Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1985, Side 44
44
DV. MÁNUÐAGUR18. NOVEMBER1985.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
J
/
i
I
•mrw
Isabella þrætir fyrir að standa í ástarsambandi við Mikhail Bar-
yshnikov. Hins vegar átti tík Barysnikovs nýlega sex hvolpa með
hundi Isabellu.
Isabella, ein hæst launaða fyrirsæta í heimi, leikur í sinni fyrstu kvikmynd
„Það voru alltaf allir að segja
mér að ég ætti að verða leikkona
vegna mömmu en mér fannst það
ekki nógu góð ástæða,“ segir Isa-
bella Rossellini, dóttir Ingrid Berg-
man og leikstjórans Roberto Ross-
ellinis.
Isabella er ein hæst launaða fyr-
irsætan í heiminum en nú loksins,
þegar hún er orðin þrjátíu og
þriggja ára, ætlar hún að skella sér
í kvikmyndaleik.
Isabella og Ingrid, systir henn-
ar, í móðurörmum.
Ingrid, t.v., þykir líkjast föðurn-
um en Isabella móðurinni.
Taylor Hackford, sem gerði An
Officer and a Gentleman, fékk
hana til að leika í mynd sem heitir
White Nights. Hún leikur á móti
dönsurunum Gregory Hines og
Mikhail Baryshnikov. Hackford sá
andlit Isabellu á forsíðu tímarits
og féll í stafi. „Mér fannst hún í
senn meyjarleg og pönkleg - og
samt lík móðursinni."
Isabella segir sjólf að nú gefi hún
sig á vald örlögunum og feti í fót-
spor móður sinnar.
Þó mikið sé að gera gefur Isabella sér tíma til að fara með dóttur
sínaí hringekju.
Það vakti mikla hneykslun er
Ingrid Bergman fór frá eiginmanni
sínum og dóttur og tók saman við
föður Isabellu, ítalska leikstjórann
Roberto Rossellini. Hún eignaðist
skömmu síðar tvíbura, Isabellu og
Ingrid sem nú stundar framhalds-
nám í ítölskum bókmenntum við
Columbia háskólann í New York.
„Ingrid er gáfnaljósið í fjölskyld-
unni,“ segir Isabella. Flestir eru á
einu máli um að Ingrid líkist Ro-
berto en Isabella móðurinni,
Ingrid.
Það fór fyrir Isabellu eins og
móður hennar, hún giftist frægum
kvikmyndaleikstjóra. Isabella var
sjónvarpsfréttamaður á ítalska
sjónvarpinu áður en hún hóf fyrir-
sætustörf og tók meðal annars
viðtal við Martin Scorsese, höfund
Taxi Driver og fleiri frægra mynda.
Þau urðu ástfangin, giftust en
hjónabandið varði ekki mjög lengi.
Hún er nú nýskilin við annan
eiginmann sinn, Jon Wiedemann.
Gengið hefur fjöllunum hærra að
hún haldi við mótleikara sinn í
White Nights, Mikhail Baryshni-
kov, en hún þvertekur fyrir að þau
séu meira en góðir vinir.
„Hundarnir okkar hafa séð um
ástalífið," segir hún. Það vill nefni-
lega svo skemmtilega til að tík
Rússans eignaðist nýverið sex
hvolpa. Faðirinn? Hundur Isabellu!
DÓTTIRINGRID BERGMAN
FETAR í FÓTSPOR HENNAR
Mick Jagger kemur
ekki nærri bleiunum!
Melanie klæðir sig djarft og syngur við undirleik hljóðgervla. Hvað varð af mussunni?
Melanie er búin að henda mussunni
Man einhver eftir Melanie? Hún
heitir fullu nafni Melanie Safka og
söng sig inn í hug og hjörtu blóma-
barnanna meó lögum á borð við
Candles in the Rain og Nickel
Song. Hætt er við að mörg gömul
blómabörn missi hasspípurnar sín-
ar af hneykslun því Melanie syng-
ur nú kraftmikil danslög og lætur
taka myndir af sér í djörfum klæðn-
aði. Hún er nefnilega búin að
henda mussunni og kassagítarnum
og lætur hljóðgervla og tölvur um
alltsaman.
Jerry Hall, sambýliskona Mick
Jaggers, segir það vera mikinn
misskilning, sem fram hafi komið
í blöðum, að Jagger skipti á börn-
um þeirra tveimur, James og Eliza-
beth Scarlett.
Tiskufyrirsætan hefur nýverið
gefið út sjálfsævisögu sína, Jerry
Hall’s Tall Tales. Á blaðamanna-
fundi af þessu tilefni sagði hún að
þau ætluðu að giftast mjög bráð-
lega. Telja fiestir að það verði um
það leyti sem næsta plata Rolling
Stones kemur út. Hljómsveitin
þurfi nefnilega núorðið að auglýsa
sig.
Jerry sagði að Mick vildi endi-
lega að drengurinn þeirra, James,
yrði sendur í hinn virta Eton skóla.
Jerry segist einnig vera að vinna
að því að „víkka sjóndeildarhring-
inn“. Hún vilji gerast menningar-
leg og því hafi hún nýlega keypt
sér hundrað bestu bækur í heimi.
London Daily Mirror hefur eftir
henni að 18. aldar höfundar á borð
við Charles Dickens og Jane Aust-
Jerry Hall: Hún er nú að mennta
sig. Ekki veitir af, hún heldur
að Dickens hafi verið uppi á 18.
öld.
en séu nú í mestu uppáhaldi. Allt
gott um það að segja nema að
þessir ágætu höfundar voru öld-
ungis ekki uppi á 18. öld. En það
er mannlegt að skjátlast, ekki satt?