Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 29
Hjálp í viðlögum: Ekki þekkt tilfelli sem sýnir aö menn geti smitast með hjálp í viðlögum. Það er of snemmt aö hvetja menn til þess aö nota gúmmíhanska eða sérstakan útbúnað annan t.d. þegar munn við munn aðferðin er notuö. Matvæli: Fólk fær ekki ónæmistæringu í gegn- um matvæli, unnin eða óunnin. Tilbúnir réttir á matsölustöðum eru hættulausir. Matvæli af öllu tagi í búðum og stórmörkuðum ber ekki að óttast. Ekki er mælt með því að borða hrátt, blóðugt kjöt. Minna ber á að veiran deyr við 56° hita. Heitir pottar: Engin hætta. Þar sem klór er notað drepst veiran um leið. Kossar: Kossar eru ekki taldir hættulegir. Ekki er mælt með djúpum Hollywood- kossum, ef hætta er á aö um smitbera sér aö ræða. Veiran hefur fundist í munnvatni. Ef menn vilja vera alveg öruggir er um að gera að kyssa þurra kossa. Klósett Menn smitast ekki af klósettsetum. Hins vegar ber að gæta þess að klósett- setan sé hrein. Sameiginleg notkun á klósettum er ekki hættuleg, nema ef menn eru með sár á endaþarmi og piss úr smituðum er á klósettsetunni. Sár: Passa þarf opin sár og búa vel um þau. Forðast skal að vessar úr sári fari á aðra, eða komist í slímhúð annarra, í augu, kok, endaþarm eða kynfæri. Vinnustaðir: Fólk á ekki að vera í hættu á vinnu- stað. Sá sem er sýktur ætti ekki að drekka úr annarra manna könnum. Skemmtistaðir: Hægt er aö bregða sér á dansleik meö góðri samvisku. Muniö að því færri rekkjunautar því minni hætta á ónæmistæringu. Aldrei kyssa ókunnuga Holly- woodkossum. ' t 4 - ’mZZ- Sundstaðir: Það er fullkomlega í lagi að fá sér sundsprett. Klórinn drepur veiruna. Heyrst hefur að baöhúsum hafi verið lokað í Bandaríkjunum vegna smithættu. Baðhúsin í Bandaríkjunum eru allt öðruvísi en sundstaðirnir hér. Þar er ekkert synt og eng- inn klór notaður. Þar hafa hommar hist og haldið sínar kynlífsveislur og þannig borið á milli smit. Læknar hér hvetja hins vegar fólk til þess að drífa sig sem oftast í sund. Það er mjög holl íþrótt. Samgöngur: Allt í lagi aö fara í strætó. Ef menn fara til útlanda, skal forðast vændi. Sólbekkir: Allt í lagi að fara í ljós. Bekkirnir eru þrifnir meö sótthreinsandi. Gæta ber fyllsta hreinlætis. Sánabað: Pottþétt. Munið að veiran deyr við 56° hita. O

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.