Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Blaðsíða 8
u DV. MÁNUDAGUR18. NÖVEMBER1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Vinsældir Reagans sjaldan meirí Þingmenn sameinast um sæmileg sæti Frá Ketilbirni Tryggvasyni, frétta- ritara DV í Berlín: Á næsta ári hefjast miklar viðgeröir á þinghúsi Þjóðverja í Bonn. Vegna þeirra verður ekki hægt að halda fundi þingsins í húsinu næstu tvö árin. Mikið hefur verið leitað að hæfu bráðabirgða- húsi fyrir þennan tíma og hefur nú loksins veriö fundið eitt nægjanlega nálægt og virðulegt húsnæði. Húsi þessu, sem er gömul vatnsaflstöð, hefur verið umturnað nú í sumar til að þingmenn geti setið þar strax á komandi ári. Eitt stórt vandamál hefur þó komið upp viö þessa flutninga en það er að þarna verður öllu þrengra en í hinu heföbundna þinghúsi. Skeröa verður áhorfendaf jölda og fjöldi fréttamanna verður einnig takmarkaður. En það sem er erfiðast, er ókvöröun um stærð þingsæta, en til að allir þingmenn geti setið þarf að minnka sætin töluvert frá því sem er í dag og þrengja bilið á mílli þeirra. Seinustu mánuði hafa þingmenn kvartað mikið vegna þessa og vilja meina að þingsetan verði óbærileg við þessar breytingar. Mikið hefur verið reynt til að bæta þetta en tæknilega er það mjög erfitt. Nú nýlega kom þó upp hugmynd sem jafnvel kemur til með aö leysa þetta vandamál. Hugmyndin sem byggist á þeirri staðreynd að þing- menn sækja fremur illa daglega fundi, gerir ráð fyrir ákveðnum fjölda fastra sæta fyrir meðalfjölda mættra þing- manna, en lausum stólum (sem þægi- legt væri að stafla saman í einhverju horni) fyrir þá daga er óeðlilega mikið væri af þingmönnum í salnum. Hvort þessari hugmynd verður hrint í framkvæmd er náttúrlega ekki hægt að segja um, en kannski gætu forráða- menn íslenska þingsins tekið hana sem lausn á íslenska þingsæta-, fjölda- og þrengslisvandamálinu. Þinghús og skrifstofur þingmanna i Bonn. Oskar Magnússon, DV, Washington: Persónulegar vinsældir Reagans Bandaríkjaforseta hafa nær aldrei verið jafnmiklar meðal Bandarikja- manna. Fleiri hafa nú trú á aðferö- um forsetans í samskiptum við Sov- étmenn og ótti viö aö hernaöarstefna Reagnans auki likur á kjarnorku- styrjöld hefur minnkað. Þetta kemur fram í nýrri skoðana- könnun sem bandaríska sjónvarps- stööin ABC og stórblaöið Washington Post gengust fyrir. Harðari gegn hryðjuverkum Auknar vinsældir Reagans koma í kjölfar harðari aögeröa hans gegn hryðjuverkamönnum en varfærnari málflutningi gagnvart Sovétríkjun- um eftir því sem leiðtogafundurinn hefur nálgast. Skoðanakönnunin leið- ir í ljós að 67 prósent aðspurðra eru ánægðir með frammistöðu forsetans. Aöeins einu sinni áður hafa fleiri ver- ið ánægðir með athafnir forsetans. Það var skömmu eftir aö forsetanum var sýnt banatilræði árið 1981.73 pró- sent aðspurðra voru þá ánægðir með forsetann. 84 prósent aðspurðra nú líta svo á að Reagan vilji í einlægni ná árangri í afvopnunarviðræðunum. Kemur þar fram grundvallarmunur á fyrri afstöðu fólks. Áður var yfirleitt litið svo á að forsetinn kærði sig í raun ekki um viðræður við Sovétmenn. Nokkuð ánægðir með Gorbatsjov I umræddri könnun var afstaða al- mennings til Gorbatsjovs einnig könnuö. 44 prósent aðspuröra höfðu jákvæða afstöðu til hans en 38 pró- sent voru honum andsnúnir. 56 pró- sent töldu að Gorbatsjov væri full al- vara með afvopnunarviðræðunum. Engu að síður er almenningur mjög klofinn í afstöðunni þegar spurt er hvort menn búist við árangri af Genfarviðræðunum. 