Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1986, Page 15
LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 1986.
15
Kleif Malloiy Everest á undan Hillary?
Ein af óleystum gátum fjallgöngu-
sögunnar er hvort Bretunum George
Malloiy og Andrew Irvine lánaðist að
klífa tind Everest árið 1924 áður en
þeir létu lífið á §allinu.
Bandaríski auðjöfurinn Thomas
Holzel er sannfærður um að þeir Mall-
ory og Irvine hafi verið fjTstir á hæsta
fjall jarðar. Hann hefur sett saman
leiðangur sem leggur á Everest nú
eftir helgina í leit að líkum Bretanna
og umfram allt myndavélinni þeirra.
„Ef við finnum líkin þá tel ég vist
að myndavélin finnist líka. Það er
ólíklegt að þeir hafi skilið hana við
siger haft eftir Holzel. „Ef mynda-
vélin finnst er fullvíst að það sést á
filmunum hvort þeir hafa tekið mynd
af toppnum. Filmumar hafa legið í
frosti þessa áratugi sem liðnir eru síð-
an Mallory og Irvine fórust."
Fjallgöngukappinn Georg Mallory
varð á sínum tíma frægur fyrir svar
sitt við spumingunni til hvers hann
ætlaði að klífa Everest. „Af því að það
er þama,“ svaraði hann fyrir sig og
alla fjallgöngumenn á öllum tímum.
Meðal fjallgöngumanna hefur Mall-
ory löngu verið settur á bekk með Sir
Edmund Hillary, sem með vissu kom
fyrstur á tind Everest ásamt Tensing
Norgay árið 1953 eftir að hafa fundið
betri leið en Mallory.
Malloiy var 37 ára þegar hann fórst.
Hann var skólakennari að atvinnu en
var þekktari í heimalandi sínu fyrir
afrek í heimsstyrjöldinni fyrri. Arum
saman vann hann að því hörðum
höndum að gera út leiðangur á tind
Everest. Sumarið 1924 lagði hann til
atlögu við tindinn. Leiðangursstjóri í
ferðinni var landi hans, Edvard Nor-
ton, en Mallory gekk honum næst að
völdum. Það var hins vegar hlutverk
Mallorys að fara á tindinn. „Malloiy
var lífið og sálin í þessum hópi,“ sagði
leiðangursstjórinn, Norton, síðar. „Ég
held að hann hafi alltaf litið þetta
verkefni öðrum augum en við félagar
hans. Allt líf hans snerist um þessa
ferð.“
Leiðangursmenn vörðu nokkrum
mánuðum vorið 1924 til að koma upp
búðum aðeins um 700 metra frá tindin-
um. Þaðan lögðu þeir Malloiy og
Irvine upp þann 6. júni í seinasta
áfangann á toppinn. f för með þeim
áleiðis upp var aðstoðarmaður sem sá
þá seinast 244 metra frá tindinum. Þar
hurfú þeir sjónum í hríðarmuggu og
veit enginn hvað gerðist síðan.
Holzel, sem nú leitar að lausn á gát>
unni, telur að eftir að svo stutt var á
toppinn hefði ekkert átt að hindra för
Mallorys á toppinn. Hann var þraut-
reyndur fjallgöngumaður og ákveðinn
í að komast alla leið.
Þeir sem síðar hafa lagt til atlögu
við Everest hafa flestir farið aðra leið
en þeir Mallory og Irvine. Þó er vitað
að Kínverji reyndi að fara þessa sömu
leið árið 1979. Hann halði samband
við aðstoðarmenn sína í talstöð og
r sagðist hafa gengið fram á lík af Eng-
lendingi. Kínveijinn hlaut síðan sömu
örlög og Malloiy og Irvine og lét lífið
á fjallinu.
Leiðangur Holzels á samkvæmt
áætlun að hefja gönguna á sjálft fjall-
ið um mánaðamótin ágúst/september.
Gert er ráð fyrir að ferðin upp taki
allt að þremur mánuðum. Ferð á tind
Everest er og verður þrekvirki þrátt
fyrir að útbúnaður til fjallgöngu hafi
Sumir trúa því að nærri tindi Everest leynist sönnun þess hver fór fyrstur á
tindinn.
batnað stórum síðan fyrst var reynt
við tindinn. Að því er best er vitað
hafa 175 menn komist alla leið en 75
menn hafa látið lífið á þessari erfiðu
leið.
„Ég er orðinn 45 ára,“ segir Holzel,
„og þarf því ekki að gera ráð fyrir að
komast alla leið. Ég fer eins langt og
ég get.“ Hann er þó viss um að kom-
ast þangað upp sem líkið af Mallory
eða Irvine sást um árið. „Ef það er
jafhhátt uppi og við höldum þá held
ég að flestir muni trúa því að Malloiy
hafi komist á tindinn," segir Holzel.
Og jafnvel þótt ekkert finnist þá er
Holzel þeirrar skoðunar að ferðin hafa
engu að síður ekki*verið erindisleysa.
„Það er leitin sem skiptir máli,“ segir
Holzel. „Ég fer ekki í þennan leiðang-
ur vegna þess að fjallið er þama eins
og Mallory orðaði það. Það er löngun-
un til að afhjúpa leyndardóm sem
rekur mig áfiam.“
Reuter/-GK
Verð kr. 32.750 (stgr.)
Góðir
afborgunarskilmálar.
Borgartúni 20
Heilsugæslustöðin Fossvogi
Breytt símanúmer
Frá og með mánudeginum 11. ágúst verður síma-
númer stöðvarinnar
696780
Reykjavík, 7. ágúst 1986.
Borgarspítalinn.