Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Page 4
4
DV. FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1986.
Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir
DV-myndir S.
Ánægðir viðskiptavinir komu hlaðnir út.
Útsöluvínin
Hér birtist listi yfir þær 26 vínteg-
undir sem Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins setti á útsölu í gær.
Aðeins tvær þessara tegunda hafa
verið skráðar á verðlista áfengis-
verslana ríkisins að undanfömu.
Það em rauðvínið Ingelnook, sem
lækkaði úr 790 krónum niður í 500
krónur, og hvítvínið Chardonnay
Christian Brother, sem lækkaði úr
530 krónum niður í 250 krónur.
Burgundy Chr. Brother 200 kr.
Gamay Beaujolais 250 kr.
Ingelnook 1,5 lítri 500 kr.
Almon Cab. Sauv. '/ fl. 140 kr.
Almon Petit Sirah 200 kr.
Cava 200 kr.
Monterey Red 210 kr.
Vina Lanciano 200 kr.
Pinot Noir Focsani 180 kr.
Stani Red 2 lítrar 450 kr.
Nemea Cava 250 kr.
Fiirst Púckler 180kr.
Chenin Blanc Heubl. 200 kr.
Chenin Blane Heubl. 1,51. 450 kr.
Pinot Chardonnay Chr. Br. 250 kr.
Monterey Taylor 200 kr.
Mateus hv. 200 kr.
Aveleda 180 kr.
Mainzer St. Alban 180 kr.
Apelia hv. 450 kr.
Barros Rosé 200 kr.
Calliga Rosé 200 kr.
Celler Rosé 200 kr.
Stani Rosé 200 kr.
Spumante Res. 250 kr.
Pinot di Pinot 180 kr.
-KMU
Ekki apnlgabb í gær
„Rýmingarsala hjá Áfengisverslun- aprílgabb. Þann dag var engin útsala
inni“ var fyrirsögn baksíðufréttar DV í „Ríkinu“.
þann 1. apríl síðastliðinn. Birt var Þeir Höskuldur og Einar létu hug-
mynd af Höskuldi Jónssyni, sem þann myndina um rýmingarsölu hins vegar
dag tók við forstjórastarfinu í ÁTVR, verða að raunvemleika í gær. Reyndar
og Einari Ólafssyni, útsölustjóra í vom margir vantrúaðir í gær á sann-
versluninni við Lindargötu. leiksgildi frétta um útsöluna, minnug-
Þessi frétt reyndist því miður vera ir fyrri frétta. -KMU
Biðraðir eftir
útsöluvininu
„Það er allt orðið vitlaust," sagði
afgreiðslumaður í „Lindargöturíkinu"
í Reykjavík klukkan rúmlega eitt í
gær. Ortröðin i vínbúðinni var þá svip-
uð því sem gerist síðdegis á föstudegi
fyrir verslunarmannahelgi. Ailir vildu
kaupa útsöluvínið. Fengu færri en
vildu.
Fljótlega eftir klukkan níu í gær-
morgun, þegar spurðist að útsala væri
hafin, tók fólk að streyma í Lindar-
göturíkið. Þegar Ríkið opnaði aftur
eftir hádegislokun klukkan eitt höfðu
myndast langar biðraðir fyrir utan.
Útsöluvínið rauk út. Fæstir létu sér
nægja að kaupa eina flöskú. Flestir
keyptu nokkrar og margir heilan
kassa.
Um helmingur tegundanna seldist
upp fyrir hádegi. Um' tvöleytið var
aðeins ein tegund eftir, sú sem mest
var til af; bandaríska rauðvínið Ing-
elnook. Það hreinsaðist út síðdegis.
Um tvö þúsund flöskur af borðvíni
vom seldar á útsölunni í Lindargötu
í gær. Búast má við að þær 600 flösk-
ur, sem boðnar verða á útsölu á
Akureyri í dag, seljist líka fljótlega.
Afelátturinn er vemlegur, yfirleitt
rúmlega þriðjungur. Dæmi em um
meira en helmingsafslátt. Tilgangur
Áfengisverslunarinnar með rýmingar-
sölunni er að losna við vín sem lítið
hafa selst.
Þetta er ekki fyrsta útsala ÁTVR.
Einar Ólafsson, útsölustjóri á Lindar-
götu, sagði að útsölur hefðu tíðkast
fyrir 1960.
Og þetta verður ekki síðasta útsal-
an, að sögn Höskuldar Jónssonar sem
varð forstjóri ÁTVR 1. apríl síðastlið-
inn.
