Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Qupperneq 3
DV. FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986. 3 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Viðræður um sölu Jarðanna „Það hafa staðið yfir vinsamlegar bráðabirgðaviðræður vegna óska hreppanna um kaup á löndum í eigu erfingja Thors Jensen,“ sagði Óttar Yngvason hæstaréttarlögmaður sem séð hefur um rekstur Haöjarðarár í umboði eigenda. „Ég hef tekið þátt í nokkrum fund- um og ég tel að viðræður hafi farið fram í góðum anda.“ Aðspurður sagði Óttar að flest þau málaferli sem staðið hefðu vegna jarðanna við Haffiarðará mætti rekja til annarra en eigenda árinn- ar. „Það hefur verið haldið uppi vömum af hálfu eigenda í nokkrum málum. Það hafa risið ein sex mál að undanfömu og öll hafa þau endað á einn veg, með sigri eigenda jarða og veiðiréttar í Hafljarðará og í Oddastaðavatni. Það hefur verið til- tölulega friðsamt sunnanmegin árinnar en hinum megin hafa menn verið æstir til óláta. Eg held að það sé tími til kominn að athuga í ljósi úrslita þessara dómsmála hverjir séu í rétti og hverjir í órétti." Þau mál sem Óttar vitnar hér til em um margt ólík. Tveimur málum vegna hlunnindaskatts, sem hreppar við Haffjarðará lögðu á eigendur, lyktaði á þann veg að skatturinn var talinn andstæður stjómarskránni. Eyjahreppur var talinn í órétti er hann krafðist ógildingar bygginga- bréfs sem eigendur og ábúandi Ytri- Rauðamels höfðu gert með sér og dómar í tveimur málum vegna inn- lausnaríveiðiréttinda féllu erfingjum Thors Jensen í vil. Og loks má nefha málið sem reis vegna ábúðar Sigurð- ar Oddssonar á Höfða. „Heimamenn vilja kaupa jarðir og veiðiréttindi Thors- ættarinnar" segir Guðmundur Albertsson oddviti sem sést ræða við blaðamann DV á myndinni. DV- mynd: KAE. Thorsarar vilja að jarðimar fari í eyði -segir Guðmundur Albertsson oddviti „Ég taldi rétt að vera hér íil að leggja áherslu á að þetta Höfðamál er ekki sérmál, eins og eigendur jarð- arinnar halda fram, heldur tengist þetta öðrum málum sem verið hafa fyrir dómstólum," sagði Guðmundui- Albertsson, oddviti Kolbeinsstaða- hrepps, einn 15 manna sem var á Höfða er lögreglan braust inn. „Ég tel að Thors-ættin, sem á tíu jarðir hér við Haffjarðará, hafi stefnt að því vísvitandi að koma þeim í eyði. Enda þótt deilur um Höfða hafi staðið yfir í mörg ár telja þeir sig allt í einu ekki hafa tíma til að bíða eftir að Hæstiréttur taki fyrir áfiýjunina. Ég held að það sýni hvað fyrir þeim vakir. Það hafa verið deilur í mörg ár um veiðiréttindi sem Thors-ættin hefur eignast og um ábúð á jörðum þeirra. Veiðiréttindi í Haffjarðará eru auðvit- að það sem þeir vilja halda í, ábúð á jörðum eins og Höfða er aðeins fjár- hagslegur baggi á þeim. Ég tel að eina leiðin til að leiða þessar deilur til lykta sé að Thors-ættin taki tilboði Kol- beinsstaða- og Eyjahreppa um kaup á jörðunum og veiðiréttindum. Viðræð- ur hafa staðið yfir alllengi og ég vona að þeim lykti á þennan veg,“ sagði Guðmundur Albertsson. -ás. Utburðurínn á Höfða: Heimamenn komnir fyrir tíu tímum - þegar sýslumann bar að garði „Ég frétti af þessum aðgerðum kvöldið áður en útburður átti að fara fram. Sendiferðabílstjóri í bænum sagði tengdasyni mínum frá því, án þess að vita að hann ætti tengdafólk í nágrenni Höfða,“ sagði Þórður Gísla- son í Mýrdal, einn nágranna Sigurðar Oddssonar á Höfða sem sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu baj- út