Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1986, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1986.
11
Fréttir
Akureyri:
Þama var fjölskylda Helenu i skoðunarleiðangri um fjöruna þegar skotmennina bar að á bát sínum. DV-mynd JGH Trillumennimir hófu ákafa skothrið á selinn fyrir augunum á börnunum.
Jón G. Hauksson, DV, Akureyii
„Við hjónin vorum að sýna krökk-
unum fjöruna og það verð ég að segja
að við trúðum ekki okkar eigin augum
þegar mennimir komu á bátnum og
hófu skothríð á selinn sem var í um
100 metra fjarlægð frá okkur í ijö-
runni,“ sagði Helena Dejak húsfreyja
á bænum Pétursborg sem er steinsnar
frá Akureyri.
Helena er gift Vilhjálmi Inga Áma-
syni menntaskólakennara og reka þau
gistiheimili að Pétursborg. Þau vom
stödd í fjörunni fyrír neðan bæinn á
sunnudegi fyrir rúmri viku með böm-
unum sínum, 5 og 7 úra, og 9 ára
stúlku frá næsta bæ.
„Við sáum selinn sem var nálægt
flæðarmálinu og gengum í átt að hon-
um. Bömin fóm að gantast við hann.
Eftir smátíma komu mennimir á trill-
unni siglandi. Það virtist ekki skipta
þá neinu máli þótt við værum þama,
þeir skutu samt á selinn fyrir framan
bömin.“
Helena sagði enn fremur að það
væri ótilhlýðilegt af mönnunum að
skjóta á sel fyrir framan böm sem
væm að fylgjast með. „Eins vorum við
það nálægt að ekkert mátti út af bera,
mennimir á báti og það þurfti ekki
nema örlitla öldu til að þeim fataðist
í skothriðinni.
Ég skil ekki svona menn. Vissulega
er ekkert okkar fullkomið en það nær
ekki nokkurri átt að skjóta á sel sem
er skammt frá fólki," sagði Helena.
Gróðahyggja
verði könnuð
Svavar Gestsson og Ragnar Amalds,
þingmenn Alþýðubandalags, hafa lagt
fram þingsályktunartillögu um að Al-
þingi kjósi þingmannanefnd „til að
kanna afleiðingamar af þeirri óheftu
markaðs- og gróðahyggju sem ríkis-
stjóm Steingríms Hermannssonar
hefur byggt stefhu sína á“.
Ljóst sé að markaðshyggjan - auð-
hyggjan - hafi sett svip sinn á allt
þjóðfélagið í vaxandi mæli; ekki aðeins
verslunarálagningu og vaxtaokur,
heldur hafi stefiian einnig komið fram
í öllu lífi fiölskyldnanna, lélegum
kaupmætti launa, byggðaröskun og
landflótta, öryggisleysi í skólakerfinu
og vannýtingu heilbrigðisstofnana
langtímum saman.
Vilja flutningsmenn að þingmanna-
nefhdin beiti sér einkum að því að fá
svar við fiórtán spumingum, sem þeir
tilgreina. Skuli hún starfa svo hratt
að hún geti skilað áliti fyrir næstu
þingkosningar.
-KMU
I
KWRIR?
CERICOMPLEX • ÞEGAR GEFUR A BÁTINN
Gericomplex er ekkert undralyf.
Það skilar einfaldlega árangri. Og þá
verðasumirundrandi. Þeireru hressari
á morgnana, vinna betur á daginn og
sofa betur á nóttunni.
Gericomplex inniheldur 10
steinefni, 11 vítamín og GinsengG115.
Þessvegna er það einstakt.
Gericomplex hjálpar líkamanum að
byggja upp, eflir hann og styrkir.
Hugsaðu um heilsuna. Hún er
dýrmæt þegar gefur á bátinn.
'••‘-f-íi'cfex
Þú færð Gericomplex í næstu lyfjabúð.
l€ilsuhúsið
Skólavörðustig 1 Simi: 22966 101 Reykjavik.
Gerlcomplax - þvl hellsan sklptlr máll