Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Qupperneq 22
22 MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1986. Iþróttir DV Greg Norman aftur í vinningsstuði Greg Norman, golfarinn frægi, komst aftur í sigurstuð á golfvellin- um er hann sigraði í Westem-Ástral- ían open sem lauk um helgina. Hafði hann þá ekki sigrað í tveim golf- mótum 1 röð sem hann hafði tekið þátt í og er það óvenjulegt á þeim bæ um þessar mundir. „Hákarlinn”, eins og hann er kall- aður, var tveim höggum á eftir Terry Gale fyrir síðustu 18 holumar. En hann lék þessar síðustu 18 holur á 68 höggum - fjórum undir pari - en Gale á 71 höggi. Samtals lék Norman 72 holumar á 276 höggum - tólf und- ir pari. Litli bróðir vann í Japan fór einnig fram mikið golf- mót um helgina. Þar sigraði Bobby Wadkins, sem er bróðir hins þekkta golfara Larry Wadkins. Lék hann 72 holurnar í þessu móti á 277 höggum. Annar varð Graham Marsh á 278 höggum. -klp- • Greg Norman Ámi, Atli og Jónína tiyggðu sér brons - á Norðuiiandamótinu í karate í Finnlandi Ámi Einarsson, Atli Erlendsson og Jónína Olsen tryggðu sér öll brons- verðlaun á Norðurlandamótinu i karate, sem fór fram í Helsinki í Finn- landi um helgina. Það munaði ekki miklu að Atli kæmist í úrslit í sínum þyngdarflokki. Hann var aðeins 30 sek. firá því að komast í úrslit. Var þá með tvö stig betur en keppinautur hans en sá náði að pressa Atla þrisvar sinnum út af í röð og tryggja sér sigur. Fimm karatemenn taka þátt í Norð- urlandamótinu. Þau Jónína Olsen, Kristín Einarsdóttir, Ævar Þorsteins- son, Ámi Einarsson og Atli Erlends- # BIACKSlDECKER / Kaupfélaginu son, sem er jafhframt landsliðsþjálfari. „Við hættum við að senda karlasveit til keppni þar sem við höfum átt erfitt uppdráttar í sveitakeppni. Svíar, Norðmenn og Finnar eru með mjög sterkar sveitir. í þess stað ákváðum við að senda þær Jónínu og Kristínu til að þær fengju reynslu," sagði Karl Gauti Hjaltason, formaður Kareta- sambands íslands, en Karl Gauti var dómari á mótinu. •Ámi fékk brons í kata karla og er þetta í annað skiptið sem hann tryggir sér bronsverðlaun á NM. Atli hlaut brons í sínum flokki í karate (-65 kg) og Jónína tryggði sér brons í kata kvenna. Islenskir karatemenn hafa verið í mikilli framför að undanfömu og er ekki langt síðan að ísland vann sigur yfir N-írlandi í landskeppni. Þá stóðu þeir Ólafur Wallvík, Ævar, Ámi og Atli sig vel á opnu móti í Glasgow. Ólafur varð þar sigurvegari, Ævar í öðru sæti og Ámi í fjórða sæti. Karl Gauti sagði að íslenskir karate- menn hefðu öðlast mikla reynslu á að keppa á mótum erlendis. „Við stöndum framar en margar þjóðir í Evrópu og nú er fyrirhugað að landskeppni fari fram hér á landi. Það er búið að bjóða N-írum að koma hingað og keppa á næsta ári. Þeir em tilbúnir í slaginn, sagði Karl Gauti. -sos Hristari DN41 ■ Borvél D 154 R Hjólsög DN229 Stingsög DN531 Hefill DN710 Þegar þú kaupir fullkomið Black og Decker verkfærasett í kaupfélaginu færð þú meiri afslátt en nemur verði vinsælustu borvélar sem seld hefur verið hérlendis, Blaéjk og Decker H551. Rauð og gul spjóld á lofti - þegar Aberdeen og Rangers mættust Celtic heldur enn fjögurra stiga forustu í úrvalsdeildinni á Skot- landi. Á laugardaginn lék Celtic við Falkirk og sigraði, 4-2, og hefði get- að sigrað enn stærra. Sá leikur, sem beðið var eftir með mestum spenningi um þessa helgi í Skotlandi, var leikur Aberdeen, und- ir stjórn nýja framkvæmdastjórans, Ian Porterfield, gegn Glasgow Rang- ers. Var það mikill hörkuleikur, þar sem dómarinn þurfti að flagga bæði gulum og rauðum spjöldum. Leikn- um lauk með sigri Áberdeen, 1-0. Einnig var beðið eftir því hvort Hamilton tækist loks að vinna leik í deildinni. Ekki tókst það. Liðið gerði jafntefli við St. Mirren heima, 1-1, og þjálfari Hamilton er enn „úti í kuldanum” eins og skosku blöðin orða það!! Önnur úrslit í úrvalsdeildinni á laugardaginn urðu þessi: Clydebank-Motherwell 2-3 Dundee Utd.-Hibernian 1-0 Hearts-Dundee 3-0 Staðan í úrvalsdeildinni er þessi: Celtic 19 15 3 1 44-11 33 Dundee Utd 20 12 5 3 34-15 29 Hearts 20 11 6 3 30-16 28 Rangers 19 11 3 5 32-14 25 Aberdeen 19 9 6 4 32-16 24 Dundee 20 9 3 8 25-21 21 St. Mirren 20 6 8 6 18-18 20 Motherwell 20 4 8 8 22-33 16 Falkirk 20 4 6 10 18-30 14 Hibernian 20 4 5 11 18-39 13 Clydebank 20 4 2 14 14-43 10 Hamilton 19 0 3 16 11-42 3 -klp Köppel tll Uerdingen FYRIR EKKI NEITT Þú þarft ekki að kaupa allt settið til að njóta afsláttar. Kynntu þér afsláttarkjörin sem kaupfélagið býður á Black og Decker verkfærum. • Karetelandslið íslands. Aftari röð frá vinstri: Atli Erlendsson, Ölafur Wallvik, Ámi Einarsson og Ævar Þorsteinsson. Fremri röð: Halldór Svavarsson, Jónína Olsen og Kristín Einarsdóttir. DV-mynd Brynjar Gauti Mundu að þessi einstöku kjör bjóðast aðeins í kaupfélögunum í landinu. Affi Hilmarssan, DV, V-í>ýskalandi: Það bendir nú allt til að Hörst Köppel, aðstoðarmaður Franz Beck- enbauer, landsliðsþjálfara V-Þýska- lands, taki við þjálfun Bayer Uerdingen næsta keppnistímabil. Köppel, sem er samningsbundinn v- þýska knattspymusambandinu til 1988, hefur óskað eftir að fá sig lausan eftir þetta keppnistímabil. -sos

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.