Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
9
Ferðamál
Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri Islands Tours, í fyrstu miðnætursólarferðinni. „Hefði verið hægt að selja Hamborgararnir voru vel tækjum búnir í dagsreisunni. Hér er myndað
mun meira, þessi ferð seldist upp á 10 dögum.“ þegar þeyst er yfir norðurheimskautsbaug við Grímsey. Yfir bauginn og
skjal upp á það. ^
Hamborgarar skruppu í sólina til Islands
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Flug Amarflugs til Hamborgar í
Þýskalandi hefur gengið mjög vel en
það hófst í apríl. Flogið er einu sinni
í viku en ráðgert er að fljúga tvisvar
í viku í haust. Og það er meira og
minna fullt í ferðimar til Hamborgar
„grænustu borgar Evrópu" eins og
hún hefur verið kölluð.
Það virðist líka vera kraftur í starf-
semi félagsins í Hamborg. Fram-
kvæmdastjórinn þar, Peter
Wensauer, sá fram á að Boeing 737
þota félagsins yrði stopp þar vegna
leiguflugs 22. jú.ií. Hann hafði því
samband við Islands Tours í Ham-
borg og ferðafrömuðinn Paul
Gunther til að selja í ferð til íslands
- yfir heimskautsbauginn og í mið-
nætursólina.
„Það hefði verið hægt að selja mun
meira, þessi ferð seldist upp á 10
dögum,“ sagði Ómar Benediktsson,
framkvæmdastjóri Islands Tours i
Hamborg, fyrirtækis í eigu hans og
þeirra Skúla Þorvaldssonam, Hótel
Holti, og Böðvars Valgeirssonar,
Atlantik.
Flogið var frá Hamborg, yfir
Vatnajökul, Mývatn og síðan norð-
urheimskautsbauginn við Grímsey.
Lent var á Akureyri og þaðan ekið
með hópinn til Mývatns og Goða-
foss. Undir miðnættið var svo aftur
haldið í loftið frá Akureyri.
„Þetta er nýr markaður, fólk sem
kæmi aldrei annars til íslands. Von-
andi verður ferðin til að kveikja
áhuga hjá því til að koma aftur og
hafa þá lengri viðdvöl," sagði Ómar.
Þessi dagsferð til íslands kostaði
um 13 þúsund krónur. Áhuginn var
mikill, tveir komu frá Sviss, þá voru
farþegar frá Múnchen, Dússeldorf
og Köln en flestir komu frá Hamborg.
Síðan hefur önnur miðnætursólar-
ferð til íslands verið farin og sú
þriðja er í bígerð í ágúst. Svo er bara
að sjá hvort Þjóðverjarnir láta sjá
sig aftur næsta sumar.
-JGH
Hamborg séð úr sjónvarpsturninum þar að kvöldi. Falleg borg, enda hafa ferðir Arnarflugs þangað i sumar geng-
iö framar vonum.
REYR-húsgöcn fráspáni
ikyck
Hamborg er kölluð „grænasta borg Evrópu“, sagt er að í engri annarri
borg sé eins mikið af trjám. Hún er jafnframt mesta verslunarborg Þýska-
lands.
Mvndír Kristián G. Arnarímsson
Jli
KORT
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
IRALIYl
CROSS
Rallycross- og Motocross-keppni á
sunnudaginn kl. 14.00 við Kjóavelli.
í síðustu keppni fylgdust 2000 manns með hörku
kappakstri á keppnisbraut BÍKR og nú endurtökum
við leikinn.
Miðaverð kr. 150 og ókeypis fyrir börn í fylgd með
fullorðnum.