Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Qupperneq 12
12
MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1986.
Neytendur
Hvað kostar að
senda jólapakk-
ana til útlanda?
„Það eru síðustu forvöð að senda jóla-
pakkana fyrstu vikuna í desember svo
þeir nái örugglega til viðtakenda fyrir
jól,“ sögðu þeir okkur á pósthúsinu í
Ármúla.
Ef koma á jólapökkum í tæka tíð til
ættingja og vina erlendis er best að
snúa sér að því sem fyrst.
Skipaferðir eru einu sinni í viku
héðan en flugferðir eru mun oftar.
Skipapóst til Norður-Ameríku og
Suður-Evrópu þarf að póstleggja í síð-
asta lagi 25. nóvember og til Norður-
Evrópu og Norðurlandanna ekki síðar
en 2. desember. Þannig er síðasti dag-
ur á morgun fyrir skipapóst til
N-Ameríku og S-Evrópu ef hann á að
komast örugglega til skila fyrir jól.
Flugbögglapóst íil Ástralíu, Asíu,
Afríku og Su'iur-Ameríku þarf að
póstleggja ekki síðar en um næstu
mánaðamót. Flugböggla til N-Amer-
íku og S-Evrópu þarf að póstleggja
ekki síðar en 5. desember og til N-
Evrópu 10. desember.
Pakkana þarf að merkja vel og gæta
þess að ekkert vanti, nafh viðtakanda,
heimilsfang, póstnúmer og gleymið
ekki nafhi sendanda. Það er ekki síður
áríðandi að búa vel um pakkann. Fyl-
lið vandlega út skýrsluna um innihald
pakkans. Það er mjög gott að ná sér
í skýrsluna og fylla hana út heima.
Það getur oft ruglað fólk í ríminu að
fylla út skýrslumar á pósthúsunum
þar sem allt er iðandi af fólki og mik-
ill skarkali og læti.
Þess ber að gæta að ef verið er að
senda kjöt þarf það að vera vakúm-
pakkað og þarf að fylgja vottorð frá
dýralækni. Ekki er leyfilegt að lokað
bréf sé í bögglinum.
Ef þessu er ekki framfylgt er það á
ábyrgð sendanda hvort pakkinn kemst
á áfengastað.
Það er best að nota góða og sterka
pappakassa undir bögglana. Á póst-
afgreiðslunum fást sérstaklega
hannaðir kassar á sanngjömu verði.
Sjá mynd. Það er gott að vita hvað
það kostar að senda böggulinn áður
en komið er á pósthúsið. Við tókum
saman verðskrá sem fylgir hér með.
Hún er reiknuð út fyrir 1/2 kg og allt
upp í 5 kg. Skráð er verð til tólf landa.
Það kostar mismunandi mikið að
senda pakkana eftir löndum. Það er
verðmunur á öllum Norðurlöndunum
nema á smápökkunum, þar er upp-
hæðin sú sama. Smápakkar em
Stærsti kassinn kostar 37 kr., sá í miðið 27 kr. og sá minnsti kostar 21 kr.
pakkar sem ekki mega vera þyngri en
1 kg og er verð á þeim allstaðar það
sama.
Af Norðurlöndunum er dýrast að
senda pakka til Noregs. Það kostar
360 kr. að senda 1 kg pakka þangað
en 300 kr. til Finnlands. Þetta er
skrítið að ódýrara sé að senda pakka
til Finnlands en Noregs þar sem
lengra er til Finnlands. Einnig er
athyglisvert að það er ódýrara að
senda 1 kg pakka til Bandaríkjanna
en til Noregs.
