Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Side 24
24
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985.
DV. MÁNUDAGUR18. NOVEMBER1985.
25
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
fþróttir
íþróttir
Stórsigur St jörnustúlkna
— þrír leikir voru háðir í
1. deild kvenna í handbolta
Þrír leikir fóru fram í 1. deild kvenna um helg-
ina. Fram sigraði FH með 22—16 í Laugardals-
höllinni og á sama stað báru Víkingsstelpurnar
sigurorð af KR, 25—19. í íþróttahúsinu í Digra-
nesi vann Stjarnan stóran sigur á Haukum, 28—
15.
Staðan
í 1. og 2. deild handboltans
Fjórir leikir fóru fram í 1. deild karla um helg-
ina og urðu úrslit þessi:
FH-Þróttur 28—16
Valur-KA 20—16
Víkingur-KA 20—18
Stjarnan-KR 23-19
Staða ef stu liða er því þessi:
Víkingur 9 8 0 1 222—161 16
Valur 9 7 0 2 176—166 14
Stjarnan 9 6 1 2 215—181 8
Fram 8 4 0 4 188—181 8
FH 9 4 0 5 218—215 8
KA 10 4 0 6 203—209 8
KR 9 2 1 6 186—210 5
Þróttur 8 0 0 8 168—249 0
Nokkrir leikir fóru fram í 2. deild karla í hand-
boltanum og urðu úrslit þessi:
IR-Breiðablik 22—27
Afturelding-Þór, Ve 27-17
Grótta-HK 21—27
HK-Þór, Ve 30—22
Haukar-Afturelding Staðan er því þessi: 17-27
Breiðablik 8 7 0 1 203—167 14
HK 8 6 0 2 217—176 12
Armann 7 6 0 1 168—152 12
ÍR 8 4 1 3 187—180 9
Afturelding 8 2 2 4 203—195 6
Haukar 9 3 0 6 189—206 6
Þór, Ve 8 2 0 6 166-191 4
Grótta 8 0 1 6 148—204 1 -fros
Steve Archibald.
Archibald
skoraði tvö
Steve Archibald fann skotskóna sína fyrir
helgina er hann skoraði bæði mörk Barcelona í
2—0 sigri á Celta, 2—0, í spönsku 1. deildinni.
Leikurinn mótaöist frekar af mjög grófum
leik en fallegri knattspyrnu og strax á sjöttu
mínútu var kantmaður Barcelonaliðsins,
Marcos Alonso, borinn af velli eftir ljótt brot
eins varnarmanna Celta, Juan Maraver. Bern-
ardo Miguelli hefndi félaga síns sjö mínútum
seinna er hann braut það illa á Maraver að hann
þurfti að yfirgefa leikvöllinn. Leikmenn liðanna
náðu að mestu að róa sig niður eftir þessi tvö
atvik og þegar leið á leikinn náöi Barcelona yfir-
höndinni. Fyrra mark Archibald kom á 51.
mínútu eftir að hann hafði ^inleikið í gegnum
vöm Celta og það síðara sjö mínútum fyrir leiks-
lok. Með sigrinum komst Barcelona í sjötta sæti.
Liöið er fimm stigum á eftir Real Madrid sem
vann Cadiz, 3—1. Argentínumaðurinn Jorge
Valdano skoraði öll mörk Madridliðsins í leikn-
um.
Hercules, liðiö sem Pétur Pétursson leikur
með, tapaði, 3—1, á útivelli fyrir Sporting Gijon.
Enrique Castro eöa Quini skoraði tvö af
mörkum Sportingliðsins sem nú er í þriðja sæti.
Af öðrum úrslitum í deildinni er það helst að
Atletico Bilbao mátti þola 2—0 tap á útivelli
fyrir Real Betis og á meðan vann hitt Atletico
liðið, Atletico Madrid, góðan sigur á Espanol á
útivelli, 1—2.
Staða efstu liða er nú þessi:
Real Madrid 12 8 3 1 25—10 19
Sporting Gijon 12 6 6 0 14—5 18
Atletico Madrid 12 6 3 3 25—17 15
Atletico Bilbao 12 6 3 3 17—13 15
Barcelona 12 14 2 15—9 14
-fros
segir Franz Beckenbauer eftir 2:2 jafntefli Þjóöverja gegn Tékkóslóvakíu.
