horfa á video-mynd, en þú vilt fá að sjá fréttirnar. Eða þegar krakkarnir hafa tengt heimilistölvuna við sjónvarpið, af því að tölvuleikirnir eru miklu skemmtilegri í lit, og fréttaútsending er rétt að hefjast. Eða þegar.... verð aðeins 28.310.- stgr. ,.W-. Lsy GoldStar verð aðeins 24.980.- 19 verð aðeins 27.455.- stgr. SKIPHOLTI SÍMI 29800 1Œ3 GoldStar m 10KUM VEL Á MÓTI ÞÉR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.