-BB
Danmörk Noregur *o 'O '> Finnland Færeyjar USA Kanada Lúxemborg Bretland N-írland Frakkland A-Þýskaland V-Þýskaland
Flugpóstur
Verð 0,5 kg 204 340 246 265 188 256 292 259 315 315 431 304 234
verð 1,0 kg 224 360 271 300 197 320 389 286 338 338 469 333 268
verð 1,5 kg 287 434 331 383 240 532 470 381- 428 428 580 426 336
verð 2,0 kg 312 454 357 418 249 596 537 409 451 451 618 456 367
verð 2,5 kg 337 475 382 454 258 660 604 436 474 474 655 486 398
verð 3,0 kg 363 495 407 489 267 728 671 463 497 497 693 516 428
verð 3,5 kg 433 561 479 571 322 933 791 559 587 587 813 605 513
verð 4,0 kg 458 581 504 606 331 997 858 586 610 610 850 634 544
verð 4,5 kg 483 602 529 642 340 1061 925 613 633 633 888 664 575
verð 5,0 kg 508 622 557 677 349 1125 992 641 656 656 925 694 605
Skipapóstur
Verð1 kg 191 289 238 247 198 190 258 244 304 304 295 296 215
verð 3 kg 240 362 297 318 257 357 363 327 387 387 365 393 272
verð 5 kg 306 432 377 398 337 527 483 417 476 476 461 496 348
Smápakkar Innanl. og til Norðurl. Önnur Evrópul. Utan Evr.bl. Pakkar innanl.
0,100 kg 13 13 13 5 kg 90
0,250 kg 24 24 24 10 kg 140
0,500 kg 43 43 43 15 kg 205
1,000 kg 72 72 72 20 kg 230
Af hverju
heimilis-
bókhald?
„Þá er komið að októbermán-
uði. Matarliðurinn var óvenjuhár
en það kemur til af því að keypt
var slátur fyrir kr. 2220 kr. og kjöt-
skrokkur fyrir kr. 2638,“ segir m.a.
í bréfi frá Akureyri.
Fjölskyldan er fjögurra manna
og meðaltalskostnaðurinn rúm-
lega 6700 kr. á mann.
„Ástæðan fyrir því að ég deili
ekki kostnaðinum niður á árið er
sú að ég held heimilisbókhald fyrst
og fremst til að sjó svart ó hvítu í
hvað peningamir fara hjó mér, en
ekki hvað það kostar að framfleyta
fjögurra manna fjölskyldu.
Liðurinn „annað“ inniheldur
m.a. afborganir af sófasetti kr. 10
þúsund, afborgun af sjónvarpi kr.
6 þúsund, hússjóð 2 þús., hita (2
mán.) 4.300, tryggingar rúm 3 þús.
og innborgun á bamamyndatöku
3450 kr.“
Þessi fjölskylda er með útgjöld
upp á nærri 78 þús. kr. yfir mánuð-
inn. -A.BJ
REYKJAVÍK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVlK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI:.......97-8303
interRent
Októberutgjöldin
voru nærri 165
þúsund krónur
„Matvörukaupin hækkuðu dólítið
þennan mónuðinn eða um 5.600 kr.
Sennilega kemur haustverðið á
landbúnaðarvörunum þama inn í,“
segir m.a. í bréfi fró einni vinkonu
okkar í Reykjavík. Hún skrifar okk-
ur nú orðið í hverjum mánuði og við
erum farin að hlakka til að fá bréf
frá henni. Hún heldur áfram:
„Skattamir eru 24 þúsund kr. eins
og venjulega. Óperan 1600 kr„ víxill
fyrir ísskápinn 3600, rafrnagn og hiti
5300 kr. Sennilega eðlileg eyðsla.
Bílavíxill 20 þús. kr. Bóndinn varð
að kaupa vinnubíl og fékk gamlan
bíl á 60 þús. á borðið. RUV 1525 kr.
Landsbankavíxill fyrir bílasímann
kr. 8200, lækkar aðeins. Innborgun
á stofugardínur kr. 3 þús.
Það er heilmikið að velja fallegar
gardínur og þær em afskaplega al-
mennilegar í Álnabæ að lána heim
enda varla hægt annað. Bensín-
kostnaður 2600 kr. Andlitsbað og
litun 1645 kr. sem er orðinn lúxus.
Snyrtistofur hafa sennilega allar
sama verð. Andlitskrem em líka orð-
in mjög dýr. Þetta er svona það
helsta fyrir októbermánuðinn.
Renault 5 er frábær, mæli með
honum. Með haustkveðju, LH.“
Þessi fjölskylda er með yfir 164
þús. kr. útgjöld í október. Þar af em
matarútgjöldin tæp 8 þús. kr. á
mann.
-A.BJ.