Fæstir áhorfendurá landsleik f Þýskalandi frá upphafi
Andreas Brehme skoraöi eftir aðeins
45 sekúndur. Mörk þeirra Josef Novak
„Viö viröumst ekki geta leikið vel í
heilar nítíu mínútur,” sagði einvaldur
v-þýska landsliðsins í knattspyrnu er
enn mátti sætta sig við jafntefli gegn
Tékkóslóvakíu á heimavelli sínum, 2—
2. Leikurinn hafði enga þýðingu því að
V-Þjóðverjar höfðu fyrir löngu tryggt
sér réttinn til aö leika í lokakeppni HM
á næsta ári.
Það var mjög lítill áhugi fyrir leikn-
um í Þýskalandi og áhorfendafjöldi sá
lægsti sem um getur á landsleik í
Þýskalandi. Aðeins fimmtán þúsund
áhorfendur borguðu sig inn á ólympíu-
leikvöllinn í Miinchen og fylgdust með
leiknum í bítandi tíu stiga gaddi. Þeir
Karl Heinz Rummenigge.
sáu Vestur-Þjóöverjana leika enn einn
leikinn án sigurs en liðið hefur ekki
sigrað í sex síðustu leikjum sínum.
Heimamenn fengu óskabyrjun er
og Jan Berger í síðari hálfleiknum
komu Tékkóslóvakíu í forystu en Karl
Heinz Rummenigge náði að jafna
þremur mínútum fyrir leikslok eftir aö
Tékkum haföi tekist að bjarga skoti
Ludwig Kögl á línu. Kögl og Olaf Thon
voru þeir einu hjá V-Þjóöverjum sem
áttu sæmilegan leik. Annars var loka-
staðaníriðli2þessi:
V-Þýskaland
Portúgal
Svíþjóð
Tékkóslóvakía
Malta
8 5 2 1 22-9 12
8 5 0 3 12-10 10
8 4 13 14-9 9
8 3 2 3 11-12 8
8 0 1 7 6-25 1
Austur-Þjóðverjum ekki
— þjóðirnar mættust á laugardaginn í undankeppni HM í knattspyrnu
„Við lögðum allt í sóknina en Búlgar-
arnir vörðust vel þrátt fyrir aö sæti
þeirra í úrslitunum væri þegar tryggt.
Við þessar aðstæður áttum við aldrei
möguleika á að vinna þriggja marka
sigur,” sagði Bernd Stange, þjálfari A-
Þýskalands sem vann 2—1 sigur á
Búlgaríu á iaugardagskvöldið í leik í
undankeppni HM. Þjóðverjarnir áttu
fyrir leikinn raunhæfa möguleika á því
að komast til Mexíkó en þegar upp var
staöið skipti leikur þessi engu máli.
Frökkum urðu ekki á nein mistök i
París þar sem þeir lögðu Júgóslava að
velli og tryggðu sér því sæti með Búlg-
ariu.
Strax á þriðju mínútu náðu A-Þjóð-
verjarnir forystunni er Uwe Zoetsche
skoraði meö skalla eftir aukaspyrnu
við mikinn fögnuð rúmlega 32 þúsund
áhorfenda. Búlgararnir náöu að jafna
á 39. mínútu með marki Plamen
Gochov en Þjóöverjarnir svöruðu á
næstu mínútu með stórglæsilegu marki
Mathias Lieber úr aukaspyrnu af 25 I inum þrátt fyrir að ýmsir hefðu þá
metra færi. Hinum nauma sigri var þegar heyrt úrslitin í París í útvarps-
vel fagnað á Karl Marx Stadt leikvell- | viðtækjunum. -fros
Svíar sigruðu á Möltu
Svíar unnu Möltu, 1—2, í landsleik
þjóðanna í knattspyrnu á Möltu í
gær. Það var Robert Prytz sem náði
forystunni fyrir Svía strax á annarri
minútu leiksins en Farrugia náði að
jafna metin á 65. mínútu. Sigurmark
Svía gerði Glenn Strömberg átta
mínútum síðar. Áhorfendur voru
10.000.
-fros
Siggi með sjö í
13 marka sigri
Tres De Mayo
— er liðið vann Valencia, 38:27
„Ég er ekki nógu ánægður meö loka-
kaflann þvi aö við áttum að vinna mun
stærra,” sagði Sigurður Gunnarsson
eftir að Tres De Mayo hafði unnið
Valencia með þrettán mörkum í
spönsku 1. deildinni, 38—25.
