Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1986, Síða 5
DV. FIMMTUDAGUR 26. JUNÍ 1986. 5 Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál „Allir guggnaðir á haustkosningum, segir formaður BJ: „Steingrímur ætlar að steikja Þorstein áá „Ég held að það séu allir guggnaðir á haustkosningum til Alþingis, það er að segja þeir sem ráða hvort þær verða eða ekki. Mér sýnist að Steingrímur hafi fullan hug á að steikja Þorstein í fjárlagagerðinni,11 ségir Guðmundur Einarsson alþingismaður, foimaður Bandalags jafnaðarmanna. Ljóst er þó ■ að stjórnmálaflokkarnir eru ennþá í startholunum og tilbúnir til þess að ryðjast af stað í slaginn verði af kosn- ingum í haust, þá sennilegast í október. Þetta kom fram í samtölum við trún- aðarmenn í öllum starfandi flokkum. Það eru allir viðbúnir og i sumum flokkum, svo sem Alþýðubandalaginu og Alþýðuflokknum, er ýmist unnið að málatilbúnaði eða að það er á döf- inni í sumar. Sveiim H. Skúlason, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisfé- laganna í Reykjavík, sagði að tækni- lega væri ekkert til íyrirstöðu ef af haustkosningum yrði. „Við höfum ekkert velt þessu sérstaklega fyrir okkur ennþá en ég sé persónulega ýmis rök á báða bóga, fyrir haustkosn- 4 ingum annars vegar og vorkosningum hins vegar. Málið liggur einfaldlega í sumardvala eins og er. Mest rætt milli einstaklinga. Fyrir mánuði voru háværar umræð- ur um líklegar Alþingiskosningar í haust. Annars eru þær á áætlun í apríl næsta vor. I stjómarflokkunum er mestur áhugi á haustkosningunum meðal sjálfstæðismanna þótt skoðanir séu skiptar. Meðal annars hefur stjóm Sambands ungra sjálfstæðismanna lýst eindregnum stuðningi við þær. Þingkosningar hafa aftur á móti litið verið ræddar í tumherbergjum flokks- ins, mest milli einstaklinga. í Fram- sóknarflokknum er áhugi á haust> kosningum mun minni. Framsóknarmenn segjast þó tilbúnir ef til þeirra komi. Aðalrökin fyrir haustkosningum virðast vera þau að annars slái saman þingkosningum og almennum kjara- samningum. Við þær aðstæður sé Faskmösfjordur: TæknHtæðingur- inn látinn fara „Það var ákveðið fyrir rúmu ári að fastráða tæknifræðing. Við töldum að fenginni reynslu að það væri ekki nægileg verkefni til lengri tíma litið og því var embætti hans lagt niður,“ sagði Sigurður Gunnarsson, sveitar- stjóri á Fáskrúðsfirði, í samtali við DV. „Tæknifræðingurinn nýttist okkur vel í að koma lagi á fasteignamat. Við töldum að með því að fastráða tækni- fræðing væri hægt að færa til okkar ýmis verkefni sem áður höfðu verið unnin annars staðar. Að fenginni reynslu töldum við þetta ekki rétta leið. Staðurinn er of lítill til að hafa fastráðinn bæjartæknifræðing." - ás./ Ægir, Fáskrúðsfirði. Neskaupstaður: Bæjarstjórinn endurráðinn Þorgerður Mahnquist, DV, Neskaupstað: Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjar- stjómar Neskaupstaðar var haldinn í fyrradag. Á þeim fundi var Ásgeir Magnússon endurráðinn bæjarstjóri með fimm atkvasðum alþýðubanda- lagsmanna en óháðir, sjálfstæðismenn og framsóknarmenn