„Við munum ekki hafa þetta með
þessum hætti heldur setja vín í versl-
unina þegar við þurfum að koma því
frá eða rýma. Það gæti verið að ein-
hvem daginn birtust kannski nokkrar
flöskur eða nokkrir tugir flaskna á
sérkjörum," sagði Höskuldur.
-KMU
Rýmingarsala hjá
Áfengisversluninni
-Viljum leggja okkar
afmörkumí
baráttunniviðverö-
bólguna, segir
Höskuldur Jónsson
semtekurviöfor-
stjórastarfinu í dag
„Þes&i verðlekkun getur haft
áhrif á framfærsluvisitOluna sem
svarar tveimur prósentustigum. Við
Þorsteinn Pálsson höfum rctt þetta
ítarlega og ég hef fulla heimild til
aft teþa vinið á þeasu verði," sagfti
Höskuldur Jónsson, fýrrum ráftu-
neytisstjóri f fjármálaráðuneytinu
or nýréftinn forstjóri ATVR.
Hoskuldur tók til starfa i nýjum
húsakynnum nú i morgun. Fyrsta
dagskipun hans var - Allar á/engis-
birgðir skulu lækkaftar um 10 pró-
„Við höfum hugleitt þetta mál'
nokkuð í fjármálaráftuneytinu og i
kjölfar nýrra kjarasamninga þykir
okkur rétt að leggja eitthvaft af
mörkum i baráttunni gegn verft-
bólgunni. Áfengislækkunin ætti að
hjálpa ríkisstjóminni vift að ná yfir-
lýstu takmarki sinu um 7 prósent
verftbólgu í lok ársins." sagði
Hoskuldur Jónsson.
Þá hefur hinn nýráftni foritjóri
ATVR ékveftift að nokkrar tegundir
áfengis veröi teknar af skrá og
óðrum bætt vift: „£g sótti vinsm-
okkunamámskeið í Chantinilly f
S-Frakklandi i síftasta mánufti
ásamt Sigmari B. Haukasvni. Þar
kynntumst vií nokkrum fráhærum
rauftvinstegundum og líkjorum sem
ekkt hafa venft fáanlegir hérá landi
fyrr. Vift gerftum þegar stórar pant-
anir og finr hragftift verftum við að
lcva okkur \ift birgftir gamalla vina.
\'ift a-tlum aft byrja á þvi að selja
Red Bordeaux rauftvin. Martini og
Hols Creme de Banana á niöursettu
veifti."
Heilflaska af Red Bordeaux sem
kostaði 320 krónur kostar nú 100
krónur. Martini kostaöi 680 krónur
Höakutdur Jórraaon, loratjóri ATVR, og Elnar Ólafsaon, útsölustfóri I Afenglsverslunlnnl vlð Undargötu.
attiuga blrgölr nú I morgun: - Vlö verftum að rýma til fyrtr IrAbaenim rauftvlnum og llkjörum frA Chantln-
llly. DV-mynd GVA.
VeM6ídag-l. april:
Þríggja alda
Aprílgabb DV varð að raunveruleika í gær.
I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari
Sjúklingar á heimsmarkaði
Eins og kunnugt er af fréttum eru
hjartaskurðlækningar hafnar á
Landspítalanum. Slíkar hjartaað-
gerðir hafa ekki verið gerðar hér á
landi fyrr, enda hafa íslenskir
hjartasjúklingar ekki verið það
margir fram að þessu að borgað hafi
sig að setja upp heila sjúkradeild
þeirra vegna. Venjan hefur því verið
sú að aðgerðimar hafa verið fram-
kvæmdar erlendis, einkum í Bret-
landi, og drjúgur peningur sparast
með því móti, enda dýrt fyrirtæki
að setja upp sjúkrahús fyrir sjúkl-
inga sem telja má á fingrum annarr-
ar handar.
En læknar eru stolt stétt, sem telur
það fyrir neðan virðingu sína að
senda sjúklinga úr Iandi og þeir
hafaþví árum saman stundað skel-
eggan áróður fyrir því að hjarta-
skurðlækningadeild yrði stofnsett á
íslenskum spítölum. Það hefur og
hjálpað læknunum í þessu baráttu-
máli að hjartasjúkdómar færast í
vöxt, enda er það fylgikvilli í nú-
tímasamfélagi að ganga um með
bilað hjarta. Reykingar, hreyfingar-
leysi og offita era helstu einkenni
þeirrar kynslóðar sem nennir ekki
að leggja það á sig að halda við
heilsunni. Sagt er að hátt á annað
hundrað sjúklingar á ári hafi þurft
að ganga undir uppskurð erlendis
vegna hjarta- og æðakvilla.
