Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 40
40 DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985. Guðfinna S. Breiðfjörð lést 10. nóvem- ber sl. Minna eins og hún var kölluð var fædd í Reykjavík þann 12. ágúst 1921. Foreldrar hennar voru Sigurður Breiðfjörð og Guðfinna Olafsdóttir. Minna lauk hárgreiðslunámi og starf- aði lengst af viö þá iön. Hún giftist Magnúsi Thorberg, en þau slitu sam- vistum eftir árabil. Þau eignuðust þrjár dætur. Utför Minnu verður gerö frá Kristskirkju í dag kl. 13.30. Aðaibjörg Björnsdóttir frá Borgarfiröi eystra andaöist aö kvöldi 14. nóvember á sjúkrahúsi í Uddevalla í Sviþjóö. Gísli Jóhannesson frá Bláfeldi andaö- ist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 14. nóvember. Guðni Sigurðsson, Faxastíg 18 Vest- mannaeyjum, nú til heimilis aö Bólstaöarhlíð 48 Reykjavík, andaöist í Landakotsspítala aö morgni 15. nóvember. Gerda Stefánsson, Brekkugötu 12 Akureyri, andaöist í Borgarspítalan- um 9. nóvember sl. Hún verður jarösungin frá Akureyrarkirkju þriöjudaginn 19. nóvember kl. 13.30. Magdalena Sveinbjörg Sigurðardóttir, Merkurgötu 12 Hafnarfirði, verður jarösungin frá Fríkirkjunni í Hafnar- firöi þriöjudaginn 19. nóvember kl. 15. Gerður Guðmundsdóttir hjúkrunar- kona, Akurgeröi 9 Reykjavik, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju þriöju- daginn 19. nóvemberkl. 13.30. Fundir Kvenfélagið Seltjörn heldur fund þriðjudaginn 19. nóv- ember kl. 20.30 í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. Gestir fundarins eru konur úr kvenfélögum í Sandgerði og Gerðum. Fjölbreytt skemmtiat- riði. Bræðrafélag Bústaðasóknar heldur fund í kvöld, mánudagskvöld, kl. 20.30 i safnaöarheimili Bústaðakirkju. Tapað -fundið Clarius er týndur Hann er stálpaður kettlingur (angóra), svartur að lit, með hvíta bringu og hvítar loppur. Hann er með gula ól, mjög loðinn. Ef einhver hefur orðið var við hann þá vinsam- legast látið vita í símum 19280 og 621599 eöa látið vita á Dýraspítalanum eða hjá Katta- vinafélaginu. Tilkynningar Skíðafélag Reykjavíkur Lagfæringa- og smurningsnámskeið fyrir gönguskíði verður á Amtmannsstíg 2 í kvöld kl. 20.30. Leiðbeinandi Ágúst Björnsson. Plata frá Smartband Hljómsveitin Smartband hefur sent frá sér sína fyrstu hljómplötu. Hljómplatan, senx ber nafniö Smartband, inniheldur fjögur lög eftir Kjartan Olafsson. Texta semur Ulugi Jökulsson. Hljómsveitina skipa þeir Kjartan Olafsson og Pétur Grétars- son. Þeir skipta hljóðfæraleik bróðurlega á milli sín. Aöstoöarmenn við gerð plötunnar voru: Skúli Sverrisson sem sá um bassaleik, Krist- ján Eldjám gítarleikari og Magnús Ragnars- son leikari sá um munnsöfnuð. Smartband sá um útsetningar. Upptökur fóru fram i Studio Mjöt. Upptökumaöur var Sveinn Olafsson. Hljómplötuútgáfan Smart-Art gefur út. Árbók íslands Hvað gerðist á íslandi 1984 eftir Steínar J. Lúðvíksson komin út Ut er komið hjá Erni og Orlygi sjötta bindið í árbókaflokknum Hvað gerðist á. íslandi og tekur þetta bindi til ársins 1984. Höfundur er Steinar J. Lúðvíksson en myndaritstjóri