Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 28
68
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Kosta Party \
Kosta Party eru sígildir nytjahlutir: skálar, bakkar,
diskar og glös, og er verðið frá 600 krónum. Þessar
skálar á myndinni eru til margra hluta nytsamlegar,
til dæmis fyrir ávexti, konfekt, smákökur eða annað.
Þetta eru hlutir sem ætíð sóma sér vel á borðum.
Kosta Pippi
Hér á myndinni er enn
einn glæsileikinn frá
KOSTA BODA en það eru
Kosta Pippi glös og karöfl-
ur. Glösin eru mjög falleg
á borði og eru auðvitað til
fyrir hverja víntegund fyrir
sig. Það er mjög sniðugt
að gefa fáein glös nú og
bæta síðan við þegar tæki-
færi gefast. Glösin kosta
frá 700 krónum en karöfl-
urnar eru á 5.500 krónur.
Rainbow skálar
Enn er það Rainbow og nú skálar og vasar. Það
er sannarlega margt til í hverri línu fyrir sig í KOSTA
BODA. Allt eru þetta nytsamir hlutir og fallegir. Úrval-
ið er svo gífurlegt að í rauninni er erfitt að gera upp
við sig hvað maður á að velja. Þó er það svo að
fæstir fara tómhentir út úr Kosta Boda því þar er eitt-
hvað við allra hæfi. Rainbow skálar kosta frá 2.850
krónum.
Logandi snjóboltar
Falleg rós
Gluggaóróar
Þeir eru löngu orðnir þekktir, snjóboltakertastjakarn-
ir frá KOSTA BODA, og alltaf jafnvinsælir. Þeir eru til
í þremur stærðum á 425, 548 og 945 krónur. Þykir
það mjög gott verð. Hjá Kosta Boda er mjög mikið
úrval af skemmtilegum og ódýrum kertastjökum í öll-
um mögulegum gerðum.
Hér kemur enn einn kertastjakinn frá KOSTA BODA.
Þessi heitir rósin og þykir mjög fallegur. í hann er
bæði hægt að setja há kerti og venjuleg sprittkerti.
Rósin kostar 795 krónur og má segja að það sé ein-
mitt heppilegt verð fyrir þá sem ekki vilja gefa mjög
dýrt.
Þessirfallegu gluggaóróar, sem fást í KOSTA BODA,
eru aðeins brot af öllu úrvalinu. Þeir eru til í mörgum
gerðum og stærðum og kosta frá 1095 krónum.
Gluggaóróarnir eru mjög vinsælir og lífga upp glugga-
na. Að vísu geta þeir hangið hvar sem er en þeir fara
einstaklega vel í gluggum.
Kubbur heitir
hann
Það eru Cube kveikjarinn
og kertastjakarnir sem eru
hér á myndinni. Þetta eru
einstaklega vandaðar og
fallegar vörur sem fást í
KOSTA BODA og sóma
sér vel hvar sem er. Að
sjálfsögðu er nafnið ekki
út í loftið því Cube eru ein-
mitt eins og kubbar í láginu
og mjög þungir hlutir. Verð
frá 2670 krónum.
Vínkaröflur frá Orrefors
Orreforsmerkið er sænskt eins og KOSTA BODA
og þykja það ákaflega vandaðar vörur sem þaðan
koma. Eins og sjá má á myndinni er hér um að ræða
mjög fallegar vínkaröflur. Þær eru til í mörgum gerðum
eins og sjá má. Einnig eru fáanlegar karöflur í öðrum
merkjum hjá Kosta Boda.
Vinsæl
hnífapör
Þetta eru Boda Nova
hnífapörin sem eru ákaf-
lega vinsæl hjá unga fólk-
inu. Þau þykja bera af,
enda öðruvísi en mörg
önnur. Hvað er skemmti-
legra en að eiga falleg
hnífapör til að leggja á
borðið þegar gesti ber að
garði? Steikarsettið er
mjög veigamikið og sömu-
leiðis ostaskerinn. Boda
Nova kostar frá 875 krón-
um.
Boda Line
hnífapör
Þetta eru Line hnífapörin
sem eru í stíl við línuna í
matar- og kaffistelli og
glösum. Þetta eru afar
smart hnífapör á borði og
sóma sér vel, sérstaklega
við Boda Line stellið.
Hnífapörin kosta frá 275
krónum. Hjá KOSTA
BODA er mjög mikið úrval
af alls kyns hnífapörum,
bæði ódýrum og aftur í
dýrari kantinum. Þú ættir
því örugglega að finna eitt-
hvað við þitt hæfi.
Jólaóróar
Þetta eru nýir jólaóróar frá KOSTA BODA. Þeir eru
mjög fallegir og skemmtilegir til gjafa eða til að kaupa
handa sjálfum sér til að skreyta hjá sér fyrir jólin.
Þeir eru líka á mjög góðu verði. Jólaóróana má jafn-
vel hengja á jólatréð ef maður vill en líkast til eru
þeir skemmtilegastir í glugga. Verð 295 krónur.
Fyrir heita rétti
Þessar fallegu skálar eru allar úr eldföstu gleri og
með korkmottu undir. Skálarnar má því nota undir
hvers kyns heita rétti eða salat eftir því sem hentar
hverju sinni. Einnig fást i stíl kaffiglös undir írskt
kaffi. Skálarnar eru til í mörgum stærðum og gerðum,
með háum skálum og lágum. Verð frá 1056 krónum.