sátu hjá. hætta á að allt fari úr böndunum og að ríkisstjórn sem sé að enda feril sinn sé ekki líkleg til þess að standa skyn- samlega að samningamálum, ekki síst þar sem ríkissjóður sé og verði tómur. Meginrökin fyrir því að kjósa ekki fyrr en í vor eru á hinn bóginn þau að núverandi stjómarflokkar hafi tek- ið að sér hlutverk í kjarasamningum og ríkisfjármálum sem þeir verði að standa við. Brotthlaup frá þeim verk- um jafngildi uppgjöf og muni ekki hafa traustvekjandi áhrif á kjósendur. Að öllu samanlögðu er augljóst að umræður um haustkosningar hafa dofnað. Þær hafa þó ekki sofnað en liggja í sama dvala og stórpólitíkin almennt. „Menn em rétt að ná andan- um ettir sveitarstjómarkosningamar. Hvort það er lognið á undan stormin- um kemur í ljós eftir nokkrar vikur,“ sagði einn viðmælenda DV úr hópi trúnaðarmanna stjómarflokkanna. HERB JUNI UTGAFAN FRA WXRNER HOME VIDEO WXRNER HOME VIDEO WXRNER HOME VIDEO WXRNER HOME VIDEO “BODVHEAT Wll.I.I.AM HURT KATHLEEN7URNER anU RJCHARD CRIiNNA WriUert and DireUedJylA’WRf.NCE KASDAN Fiudúoed by IRED T. GALt.O '■ ' ucuNia>u»<' ■ AS.AWKJ)M('AM 8Rlf. V.» n...Áti l:BOM WtflNCH BOOS ® AVaARNERœMMUNtCATIONS COtvtPANY BODY HEAT Body Heat er stórkostleg ástar- og sakamálamynd sem hvar- vetna hefur notið geysilegra vinsælda, ekki hvað síst fyrir frábæra frammistöðu leikaranna: Kathleen Turner (Prizzi's Honor-Jew- el of the Nile -■ Romancing the Stone) og Williams Hurt (sem fékk óskarsverðlaunin '86 fyrir leik sinn I Kiss of the Spider Woman). Það þarf vart fleiri vitna við. Body Heat er mynd sem stoppar ekki í hillum myndbandaleiganna. 11« mmssinEiitfWi kr\nkmakshaii, nxnum klsmoy -WHAmmm, H\R\TYfMi*w> mmumm mw WVtNER 8ftOS $ Y NYJASTA MYND STEVENS SPIELBERG THE GOONIES Steven Spielberg lætur ekki deigan síga. Hér hefur hann samein- að það besta úr Raiders of the Lost Ark - E.T. - Close Encounters - Jaws og Peter Pan I einni mynd og útkoman er ein allra besta og skemmtilegasta ævintýramynd sem gerð hefur verið. % XMNmenu • uisffl*iiRAn£« Fx><Má»b«irK)rmu KVS UMVXAUt.ASX, . f ffCJM W«NER BOOS $ AVWINfBCXiMMUNtCAtlOf-iS COMP»\NY LISA I UNDRALANDI Þeir eru vafalaust fáir sem ekki hafa einhvern tímann skemmt sér yfir hinu sígilda ævintýri um Lísu í Undralandi. Þessi útgáfa er leikin og er á tveim spólum. Mikill fjöldi frábærra leikara hef- ur hér lagt hönd á plóginn, svo sem Sammy Davis Jr., Shelly Winters, Telly Savalas, Roddy McDowall, Patrick (Bobby) Duffy, Ringo Starr og Scott Baio. WXRNER HOME VIDEO SUPERMAN SUPERBOY BATMAN AQUAMAN Bestu barnaplur sem völ er á. Þessar frábæru hetjur úr teiknimyndasögunum eru nú komnar á myndbönd. WARNER barnamyndir eru fyrsta flokks sem krakkarnir horfa á aftur og aftur og aftur... TIL DREIFINGAR Á MYNDBANDALEIGUM Í DAG. ALLAR MEÐ ÍSLENSKUM TEXT’A ■ rTEFIJ 1 Leikið rétta leikinn—takið mynd fráTEFU Tefli faf. Einkaréttur á íslandi fyrir Warner Home Video Leikið réttaleikimi—takið myndfráTEFU Sídumúla 23, 108 Reykjavík ® 91-68 62 50 / 68 80 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.