Nú eru læknamir sem sagt búnir
að fá þessa uppskurði flutta inn í
landið með sérstakri deild fyrir
næstu fómarlömb og þykir þetta
mikill og merkur áfangi. Langur
vegur er þó frá því að þessar fram-
farir borgi sig fyrir heilbrigðiskerfið,
enda dýrt að reka sjúkradeild af
þessu tagi með fullkomnustu tækjum
og aðbúnaði og sérfræðinga i bak
og fyrir. En sjálfsagt munar ekki um
einn kepp í sláturtíðinni þótt alltaf
sé verið að tala um að heilbrigðis-
geirinn sé að sliga þjóðina í pening-
um talið. Kæmi manni ekki á óvart
þótt Borgarspítalinn og Landakot
fylgdu í kjölfarið á Landspítalanum
með eigin hjartaskurðlækninga-
deildum í samræmi við þá hnífjöfnu
sjálfetæðisstefnu í spítalamálum
þjóðarinnar að gera ekki upp á milli
sjúkrahúsanna.
Það þarf hins vegar ekki glöggan
mann til' að gera sér ljóst að vel er
í lagt þegar ný og fullkomin sjúkra-
deild er opnuð á Landspítalanum til
að skera upp einn sjúkling annan
hvem dag og tæplega þó. Læknamir
og sjúkrahúsyfirvöld hafa því upp-
lýst okkur hin, sem ekki erum
hjartveik og borgum brúsann af
þessari sjálfetæðisbaráttu, að nú séu
mikil og ábatasöm viðskipti í vænd-
um. Landspítalinn ætlar nefnilega
að heíja innflutning á hjartveiku
fólki frá Færeyjum og Grænlandi og
gott ef ekki frá fjarlægari þjóðum
og skera upp í gríð og erg. I DV í
fyrradag er haft eftir Ríkisspítalafor-
stjóranum að heilbrigðisþjónustan
sé heimsmarkaðsvara. Lækningar
em eins og hver annar iðnaður.
Færeyski markaðurinn er að vísu
ekki stór, segir hann, en þar má
byija og færa síðan út kvíamar.
Margt undarlegt hafa íslendingar
flutt inn um dagana. Allt frá dönsk-
um tertubotnum upp í sænska
gluggastangatappa og hefur hug-
myndaflugið verið með ólíkindum
þegar landsmenn vilja flytja inn til
að græða á því. Aldrei hefur samt
íslenskum heildsölum dottið í hug
að það gæti verið gróðavegur að
flytja inn hjartasjúklinga. Stafar það
sennilega af því að þeir hafa ekki
gert sér grein fyrir því sem forstjór-
inn á Ríkisspítölunum hefúr áttað
sig á, að sjúklingar eru heimsmark-
aðsvara og ganga kaupum og sölum
milli lækna.
Eftir því sem fréttir herma úr heil-
bfigðiskerfinu er þess að vænta að
Landspítalinn geti grætt á þessum
sjúklingum milljónir króna og sjá
nú menn fyrir sér að gjaldeyristekjur
þjóðarinnar snarhækki á næstu
árum þegar þeir fara að skera í akk-
orði á Landspítalanum. Kannski
getum við, þegar tímar líða, hætt að
hafa áhyggjur af fisksölunni fyrir
vestan og einblínt á heimsmarkað-
inn á sjúkrastofunum. Þegar spítal-
amir yfirfyllast af aðframkomnum
útlendingum og Borgarspítali og
Landakot og heilsugæslustöðvar vítt
og breitt um landið opna afgreiðslur
fyrir uppskurði á færibandi munum
við loks fara að mala gull. Eins dauði
er annars brauð. Vöruskiptajöfnuð-
urinn verður hagstæður, erlendar
skuldir lækka, gjaldeyrisreikningar
dafria. Þökk sé feitum og hjartveik-
um Færeyingum og Grænlending-
um, sem liggja illa haldnir á spítölum
og em partur af heimsmarkaðinum
sem Islendingar leggja undir sig. Og
þökk sé læknum sem hafa vit á því
að græða á sjúklingum með því að
breyta heilbrigðisþjónustunni í iðn-
aðargróða.
Nú er bara að vona að sem flestir
veikist í útlandinu. Þá blómstrar
nýiðnaðurinn á íslandi. Dagfari