58 prósent telja þó að leiðtogafundurinn muni verða til þess að draga úr spennu í heimin- um. 38 prósent eiga ekki von á mark- verðum árangri. Leiðtogafundurinn íGenf: Stóru málefnin ganga ekkert Samningar um hliðarmálin eru vel á veg komnir Gorbatsjov Sovétleiðtogi var væntan- legur til Genfar í morgun þar sem hann mun hitta Reagan Bandaríkjaforseta á morgun. Reagan er þegar kominn til Sviss. Ljóst er aö enginn meiri háttar samn- ingur verður gerður á fundunum á morgun og miðvikudag. Bandarískir embættismenn segja að vel gangi að semja um tvíhliða samskipti ríkjanna en báðir aöilar hafa sterklega gefiö í skyn að mikil gjá sé enn á milli þeirra varð- andi vopnatakmarkanir og svæðisbund- inátök. Athygli vakti að á laugardag sagði sovéskur embættismaöur að það væri Reagan getur bent á tölur sem sýna að hann sé einn vinsælasti forseti allra tíma i Bandarikjun- um. . . eitt af helstu forgangsverkefnum Sovét- stjómarinnar að taka sovéskt herlið út úr Afganistan. „Viö erum ekki mjög ánægðir með að þurfa að halda mönnum úti í Afganistan,” sagöi Nikolaí Shishlín, meðlimur miönefndar kommúnistaflokksins. Báðir aðilar lentu í erfiðleikum á fréttamannafundum sínum. Bandaríkja- menn þurftu að svara fyrir bréf sem Weinberger landvarnarráðherra sendi Reagan þar sem hann varar við eftirgjöf gagnvart Sovétríkjunum. Reagan brást reiður við þegar hann var spurður hvort hann væri sammála embættismanni sem hafði sagt aö birting bréfsins væri til- raun til að eyðileggja leiðtogafundinn. Sovétmenn lentu í vandræðum þegar sovéskur útlagi hrópaði ákaflega frammí fyrir þeim á fréttamannafundi. Einn þeirra hótaöi aðkalla á lögregluna. Fjölmiðlar um allan heim bera nú ákaft saman Reagan og Gorbatsjov. Bandarískir embættismenn eru sam- mála um að Reagan muni ekki reynast erfitt að halda í við Gorbatsjov. En einn þeirra sagöi að Reagan hefði svo sem ekkert sérstakt álit á starfsbróður sín- um. Hann liti á Gorbatsjov sem stjórn- málamann sem lítiö heföi þurft að berj- ast fyrir uppgangi sínum. Reagan mun vera hvekktur á umf jöllun blaða þar sem leiðtogafrúrnar tvær eru bornar saman. Þykir honum sú umfjöllun heldur hagstæð Raisu Gorbatsjov. „Irinn í honum kom upp við þetta,” sagöi einn heimildarmaður. . . . en Gorbatsjov finnst timi til kom- inn að Bandarikjamenn slaki á kröfum sinum i afvopnunarviðræðum. Fólki enn bjargað úr leðjunni í Armero Enn er verið að bjarga einstaka manni úr leöjunni í kringum eldf jallið á Armero svæðinu í Kólombíu. Nú er opinberlega sagt að 22.000 manns hafi látist í eldgosinu og leöjuflóðinu sem á eftirkom. LonNol burtgenginn Lon Nol, fyrrum leiðtogi Kampútsíu, andaöist í gær á sjúkrahúsi í Kaliforníu, sjötíu og eins árs að aldri. Hafði hann nýlega verið lagður inn á gjörgæsludeild spítalans. Lon Nol kom til valda 1969 og var stjóm hans studd af Bandaríkja- mönnum en þetta var á árum Víet- namstríðsins. Hann yfirgaf Phnom Penh 1. apríl 1975 ásamt fjölskyldu sinni þegar kommúnistar hófu inn- reið sína í höfuðborgina. — Bjó hann fyrst á Hawaii en settist síðan að í Kalifomíu 1979. Hann hafði lengi ekki gengið heill til skógar. 1971 fékk hann slag og lamaðist þá öll vinstri hliðin. Yfirvöld hugðust um helgina lýsa svæðið í kringum bæinn Armero hinstu hvílu þeirra sem þar fórust svo hægt væri að byrja aö sótthreinsa það en hópur presta hvatti erkibiskupinn í héraðshöfuðborginni Ibague til aö fresta því að vígja svæðið. Þeir telja enn möguleika á að finna fólk á lífi í leðjunni. Einn hinna heppnu, sem búið er að bjarga, er Isidro Borques. Hann var í þrjá daga grafinn í leðju upp að hálsi. Þaö tók heilan sólarhring aö ná honum upp úr leðjunni. Byrjað er aö brenna lík til að koma í veg fyrir farsóttir. Húsdýr eru skotin. Lögreglan hefur hvatt fólk til aö flytja sig sem lengst frá eldfjallasvæðinu því óttast er aö nýjar eldgosahrinur kunni að bræða jökla og senda enn frekara leðjumagn í flóðbylgju um dali Armero-héraðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.