Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1986.
Fréttir
AlþingS:
Skorað á Matthías
að fara til Moskvu
„Ég veit að Sovétmenn bera meiri
virðingu fyrir ráðherrum en Islend-
ingum og því skora ég á viðskipta-
ráðherra, Matthías Bjamason, að
fara til Moskvu og hefja viðræður á
ráðherraplani til að leysa síldar-
samningamálin," sagði Guðmundur
J. Guðmundsson alþingismaður í
utandagskrárumræðum á Alþingi í
gær. Guðmundur hóf umræðuna og
benti á þá erfiðleika sem blöstu við
verkafólki og sjómönnum allt frá
Austurlandi að Reykjanesi ef ekki
tækist að leysa síldarsölumálin við
Sovétmenn. Sagði Guðmundur að
fyrst ástæða hefði þótt til að senda
ráðherra til Bandaríkjanna vegna
hvalamálsins, sem væri smámál mið-
að við síldarmálið, þá væri full
ástæða til þess að Matthías Bjama-
son færi nú til Moskvu.
Matthías Bjamason sagði eðlilegt
að hreyfa þessu máli á Alþingi. Rakti
hann síðan ástæður þess að Sovét-
menn bjóða svo lágt verð sem raun
ber vitni en það er undirboð Norð-
manna og Kanadamanna. Síðan
sagðist Matthías hafa sent orðsend-
ingu til sovéska viðskiptaráðherrans
í gegnum sendiráðið í Reykjavík en
svar hefði enn ekki borist. Aftur á
móti sagðist Matthías hafa sagt það
áður að hann væri tilbúinn að fara
til Moskvu ef það mætti verða til
að leysa málið en sagðist ekki fara
nema líkur væm á lausn.
„Islensk samninganefhd er nú í
Moskvu að semja um olíukaup en
það verður ekki að svo stöddu skrif-
að undir neina olíusamninga við
Rússa,“ sagði Matthías Bjamason.
Margir aíþingismenn tóku til máls
og vom allir á einu máli um að leysa
yrði þetta viðkvæma mál sem allra
fyrst. -S.dór
Ísland/Pólland:
Síld fyrir skip
Líkur em á að hægt verði að selja
verkaða síld til Póllands í nokkrum
mæli en í staðinn taki Pólveriar að sér
bæði nýsmíði og breytingar á fiski-
skipum fyrir íslendinga. Nú er í
smíðum í Póllandi skip fyrir Gísla
Jóhannsson sem hann fékk leyfi til
að láta smíða í stað Jóns Finnssonar
RE sem hann seldi til Chile fyrir
tveimur árum.
Halldór Asgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði í samtali við DV að
nokkrir aðilar hefðu leyfi til að láta
smíða fyrir sig skip vegna reglna um
úreldingu. Þessir aðilar hefðu sökkt
skipunj sínum og fengið greitt úr úr-
eldingarsjóði. Sömuleiðis stendur til
að stækka og breyta japönsku togur-
unum og ef samningar takast við
Pólverja gætu þau verkefni farið fram
i Póllandi. Pólverjar vilja kaupa af
okkur síld en gjaldeyrissjóðir þeirra
em tómir, þannig að síldarsala tií
Póllands yrði að vera á þessum nótum.
I september áttu sér stað viðskipta-
viðræður milli íslendinga og Pólverja.
Þá bar þessi mál á góma og var þeim
vel tekið en ekkert hefur enn verið
ákveðið í þessum efiium.
-S.dór.
Leitarmenn í Bláfjöllum:
í erfiðleikum með að fá kaffi
Björgunarsveitarmenn, sem tóku
þátt í leitinni að rjúpnaskyttunm á
Bláfjallasvæðinu í síðustu viku, þurftu
að beita fortölum- til að fá kaffi sér til
hressingar í þjónustumiðstöðinni í
Bláfjöllum. En þangað fóm þeir í hvild
snemma á fimmtudagsmorgun eftir
erfiða leit um nóttina.
Að sögn eins leitarmanna þurfti eft-
irgang til að fá kaffi þar sem þeir vom
ekki með pening til að borga sopann,
en það tókst um síðir og var þeim þá
sagt að þeir gætu fengið afgang frá
vegagerðarmönnum frá deginum áður.