Sigurður skoraöi sjö mörk en hann
hefur verið aðalmarkaskorari liös
síns. Félagi hans, Einar Þorvarðar-
son, átti þokkalegan leik í markinu.
Liðið á nú i harðri baráttu við Teka um
að komast upp i 1-riöli.
Keppnisfyrirkomulagið á Spáni er
nokkuð fiókið en keppt er á þremur
fösum svokölluðum. Liðið er nú í þriðja
sæti í sínum riðli með tólf stig,
Technisian er með þrettán stig og
Atletico Madrid með fimmtán. Teka á
Sigurður Gunnarsson.
eftir að leika með Technisian og sigri
liöiö í þeim 1 leik þá hefur iiðið tryggt
sér þátttökuréttinn í næsta riðli á betri
markatölu en Tres De Mayo.
-fros
Heimsmeist-
ararnir óvanir
snjónum
Heimsmeistarar ítalíu máttu
sætta sig við 1—0 tap fyrir Pól-
land er þjóðirnar mættust á snjó-
ugum velli í Chorzow í Póllandi
um helgina. Mikið snjóaði í Pól-
landi daginn fyrir leikinn og það
gafst ekki nægur tími til að
hreinsa völlinn. Snjórinn virtist
há ítölunum mikiö, sérstaklega í
fyrri hálfleik þegar leikmönnum
gekk mjög illa að fóta sig.
Dariusz Dziekanowski skoraöi
eina mark leiksins á fimmtu mín-
útu með þrumuskoti eftir einleik.
Italarnir sóttu mikið undir lokin
en tókst ekki að jafna. Aldo Ser-
ena komst næst því en skalli hans
fóríþverslána.
Lítið bar á aöalstjörnu Pól-
verja, Boniek, sem var í mjög
strangri gæslu allan tímann. -f ros
Siggeir Magnússon reynir markskot i leik Vikings við KA á laugardaginn.
Oruggur sigur Víkings
á nýliðum KA í Höllinni
Topplið Víkings í 1. deild karla í
handboltanum vann öruggan sigur á
nýliðum KA er liðin mættust í Laugar-
dalshöllinni í gær og þar með hélt liöið
tveggja stiga forskoti sínu i 1. deild-
inni. KA tapaði hins vegar sínum
öðrum leik á jafnmörgum dögum og
verður að sætta sig við að vera í neöri
hlutanum að minnsta kosti fyrst um
sinn.
Víkingar hófu leikinn meö miklum
látum, komust í 7—3 og síöan í 11—4.
Norðanmenn bættu viö einu marki
fyrir hlé og staöan því 11—5 í hálfleik.
Jafnræði var með liðunum í byrjun
seinni hálfleiks en þá náðu Víkingar
góðum leikkafla og munurinn óx jafnt
og þétt. Mesti munurinn á liðunum var
sjö mörk, 18—11, en þá tóku KA menn
„Virðumst ekki geta
leikið vel í 90 mínútur”
það til bragðs að setja yfirfrakka á
besta mann Víkinga, Steinar Birgis-
son. Við það riðlaðist leikur liðsins
nokkuð, KA skoraöi sex mörk gegn
aöeins einu Víkingsmarki og staðan
19—17. Hvort liöið um sig bætti við einu
marki og lokatölur því 20—18.
Steinar var bestur Víkinga í sóknar-
leiknum en gamla kempan Árni
Indriðason stóð sig mjög vel í vörninni.
Kristján varði oft á tíðum vel í
markinu.
Erlingur Kristjánsson og Erlendur
Hermannsson voru bestir í liði KA auk
Sigmars Þrastar markvaröar.
Mörk Víkings: Páll Björgvinsson
9/6, Steinar Birgisson 7, Guðmundur
Albertsson 2, Bjarki Sigurðsson og
Guömundur Guðmundsson 1.
Mörk KA: Erlingur Kristjánsson
8/2, Þorvaldur Ananíasson 4, Erlendur
3, Sigurður Pálsson, Hafþór Heimisson
og Pétur Bjarnason 1.
