Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Blaðsíða 15
LAUGAKDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
15
Kleíf Malloiy Everest á undan Hillaiy?
Ein af óleystum gátum fjallgöngu-
sögunnar er hvort Bretunum George
Mallory og Andrew Irvine lánaðist að
klífa tind Everest árið 1924 áður en
beir létu lífið á fjallinu.
Bandaríski auðjöfurinn Thomas
Holzel er sannfærður um að þeir Mall-
ory og Irvine hafi verið fyrstir á hæsta
fjall jarðar. Hann hefur sett saman
leiðangur sem leggur á Everest nú
eftir helgina í leit að líkum Bretanna
og umfram allt myndavélinni þeirra.
„Ef við finnum líkin þá tel ég víst
að myndavéhn finnist líka. Það er
ólíklegt að þeir hafi skilið hana við
sig," er haft eftir Holzel. „Ef mynda-
véhn finnst er fullvíst að það sést á
filmunum hvort þeir hafa tekið mynd
af toppnum. Filmurnar hafa legið í
frosti þessa áratugi sem liðnir eru síð-
an Mallory og Irvine fórust."
Pjallgöngukappinn Georg Mallory
varð á sínum tíma frægur fyrir svar
sitt við spurningunni til hvers hann
ætlaði að klífa Everest. „Af því að það
er þarna," svaraði hann fyrir sig og
alla fjallgöngumenn á öllum tímum.
Meðal fjallgöngumanna hefur Mall-
ory löngu verið settur á bekk með Sir
Edmund Hillary, sem með vissu kom
fyrstur á tind Everest ásamt Tensing
Norgay árið 1953 eftir að hafa fundið
betri leið en Mallory.
Mallory var 37 ára þegar hann fórst.
Hann var skólakennari að atvinnu en
var þekktari í heimalandi sínu fyrir
afrek í heimsstyrjöldinni fyrri. Arum
saman vann hann að því hörðum
höndum að gera út leiðangur á tind
Everest. Sumarið 1924 lagði hann til
atlögu við tindinn. Leiðangursstjóri í
ferðinni var landi hans, Edvard Nor-
ton, en Mallory gekk honum næst að
völdum. Það var hins vegar hlutverk
Mallorys að fara á tindinn. „Mallory
var lífið og sálin í þessum hópi," sagði
leiðangursstjórinn, Norton, síðar. „Ég
held að hann hafi alltaf litið þetta
verkefhi öðrum augum en við féíagar
hans. Allt líf hans snerist um þessa
ferð."
Leiðangursmenn vörðu nokkrum
mánuðum vorið 1924 til að koma upp
búðum aðeins um 700 metra frá tindin-
um. Þaðan lógðu þeir Mallory og
Irvine upp þann 6. júni í seinasta
áfangann á toppinn. I för með þeim
áleiðis upp var aðstoðarmaður sem sá
þá seinast 244 metra frá tindinum. Þar
hurfu þeir sjónum í hríðarmuggu og
veit enginn hvað gerðist síðan.
Holzel, sem nú leitar að lausn á gát-
unni, telur að eftir að svo stutt var á
toppinn hefði ekkert átt að hindra för
Mallorys á toppinn. Hann var þraut-
reyndur fjallgöngumaður og ákveðinn
í að komast alla leið.
Þeir sem síðar hafa lagt til atlögu
við Everest hafa flestir farið aðra leið
en þeir Mallory og Irvine. Þó er vitað
að Kínverji reyndi að fara þessa sömu
leið árið 1979. Hann hafði samband
við aðstoðarmenn sína í talstöð og
r sagðist hafa gengið fram á lík af Eng-
lendingi. Kínverjinn hlaut síðan sömu
örlög og Mallory og Irvine og lét lífið
á fjallinu.
Leiðangur Holzels á samkvæmt
áætlun að hefja gönguna á sjálft fjall-
ið um mánaðamótin ágúst/september.
Gert er ráð fyrir að ferðin upp taki
allt að þremur mánuðum. Ferð á tind
Everest er og verður þrekvirki þrátt
fyrir að útbúnaður til fjallgöngu hafi
batnað stórum síðan fyrst var reynt
við tindinn. Að því er best er vitað
hafa 175 menn komist alla leið en 75
menn hafa látið lífið á þessari erfiðu
leið.
„Ég er orðinn 45 ára," segir Holzel,
„og þarf því ekki að gera ráð fyrir að
komast alla leið. Ég fer eins langt og
ég get." Hann er þó viss um að kom-
ast þangað upp sem líkið af Mallory
eða Irvine sást um árið. „Ef það er
jafnhátt uppi og við höldum þá held
ég að flestir muni trúa því að Mallory
hafi komist á tindinn," segir Holzel.
Og jafnvel þótt ekkert finnist þá er
Holzel þeirrar skoðunar að ferðin hafa
engu að siður ekki*verið erindisleysa.
„Það er leitin sem skiptir máh," segir
Holzel. „Ég fer ekki í þennan leiðang-
ur vegna þess að fjallið er þarna eins
og Mallory orðaði það. Það er löngun-
un til að afhjúpa leyndardóm sem
rekur mig áfram."
Reuter/-GK
¦'"tÉPi
Athyglin
beinist að
CANDY
uppþvottavélinni
Verð kr. 32.750 (stgr.)
Góöir
af borgunarskil málar.
PFAFF
Borgartúni 20
Sumir trúa því aö nærri Undi Everest leynist sönnun þess hver fór fyrstur á
tJndinn.
Heilsugæslustöðin Fossvogi
Breytt símanúmer
Frá og með mánudeginum 11. ágúst verður síma-
númer stöðvarinnar
696780
Reykjavík, 7. ágúst 1986.
Borgarspítalinn.
Ford Fairmont árg. 1980, CMC þlckup árg. 1978, meiri- Wagoneer árg. 1978, góður Cherokee árg. 1979, alvöru Dodge Ramcharger árg.
stórglæsilegur bíll," aðeins háttar ferðabíil, 8 cyl., jeppi, 8 cyl., sjálfsk., aflstýri. jeppi, 8 cyl., sjálfsk., aflstýri 1979, 8 cyl., sjálfsk., aflstýri
-¦*.^.: _,._...... _--.__.__*__.! o.fl.
ekinn 30 þús. km, 6 cyl., sjálfsk., aflstýri, veltistýri
sjálfsk., aflstýri. rafm. í rúðum o.fl. o.fl., að
eins ekinn 60 þús km.
Bílarnir eru til sýnis og sölu
hjá Jöfri hf., Nýbýlavegi 2,
Kópavogi.
Opið í dag 1
o.fl.
Ath. góð kjör.
Toyota Carina árg. 1978,
beinsk. 4 gíra, ath. gott verð
og greiðslukjör.
JÖFUR hf.
Nýbýlavegi2 - Kópavogi - Simi 42600