Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.1986, Síða 42
42
MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1986.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
\
Olyginn
sagði...
Jannike hans
Björns Borg
kom aftur fram á sjónarsvið-
ið sem tískusýningardama
núna í haust og hefurtilboð-
unum rignt yfir hana. Hún
hefur þó afþakkað flest
þeirra þar sem hún segist
vilja einbeita sér að uppeldi
sonarins, Robins, sem nú er
eins árs. Gylliboð frá ítalska
snyrtivörufyrirtækinu Pupa
gat hún þó ekki staðist og í
febrúar sýnir hún fallegustu
andlitsliti vorsins. Það er
aldrei að vita nema Jannike
verði hvað úr hverju stórt
nafn í tískubransanum.
Julian
Lennon
sjokkeraði umheiminn með
tveim löngum fléttum þegar
hann skaut upp kollinum á
•veitingastað nokkrum í
Hollywood. Þykir hann líkj-
ast föður sínum meir og
meir með hverjum deginum
sem líður. Julian var að
halda upp á velgengni sína
og hljómsveitar sinnar en
lög þeirra njóta nú mikilla
vinsælda.
stjarnan
Mikael
Rickfors
heimsótti spákonu um dag-
inn sem varaði hann við
hraðskreiðum bílum. Á leið-
inni frá kellu losnaði eitt
hjólanna undan Porschinum
hans. Honum varð náttúr-
lega ekki um sel. Og svo var
það eina nóttina að hann
dreymdi að hann lenti í
árekstri. Þá var bikarinn full-
ur. Daginn eftir fór hinn
hjátrúarfulli Mikael beinustu
leið til bílasala og seldi bílinn
sinn.
Krýningar-
hátíð
Það var heilt haf af drottningum í
Broadway á fimmtudagskvöldið þeg-
ar stjarna Hollywood og var kjörin.
Núverandi og fyrrverandi fegurðar-
drottningar íslands og alheimsins
voru heiðursgestir og krýndu sigur-
vegarann.
Fullt hús af gestum naut fegurðar-
innar og skemmtiatriðanna. Að-
standendur keppninnar voru Vikan,
Hollywood og ferðaskrifstofan Pol-
Verðlaunin voru ekki af verra tag-
inu, stjama Hollywood hlaut bifreið
af gerðinni Lancia 86. Önnur verð-
laun voru í formi fatnaðar, ferðalaga,
skartgripa og snyrtivara.
Formaður dómnefndar og eigandi Hollywood, Ólafur Laufdal, afhendir Guð-
laugu Jónsdóttur lyklana að Lancia bifreiðinni sem var fyrstu verðlaun.
Stjarna Hollywood og fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1986 varð Guðlaug Jóns- Heiðursgestir kvöldsins voru Gígja Birgisdóttir.fegurðardrottning íslands
dóttir, 18 ára Reykjavíkurmær. Hún stundar nám í Menntaskólanum í 1986, og Hólmfríður Karlsdóttir ungfrú heimur 1985.
Reykjavík eins og Sólarstjarna Polaris, Svava Sigurjónsdóttir.
Páfagaukurinn Elli og eigandinn
Ken Krizsanitz elska að stinga sam-
an nefjum - en einstaka sinnum hafa
elskulegheitin öþægilegar afleiðing-
ar fyrir þann ófiðraða. Þeir búa í
Illinois og að sögn Kens er Elli óum-
deilanlega sá sterkari í sambandinu
- enda páfagauksnef gerð úr öðru
og harðara efni en þau mjúku og
mennsku.
mm