-fros
Auðvelt hjá
Stjömunni
í Digranesi
— KR var liðinu aldrei hindrun, munurinn fjögur
mörkílokin, 23:19
Stjarnan vann auðveidan sigur á
slöku liði KR er liðin mættust i 1. deild
karla í handbolta í gær. Leikiö var í
Digranesskóla og náðu heimamenn
strax undirtökunum og voru yfir allan
tímann. Staðan í hálfleik var 13—10 og
forskot Stjörnunnar varð mest sex
mörk. Undir lok leiksins varð kæru-
leysið þó öllu yfirsterkara leikgleðinni
hjá liðinu og KR náöi að minnka mun-
inn á lokaminútunum. Leiknum lykt-
aði með f jögurra marka sigri, 23—19.
Stjarnan náöi aldrei að sýna sínar
bestu hliðar í þessum leik einfaldlega
vegna þess aö mótstaðan var alltof lít-
il. Vörn þeirra stóð sig þó oft vel og fyr-
ir aftan hana varði Brynjar Kvaran
ágætlega. Hannes Leifsson skilaði
hlutverki sínu á miðjunni í sóknarleik
liðsins prýðilega.
Þrjá ljósa punkta var hægt að greina
hjá KR-liðinu. Gunnar Gíslason lék aft-
ur með liðinu eftir langt hlé og hann
kemur að öllum líkindum til með að
reynast liðinu mikilvægur. Stefán Arn-
arson hefur gott auga fyrir spili á lín-
una og Haukur Ottesen tók sig stund-
um til og skoraði falleg mörk með und-
irhandaskotum.
Hannes Leifsson varð markahæstur
Stjörnuleikmanna með sjö mörk en
Haukur Geirmundsson skoraði mest
fyrir KR, fimm mörk.
-fros
Pat Jennings
sagði já
lýsti því yf ir í sjónvarpsþætti á laugardaginn að
hann mundi gefa kost á sér í lið N-íra
fyrir lokakeppnina
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyui, frétta-
ritara DV í Englandi:
„Þetta er frábært. Öllum á írlandi
mun líða vel eftir að hafa f engið þessar
fréttir og ég veit að liðið verður mun
öruggara með Jennings í markinu,”
sagði Billy Bingham eftir að Pat Jenn-
ings hafði tilkynnt það í sjónvarpsþætti
á laugardaginn aö hann hygðist æfa og
leika með N-írum í lokakeppni HM i
Mexíkó á næsta ári. Jennings, sem
hefur náð fertugsaldri, hefur sjaldan
leikið betur í marki N-íra en einmitt
nú. Hann hafði ekki gert upp hug sinn
hvort hann treysti sér til að leika
áfram með liðinu.
„Ef allt fer að óskum mun ég leika
með liðinu í Mexíkó. Eg mun ræða við
Peter Shreeves, framkvæmdastjóra
Tottenham, og biðja hann leyfis að
mega æfa með félaginu fram til næsta
sumars,” sagöi Jennings sem leikiö
hefur flesta landsleiki allra mark-
varða í heiminum eða 113 að tölu.
Hann hefur undanfariö æft meö
varaliði Tottenham en með því liði lék
hann mestan hluta keppnisferils síns.
-fros
Sigur á Búlgörum dugði
Forum, nýi skórinn frá Adidas,
rosalegur, kr. 3.690,-
Upphitunarbuxur, nr. XS — XL,
Svartar — hvitar — bleikar —
gráar.
Venjulegar, kr. 890 - 920,-
Háar, kr. 1.072,-
Stuttbuxur kr. 697,-
Tiger körfuboltaskór, nr. 39 — 47,
SPARTA
LAUGAVEGI 49,
SÍM112024.
Borðtennisvörur. Landsins mesta úrval — borðtennisborð
spaðar — gúmmi, 6. teg., net og uppistöður — lim — rúllur
skor.
VISA
Opið laugardaga
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Laugavegi 49, sími 12024
Dúnúlpur
Má venda — sex litamöguleikar — ermum má renna af — hettu
má renna af — hægt að nota sem vesti. Litir: dökkblátt/grátt og
rautt/grátt, nr. 140-152 kr. 3.995, nr. 164-176 kr. 4.550, nr. S-
XL kr. 4.988.
Lejon moon boots, nr. 27—45, Baeheera kuldaskór, nr. 39—47,
kr. 1.098 -1.240. kr. 1.683,-
■