Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 37
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985. 37 Rannsókn okurlánamálsins á fullum krafti um helgina: Fjöldi manna hefur játaö Tíu þúsund á vísitöluf jölskyldu Frá Regínu Thorarensen, fréttaritara DVáSelfossi: Þaö má kaupa drjúgt á vísitölufjöl- skylduna fyrir tíu þúsund krónur. I kaupfélagi Árnesinga fæst danskur fatnaöur. Kosta vandaöar kvendragtir úr ull kr. 3.500. Pils og blússa á 8 ára stúlku kostar kr. 2.000 og buxur og skyrta á dreng á sama aldri kosta 1.500. Karlmannsbuxur með belti kosta kr. 1.900 og skyrta og bindi 900 krónur. Bolungarvík: Slökkviliðið gabbað Tilkynning barst til slökkviliðsins í Bolungarvík í gærmorgun þess efnis aö kominn væri upp eldur á sveitabænum Osi viö Bolungarvík. Slökkviliöiö fór þegar á staðinn og fékk til liðs viö sig hluta slökkviliösins á Isafirði. En þegar á staðinn var komiö fannst hvergi neisti, hvaö þá meira. Þarna hafði því verið um gabb aðræða. Á Isafirði hafði lögreglan í ýmsu aö snúast í fyrrinótt. Talsvert var um að járnplötur fykju i óveðrinu. I sumum tilvikum lentu þær á bílum og skemmdu þá. Einnig fuku fiskkassar við Norðurtanga og ollu minni háttar skemmdum. Ekkert meiri háttar tjón varð af völdum óveðursins. -JSS Rannsókn okurlánamálsins hélt áfram um helgina af fullum krafti. Mikill þrýstingur hefur verið á rannsóknarlögregluna að birta nöfn þeirra sem yfirheyrðir hafa verið og tengjast málinu með beinum eða óbeinum hætti. Rannsóknarlögreglan hefur hins vegar varist allra frétta á þeirri for- sendu að hún sé bundin þagnarskyldu og þaö kunni aö skaða rannsóknina að birta nöfn á meöan á henni stendur. Rannsóknin er yfirgripsmikil og flókin og á enn langt í land áður en öll kurl eru til grafar komin. Tugir manna eru viðriðnir málið. Rannsóknin beinist fyrst og fremst aö þeim sem samkvæmt bókhalds- gögnum Hermanns Björgvinssonar hafa afhent honum fjármuni til ávöxt- unar. Nú þegar liggja fyrir fjölmargar játningar og staðfest hefur verið að samtals hafi Hermann haft umleikis allt aö tvö hundruö milljónir króna. Dæmi eru þess að einn einstaklingur hafi afhent Hermanni tuttugu milljónir króna, annar rúmlega tíu milljónir og sá þriðji sex mUljónir. I sumum tilvikum var um reiðufé aö ræða. Tveggja ára fyrning Það fólk sem átt hefur viðskipti viö okrarann til að hagnast sjálft með okurvöxtum er af öllum stéttum. Meðal þeirra eru þrír lögfræðingar, þar af tveir sem starfa sem praktiser- andi lögmenn. Þeir hafa enn ekki veriö yfirheyrðir. Rannsókn málsins beinist einkum að viðskiptum Hermanns undanfarin tvö ár, enda mun hann hafa að mestu eyði- lagt gögn sem lúta að eldri tíma. Ástæðan er einnig sú, að brot á okur- lögum fyrnast á tveim árum og það hefur því takmarkaða þýðingu að grafa upp og rannsaka eldri mál. Aö minnsta kosti að sinni. Hermann Björgvinsson er sam- vinnufús í yfirheyrslum, sem hafa staðið látlaust yfir frá því hann var handtekinn og úrskurðaöur í gæslu- varðhald. Gæsluvarðhaldið rennur út á miðvikudaginn og þá mun rannsóknar- lögreglan taka afstöðu til þess hvort óskað verði eftir framlengingu. Má fastlega reikna með því, enda rannsóknin enn á frumstigi. 168% vextir Nokkuð ljóst liggur fyrir hvernig okurlánaviðskiptin fóru fram. Hermann var milligöngumaður. Hann tók við fé og greiddi fyrir þaö meö ávísun tvo mánuöi fram í tímann meö allt að 14% vöxtum fyrir tveggja mánaöa tímabil. Það samsvarar 168% á ári. Þetta fé lánaöi hann aftur út, meö enn hærri vöxtum til sama tíma í flestumtilvikum. Auk íslenskra peninga er einnig vitað um viðskipti í erlendri mynt. Hald var lagt á rúmlega 20 þúsund dollara, 80 þúsund vestur-þýsk mörk og milli 40 og 50 þúsund danskar krónur. Tilurð þessa fjár og eign á því er að mestu upplýst. Til aö rekja slóö þessara viðskipta og þeirra sem að þeim hafa staðið hefur I rannsóknarlögreglan notið samvinnu banka og lánastofnana. Hermann mun sjálfur hafa gefið lögreglunni heimild til að kynna sér bankareikninga hans og þau ávísanaviðskipti sem þar fóru í gegn. Einn bankanna, Búnaðarbankinn, neitaði rannsóknarlögreglunni um að skoða þau bankaviðskipti sem aö þeim banka snúa og vildi með því láta á það reyna hvort bankanum væri skylt að upplýsa um einstök viöskipti með hlið- sjón af lögskráðri bankaleynd. I síð- ustu viku kvaö Sakadómur Reykja- víkur upp þann úrskurð að bankinn skyldi láta umbeðin gögn af hendi. Að rannsókn málsins starfa nú sex rannsóknarlögreglumenn og er talið aö hún muni standa í nokkrar vikur enn. Glataðir peningar E3dd er gert ráö fyrir að fleiri menn verði hnepptir í gæsluvarðhald enda eru viðurlög við okri eingöngu sektir en ekki fangelsisdómar. Þess er þó að geta að auk okurlagabrota beinist rannsóknin að hugsanlegum brotum á skatta- og gjaldeyrislögum. Viðurlög eöa sektir við okri geta numið fjór- faldri og allt upp í tífaldri þeirri upphæð sem fengin er með ólögmætum hætti. Það er því ekki ólíklegt að mikið eða mest af því fé sem Hermann Björg- vinsson hefur haft undir höndum sé að mestu glataö þeim mönnum sem það áttu. Með sama hætti er líklegt að þær skuldir sem fórnarlömbin stofnuðu til komi aldrei til endanlegrar greiðslu. ebs Mikil örtröð hefur verið hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins i Auðbrekku undanfarna daga. Um helgina hélt rannsókn okurlánamálsins áfram. DV-mynd KAE SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKAÐSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sJnnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, það er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn ný- komnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringir. Við birtum... Þaö ber árangur! Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Oplð: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 laugardaga, 9.00—14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 Frjalst.óháð dagblað ER SMAAUGLYSINGABLADiD s*....

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.