Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 48
88 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Canon AF-35-MII Þetta er myndavélin handa þeim sem ekki eru mjög kunnugir myndavélum. Allir geta tekið frábærar myndir á þessa vél og hún er sjálfvirk að öllu leyti - aðeins að smella af þegar myndin er tekin. Canon AF-35 Mll kostar 16.046 krónur hjá TÝLI, Austur- stræti 3, sími 10966. Einnig eru fáanlegar svipaðar vélar frá 7.300 krónum. Sænskt matar- og kaffistell Þetta fallega stell er hvítt með ekta gyllingu og því tilvaliðsem sparistell. Matardiskurinn kostar 949 krón- ur, súpudiskurinn 925 krónur, sósukannan er á diski og kostar 2.399 krónur, fatið 2.479 krónur og bolli og undirskál 897 krónur. Stellið fæst hjá ÁLAFOSS- BÚÐINNI, Vesturgötu 2, sími 13404. Þýsk kristalsglös Það eru alveg heil ósköp til af glösum í gjafavöru- deild ÁLAFOSSBÚÐAFSINNAFt, Vesturgötu 2, sími 13404. Þetta eru þýsk kristalsglös á mjög góðu verði. Rauðvínsglas kostar 239 krónur, hvítvínsglas 227 krónur, staup 235 krónur, koníaksglas 231 krónu og karafla 2.284 krónur. Hefilbekkur og verkfæri í hinni rótgrónu verslun, BRYNJU, Laugavegi 29, sími 24320, fást hinir vönduðu Sjöbergs hefilbekkir, eins og til dæmis þessi á myndinni sem kostar 19.900 krónur. Einnig er þar mikið úrval af öðrum nytsömum jólagjöfum eins og verkfæratöskum sem kosta 520-1.250 krónur. Borvél, Black og Decker, fæst á 5.715 krónur, brennisett á 1.360 krónur og útskurðar- sett á 2.085 krónur. Snoopy reikningskennarinn Þessi litla leiktölva frá Canon leggur reikningsdæmi fyrir börnin. Ef þau svara rangt gefur tölvan svarið. Dæmin eru samlagning, frádráttur, margföldun, deil- ing og eru bæði létt og þung eftir óskum þess sem spilar. Einnig eru í henni leikir með tölur. Svo er auð- vitað hægt að nota hana sem venjulega reikningstölvu þegar óskað er. Snoopy reikningskennarinn er á jólat- ilboðsverði hjá MAGNA, Laugavegi 15, sími 23011, aðeins 1.495 krónur. Canon T-50 Canon myndavélarnar eru með vinsælustu og bestu myndavélum sem völ er á. Myndavélin er sjálfvirk að flestu eða öllu leyti og hefur meðal annars sjálfvirkan fókus. Canon T-50 reflexvél kostar frá 22.000 krón- um. Það þarf engan snilling á Canon, það verða allir snillingar með þeim. Canon vélarnar fást hjá TÝLI, Austurstræti 3, sími 10966. Smíðajárn frá Austurríki í ÁLAFOSSBÚÐINNI, Vesturgötu 2, sími 13404, er mikið úrval af austurrísku smíðajárni. Skeifa með sex staupum er til dæmis upplögð jólagjöf handa hestamanninum en hún kostar 2.118 krónur. Smíða- járnsbrauðkarfa, sem salt- og piparstaukar fylgja, kostar 1.872 krónur. Margir aðrir sérstakir munir úr smiðajárni, sem margir ættu að hafa gaman af, eru til sölu þarna. Spennandi ieikspil Af þeim tugum leikspila sem fást hjá MAGNA, Laugavegi 15, sími 23011, eru þrjú fjölskylduspil sem hafa slegið í gegn. Cluedo, morðgáta í stíl Ágöthu Christie, kostar 1.090 krónur, Scotland Yard, frábært leynilögregluspil, 1.090 krónur, og Top Secret, vin- sælt spil um njósnir, 990 krónur. Öll spilin eru með íslenskum leiðarvísum og eru tilvaldar gjafir fyrir fólk frá níu ára upp í nírætt. Canon Af-35J Hér er ein enn frábær Canon vél og alsjálfvirk eins og hinar. Þetta eru nettar vélar og fara mjög vel í vasa. Þeir segja að þessi vél henti vel handa mömmu, pabba, ömmu, afa og krökkunum vegna þess að það geta allir tekið góðar myndir á hana. Reyndar á ekki að vera hægt að fá slæma mynd úr slíkum vélum. Þessi kostar 10.324 krónur hjá TÝLI, Austurstræti 3, sími 10966. Arzberg stell í gjafavörudeild ÁLAFOSSBÚÐARINNAR fást hin frábæru v-þýsku Arzberg stell sem svo margir eru að safna. Þau eru til í mörgum gerðum og hafa notið mikilla vinsælda, sérstaklega hjá unga fólkinu. Á myndinni er eitt stellið en við tókum sýnishorn úr því og er það kaffikanna sem kostar 1.631 krónu, hitari sem kostar 1.152 krónur, bolli og undirskál kosta 470 krónur og kökudiskur 183 krónur. Uppl. um Arzberg fást í Álafossbúðinni, Vesturgötu 2, sími 13404. Tölvuspil hjá Magna Þau eru loksins fáanleg aftur HJÁ MAGNA, Lauga- vegi 1 5, sími 23011, borðspilin frá Nintendo í þremur gerðum, Donkey Kong jr„ Stjáni blái (Popeye) og Snoopy, allt á 2.500 krónur. Litlu, vinsælu tölvuspilin eru væntanleg fyrir jól. Einnig er til mikið úrval tölvu- leikja á Spectrum, Commodore, Amstrad, MSX og ATÁRI. Allt eru þetta vinsælar jólagjafir hjá krökkum, bæði strákum og stelpum. HERMANN JÓNSSON, Veltusundi 3b, sími 13014, hefur reiðinnar býsn af góðum úrum á boðstólum, hvort sem leitað er að ódýru eða dýru, kven- eða herraúri. Á myndinni eru, frá vinstri, Orient kvenúr á 6.724 krónur, Citizen á 9.699 krónur, Orient herraúr á 10.500 krónur og Citizen á 9.298 krónur en það er þynnsta úrið sem framleitt er með vekjara. Einnig fæst mikið úrval af klukkum og skartgripum. Kvenúr-herraúr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.