Hann sagði að menn hefðu verið að
furða sig á því að það hefði ekki verið
neinn viðbúnaður í skálanum í tengsl-
um við leitina.
-SJ
Fáskmðsfjörður:
Sfld landað f grið og eig
Ægix Kxistinsgan, DV, Fáskrúðsöröi:
Snæfari RE landaði í gær um 80 tonn-
um af síld hjá Pólarsíld hf. og hefur
hann þá klárað kvóta sinn á þessari
vertíð, alls um 700 tonn. Þorri SU fer
á sfld næstkomandi föstudag. Skip-
stjóri þar verður Friðrik Stefánsson.
I gærmorgun kom Sólborg SU með
um 45 tonn af sfld sem söltuð verða
hjá Sólborgu hf. og er það fyrsta söltun
á þessari vertíð þar. Sfldin fékkst í
Mjóafirði.
Nýtt hagsmunafélag:
Lagnafélag íslands
Stofhað hefur verið nýtt hags-
munafélag sem nefnist Lagnafélag
íslands. Tilgangur félagsins er að
auka samskipti manna sem vinna
að hvers konar lögnum í hús, allt frá
holræsalögnum til nákvæmustu
hitalagna. Þeir sem að stofnun fé-
lagsins standa eru verkfræðingar,
tæknifræðingar, blikksmiðir, pípu-
lagningarmenn, seljendur efnis til
lagna og rafmagnsfræðingar í stýri-
búnaði.
Að sögn Kristjáns Ottossonar,
starfsmanns byggingardeildar borg-
arverkfræðings, sem kjörinn var
formaður félagsins, hefur undirbún-
ingur að stofnun félagsins staðið yfir
með hléum allt frá 1979. Hann sagð-
ist svo hafa tekið um það ákvörðun
sl. haust að hefjast handa um undir-
búning að stofnun félagsins. Kristj-
án hafði samband við 39 aðila úr
fyrmefndum greinum og voru allir
jákvæðir. Undirbúningsfúndur um
stofnun félagsins var svo haldinn 15.
maí sl. og mættu þar 19 aðilar.
Á þeim fundi var rætt um hlutverk
og tilgang félagsins og kosin undir-
búningsnefhd. Þar var ákveðið að
hlutverk félagsins yrði að stuðla að
þróun lagnatækni og gagnkvæmum
skilningi þeirra stétta sem að lagna-
málum ynnu. Tilgangi sínum hyggst
félagið ná með því að skipuleggja
fyrirlestra og námskeið ásamt útgáfu
fræðslubæklinga, stuðla að rann-
sóknum, stöðlun og tæknilegum
umbótum í lagnatækni, stuðla að og
fylgja eftir hæfhi og menntunarkröf-
um þeirra er að lagnatækni vinna
og að taka þátt í alþjóðasamstarfi á
sviði lagnatækni.
Stjóm Lagnafélags íslands, talið frá vinstri: Jonas Valdimarsson pipulm.,
Jón Sigurjónsson verkfr., Rafn Jensson verkfr., Guðmundur Halldórsson
verkfr., Kristján Ottosson, formaður félagsins, Einar Þorsteinsson tæknifr.
og Sæbjöm Kristjánsson tæknifr.
Jólatrén hækka og byrðin þyngist um næstu jól.
Tveir mánuðir til jóla:
Jólatré hækka
Gera má ráð fyrir að innflutt jólatré
hækki um þriðjung um þessi jól en
innlend eitthvað minna. Meðalverð
fyrir rúmlega metra hátt tré verður
um 2000 krónur.
„Ætli við þurfum ekki 30 þúsund tré
til að mæta þörfinni að þessu sinni,“
sagði Kristinn Skæringsson hjá Skóg-
rækt ríkisins. „Þar af fellum við 10-12
þúsund tré hér innanlands en hitt
verður innflutt, mest af jósku heiðun-
um í Danmörku."
um 30 prósent
íslensku trén eru að mestum hluta
rauðgreni en eitthvað er einnig um
staffuru. Innfluttu trén eru hins vegar
svokallað normansgreni sem ekki er
hægt að rækta hér á landi svo nokkru
nemi.
„Jólatréssala hefst af fullum krafti
strax um miðjan næsta mánuð. Þá
byrja aðventuskreytingamar," sagði
Kristinn Skæringsson.
-EIR