Gunnar Andrésson. Flestir kunnustu frétta- ljósmyndarar þjóðarinnar eiga myndir í bók- inni. Hvað gerðist á íslandi geymir itarlega samtímasögu. Fjallað er um allt það helsta sem gerðist á Islandi og í íslensku þjóðlifi á árinu og fjöimargar myndir eru í bókinni. Bókin er því í senn tii ánægju þeim sem ýmist tóku þátt í viðburöunum, sem sagt er frá, eða fylgdust með þegar þeir gerðust og jafnframt verður hún ómetanlegt heimildarrit þegar timar líða og öðlast æ meira gildi með árun- um. Þegar spurt verður um Hvað gerðist á' lsiandi 1984 í framtiöinni þá er svariö aö finna i þessari bók. Atburðir eru flokkaðir eftir eðli sinu, þannig að auðvelt er að finna það sem leitað er að. Höfundur bókarinnar, Steinar J. Lúðvíksson hefur fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir skýra og glögga uppsetn- ingu efnis og næmt mat á efnisvali. Efni bókarinnar er þannig raðað eftir eðli atburðanna og í tímaröð: Alþingi — stjórn- mál; Atvinnuvegirnir, Bjarganir — slysfarir; Bókmenntir — listir, Dóms- og sakamál; Efnahags- og viðskiptamál; Eldsvoðar; Fjölmiðlar; Iþróttir; Kjara- og atvinnumál; i Menn og málefni; Náttúra landsins og veöur- far; Skák og bridge; Skóla- og menntamál og Ur ýmsumáttum. Bókin Hveð gerðist á Islandi 1984 er sett og prentuð í prentstofu G. Benediktssonar en bundin hjá Arnarfelli. Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson. Spilakvöld Kvenfélag Kópavogs Spilakvöld verður þriðjudaginn 19. nóvember í félagsheimilinu, Kópa- vogi. Byrjað verður að spila kl. 20.30. Etron Fou Leloublan til íslands Um næstu mánaðamót kemur franska hljómsveitin Etron Fou Leloublan hingað til lands. Hér mun hún halda eina tónleika í veitingahúsinu Safari við Skúlagötu. Etron Fou Leloublan er í hópi elstu og virt- ustu hljómsveita Frakka. Hún er röskra tólf ára en hljómar þó eins og ferskasta nýbylgju- sveit. Liðsmenn Etron Fou Leloublan leggja sig einmitt í líma við að kanna nýjar leiðir í útsetningum og hljóðfæraleik. Jafnframt leggja þeir rika áherslu á öflugar laglínur. Á þann hátt tekst þeim að láta músík sína hljóma í senn framandi og aðlaðandi. Utkom- an er það spennandi að síðasta breiðskífa hljómsveitarinnar, „Les Sillions”, náði upp í áttunda sæti óháða vinsældalistans í Bret- landi. Hingað kemur Etron Fou Leloublan á vegum tónlistarmiðstöðvarinnar Gramms- ins, I-augavegi 17. Þorleifur er stærsti báturinn i Grimsey. Hann er um 30 tonn og hefur um tvö hundruð tonna kvóta. Hér slappar Leifi af, enda langt kominn með kvótann. FRÁ HÖFNINNI í GRÍMSEY Trillur skipa veglegan sess i Grímsey. Flotinn er þrettán trillur. Á sumrin er þó ávallt nokkuð um aðkomu- trillur. Þannig voru á síðastliðnu sumri gerðar út um 40 trillur frá eyjunni. Það þarf lika að verka aflann. Einungis er unnið í saltfisk i eyjunni. Tvö fiskverkunarhús sjá um það. Annað er við höfnina, hús KEA. Við sjáum hór frisklegt starfsfólk þess i aðgerð. Brosmilt fólk, Grimseyingar.___________________________________________DV-myndir JGH.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.