Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ - VÍSIR
279. TBL. - 76. og 12. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Þá er hún loksins komin út, jólagjafahandbók
DV, sem að þessu sinni er 56 síður að stærð. i
bókinni er hægt að finna jólagjafir fyrir alla aldurs-
hópa og á öllu verði. Blaðamaður og Ijósmyndari
DV hafa á undanförnum vikum gengið á milli versl-
ana á höfuðborgarsvæðinu og myndað vörur til
jólagjafa. Einnig má finna í blaðinu jólaföt og jóla-
skó á börnin. Margir kaupmenn eru á því að í ár
verði gefnar nytsamar jólagjafir - gjafir sem koma
að notum. Stundum er kannski um dýra hluti að
ræða en ekkert er þá því til fyrirstöðu að heimilis-
fólk slái saman og gefi heimilinu eitthvað sem hefur
vantað. Auðvitað er einnig mikið úrval ódýrra gjafa
í blaðinu og höfum við einmitt leitast við að benda
kaupmönnum á að sýna frekar það sem er í ódýr-
ari kantinum. Það ættu sem sagt allir að finna
eitthvað við sitt hæfi á þessum síðum. í fyrsta skipti
er handbókin tölvuunnin og vonumst við til að
með því móti sé hún mun aðgengilegri fyrir lesand-
ann. Þá má nefna að öll þau fyrirtæki, sem bjóða
vörur sínar í þessu blaði, senda í póstkröfu hvert á
land sem er. Einmitt landsbyggðarfólk ætti að geta
notfært sér þessa þjónustu DV og sparað sér með
því bæjarferð - aðeins símtal og varan er send
heim. I öllum textum eru símanúmer gefin upp og
að sjálfsögðu einnig verðið. Aðeins í örfáum tilfell-
um vantar verð en það er vegna þess að útreikning-
ar á vörunni lágu ekki fyrir er blaðið var unnið.
Texti: Elín Albertsdóttir
Ljósmyndari: Ragnar Sigurjónsson
BRAUN jólagjafir
Hentugar og ódýrar
Rakvélar
frá kr.
1.900.-
Jólagjöfin í ár:
Braun
skeggsnyrtirinn,
kr. 6.580.-
Braun skeggsnyrtirinn (bartskeri
og klippur) gerir alla skeggsnyrt-
ingu létta og auðvelda. Stilianlegur
fyrir fjórar skegglengdir,
3—8—14—19 mm. Bæði fyrir
straum og hleðslu. 40 mín. notkun
á hleðslu.
á
1
BRflun
30 DAGA
SKILAFRESTUR
of keypt er fyrir 31.12.86
TILBOÐ
r
Nýjung:
30 daga skilafrestur á Braun
rakvélum ef kaup eru gerð
fyrir 3i.l2.t986.
Verslunin
PFAFF
Borgartúni 20
sími 26788
og allar betri
raftækjaverslanir landsins