á þriðjudag við fimmtánda mann. Gerðarbeiðandi og sýslumaður höfðu lítinn áhuga á að fjölmiðlar og heimamenn kæmust á snoðir um að útburður stæði fyrir dyrum, enda hætta talin á að reynt yrði að koma í veg fyrir útburðinn. Þetta mistókst hrapallega og ekki laust við að tilraun sýslumanns til að einangra Höfða væri lítið eitt brosleg þegar tekið er tillit til þess að 15 til 20 sveitungar hans voru þegar komnir á staðinn þegar afleggjurum var lokað og höfðu sumir dvalist þar í tæpa tíu tíma þegar lögregla kom á staðinn. „Heimavamarliðið", eins og stuðn- ingsmenn Sigurðar Oddssonar kölluðu sig, vissu upp á hár að sýslumanns væri að vænta þá og þegar um morg- uninn. DV bárust hringingar um klukkan fimmtán mínútur yfir níu um morguninn frá fólki sem tilkynnti um að sýslumaður og fjöldi lögreglu- manna úr Stykkishólmi væri á leið suður og færi mikinn. „Við fengum staðfestingu á því að þeir væru á leiðinni er fréttamaður DV hringdi," sagði Þórður Gíslason við DV. Fréttamenn þriggja fjölmiðla voru komnir í lofitið áður en lögregla kom á staðinn og flugu yfir bæinn er aðgerðir stóðu yfir. Fréttamaður DV í Reykjavík var í stöðugu símasambandi við heima- menn um það leyti sem lögreglan var að brjótast inn og fór ekki milli mála hvað væri á seyði því þung högg kváðu við. I DV í gær var greint frá síðasta símtalinu við bæinn og sagt að mað- ur, sem greinilega var heitt í hamsi, hefði svarað. Maðurinn var sam- kvæmt heimildum DV sýslumaðurinn í Snæfells- og Hnappadalssýslu, Jó- hánnes Ámason, og samtalið var á þessa leið: „Þú færð ekkert viðtal núna.“' - DV: Hvað er að gerast? „Það kemur þér ekkert við í bili.“ Síðan rauf sýslumaður símasamband við bæinn. Lögreglan lokaði vegunum tveimur sem liggja frá þjóðveginum að bænum og bannaði fréttamönnum aðgang. Heimamenn, sem höfðu búið um sig á bænum, komu til þeirra og þar sem lögreglan leyfði þeim'að fara inn og út af svæðinu að vild sáu fréttamenn að bann sýslumanns var fallið um sjálft sig. Lögregla hindraði ekki för þeirra að öðru leyti en því að blaða- menn DV og sjónvarpsins voru skri- faðir niður. Þess skal getið að Jóhannes Áma- son sýslumaður sagði að aðgerða væri ekki að vænta við Höfða á næstunni er DV talaði við hann í lok síðustu viku. Annað hefúr komið í Ijós. -ás. SPURNINGAKEPPNIN SPRENGISANDUR Vinningar i 8. viku 1 hljómtæki frá Hljómbæ 10 Trivial Pursuit spil 10 úttektirá Coke, Hi-C-vörum 100 máltíðir á Sprengisandi Dregið i 8. umferð þann 3. júli 1986. Skilið svörum inn á Sprengisand i síðasta lagi þann 2. júlí 1986. ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ ¥ $ Frímiði ókeypis Ef þú kaupir einn hamborgara (venjulegan) færðu annan frítt gegn afhendingu þessa miða. Gildir til og með 2. júlí 1986 ★ ★ í ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ l .a.föll hf., *. Khxt*. I A-ihut fréllom Ahh.4. gcfmn úi með kvfi H.im AlJmi InlL I <h **■**+++++++++*+**+++++**+++++*+*+* L ^»Hvað eru margar brýr yfir Hvítá í Borgarfirði? • Hver lumbraði á andstaeðingum sinum í kvikmyndinni Svöitu tígrisaýrin (e. Good Guys \Near Blackp. ™ »Hvaða alþingismaður sagði: .Dag skal að kveldi S J/ lofa en mey að morgni og fjárlóg ei fyrr en að ári"? • í hvaða sögu er sagt frá Eldjárni greifa? V 'ð *Hvað er hrákalumma? í hvaða íþrótt atti Gisli kappi við Þorgrím í #g> Gísla sögu Súrssonarl 4> ? Nafn: Heimili: Póstnr.: Staður: Aldur: Sími:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.