Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 26
66
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Munnhörpur
Hohner munnhörpur eru alltaf vinsæl gjöf, bæði
handa tónlistarfólki og einnig litlu krökkunum. Það
má kannski segja að margir hafi byrjað sinn tónlistar-
feril með munnhörpunni. i HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR, Laugavegi 96, sími 13656, er mikið
úrval af góðum munnhörpum og þær kosta ekki held-
ur nein ósköp, frá 250 krónum.
Bjarton gítarar
Þeir þykja einstaklega vandaðir og eru löngu orðnir
vel þekktir enda sænsk gæðavara. Þú getur valið um
margar gerðir af klassískum gíturum, jafnt fyrir byrj-
endur sem lengra komna. Verð frá 6.380 krónum.
Einnig eru fáanleg í HLJÓÐFÆRAHÚSI REYKJA-
VÍKUR banjó frá 7.360 krónum og mandólín á 5.130
krónur.
Glænýtt ilmvatn
Ef þú vilt gefa sérkennilega og fallega gjöf þá bend-
um við á þetta nýja ilmvatn sem heitir Niki de Saint
Ralle. Umbúðirnar þykja ákaflega skemmtilegar og
mundu sóma sér sem punthlutur hvar sem er. Það
er snyrtivöruverslunin LIBIA, Laugavegi 35, sími
26590, sem selur Niki de Saint Ralle. Parfum, 7 ml,
kostar 5.941 krónur, toilet spray, 13 ml, 1.635 krón-
ur, 30 ml 2.053 og body lotion 2.253 krónur.
Casio kvenúr
HELGI GUÐMUNDSSON ÚRSMIÐUR, Laugavegi
82, sími 22750, býður upp á mikið úrval af góðum
og vönduðum kvenúrum. Til dæmis þessi tískuúr á
myndinni sem eru til í svörtu og hvítu með rauðum
stöfum. Þetta eru kvarsúr sem kosta aðeins 2.100
krónur. Einnig mjög ódýrt kvarsúr á 1.530 krónur
meó hvítri ól, bæði smekklegt og gott að lesa á tölurn-
ar. Góðar gjafir fyrir unga fólkið.
í takt við tímann
Ert þú alltaf í takt við tímann? Ef ekki er taktmælir
nauðsynlegur. Taktmælar eru góð jólagjöf handa tón-
listarfólki, bæði byrjendum og þeim sem eru lengra
komnir. Hjá HLJOÐFÆRAHUSI REYKJAVÍKUR,
Laugavegi 96, sími 13656, færðu hina viðurkenndu
Whittner taktmæla í úrvali á verði frá 1.100 krónum.
Hljómplöturog nótur
Hljómplata er góð gjöf. Hjá HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR, Laugavegi 96, sími 13656, færð þú
allar hljómplötur, hvort sem þú leitar eftir poppi eða
klassík. Platan fæst örugglega í Hljóðfærahúsinu því
þar er lagður metnaður í að eiga sem fjölbreyttast
úrval af innlendum sem erlendum hljómplötum. Einn-
ig stórgott úrval af nótnabókum við allra hæfi.
Ný baðlína
Barynia heitir hún nýja baðlínan frá Helenu Rubin-
stein og fæst í snyrtivöruversluninni LIBIU, Laugavegi
35, sími 26590. Þetta eru glæsilegar vörur og kostar
ilmvatn í 50 ml sprayglasi 1.598 krónur, 100 ml glasi
2.482 krónur, parfum kostar 4.530 krónur, body loti-
on 1.289 krónur, body creme 1.676 krónur, sturtusápa
1.056 krónur og sápa 405 krónur.
Portúgalskir barnaskór
I SKÓGLUGGANUM, Vitastíg 12, sími 11788, er
mjög mikið úrval af skóm á yngsta fólkið, bæði götu-
skóm og spariskóm. Á myndinni má sjá brot af
jólaskónum á yngsta fólkið sem notar stærðir frá
18-24. Þeir eru til í hvítu, bláu og gráu og kosta 1.395
krónur. Einnig lakkskór með ökklabandi í stærðum frá
21-28 í hvítu og svörtu á 1.440 krónur. Þá eru það
drengjamokkasínur í stærðum 23-30 á 1.440 krónur
í svörtu og bláu lakki.
Linguaphone
Það þarf varla að kynna Linguaphonenárhskeiðin
fyrir lesendum því þau eru fyrir löngu orðin viður-
kennd. Þú getur valið um 29 tungumál. Námið er
leikur einn, aðeins hálf klukkustund á dag þegar þér
hentar best og þér gengur betur í skólanum, sumar-
leyfinu og viðskiptunum. Verðið er aðeins 4.990
krónur. Linguaphone færðu í HLJÓÐFÆRAHÚSI
REYKJAVÍKUR, Laugavegi 96, sími 13656.
Júpíter blásturshijóðfæri
í HLJÓÐFÆRAHÚSI REYKJAVÍKUR, Laugavegi
96, sími Í3656, færðu öll helstu blásturshljóðfærin á
góðu verði. Má þar nefna þverflautur á 12.200 krón-
ur, trompeta á 13.200 krónur, saxófóna á 34.530
krónur, corneta á 13.470 krónur, básúnur á 11.180
krónur, barítonhorn á 25.950 krónur, Clark klarínett
á 8.980 krónur og einnig blokkflautufjölskylduna frá
Adler og Aulos.
Gamaldags en nýtt
Hann HELGI GUÐMUNDSSON ÚRSMIÐUR,
Laugavegi 82, sími 22750, þarf ekki að skammast sín
fyrir úrvalið af úrunum því það er geysilega mikið. Á
myndinni eru t.d. herraúr af gerðinni Tissot sem þykja
mjög smart. Þau er hægt að fá með rómverskum tölum
eða venjulegum og kosta 4.850 og 5.600 krónur.
Einnig eru til kvenúr. Til hægri á myndinni er gyllt
úr með stórum og skýrum tölum sem kostar 6.250
krónur.
Jólaskórnir á börnin
SKÓGLUGGINN, Vitastíg 12, sími 11788, sérhæfir
sig í vönduðum barnaskóm. Þessir svörtu, reimuðu
drengjaskór á myndinni til vinstri fást í stærðum 31-38
og kosta 1.670 krónur. Þá eru telpnaskór með spennu
í svörtu lakki á 1.440 krónur í stærðum 28-37 og enn
aðrir með ökklabandi og blómi að framan í stærðum
21-27 á 1.250 krónur. Þeirfást í svörtu og hvítu lakki.