Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 44
84
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Fyrir heimilið
Hjálparkokkurinn
Franskir lampar
Þaö er alltaf gott að gefa nytsama hluti til heimilis-
ins í jólagjöf. Hér bendum við á nokkra hluti sem
fást hjá HEKLU, Laugavegi 170, sími 695500. Gufu-
straujárn eins og er á myndinni kostar 2.910 krónur
en þau kosta frá 2.725 krónum. Þá er það rafmagns-
hnífur sem mjög gott er að eiga þegar skera þarf niður
soðið kjöt, álegg eða hvað sem er. Hann kostar 2.225
krónur. Loks er það rafmagnsupptakari sem kostar
1.910 krónur. Allt eru þetta hinar viðurkenndu Gener-
al Electric vörur.
Hún er reyndar fyrir löngu búin að sanna getu sína,
Kenwood hrærivéíin, þessi aflmikla. Henni fylgir lok
yfir hrærivélarskálina, hnoðari, þeytari og hrærari og
hún kostar 11.875 krónur. Það er HEKLA, Laugavegi
170, sími 695500, sem selur Kenwood vélina. Einnig
fæstfrábær handþeytari frá Kenwood á 1.985 krónur.
Það er orðið nokkuð síðan HEKLA, Laugavegi 170,
sími 695500, hóf að selja hina vönduðu frönsku
lampa og hafa þeir notið mikilla vinsælda, sérstaklega
hjá fólki sem gerir miklar kröfur. Lamparnir á mynd-
inni eru mjög sérstakir með svörtum fótum en Ijósum
skermum. Þeir kosta 5.200 krónur og 6.300 krónur.
Pólerað stál frá Frakklandi
Þetta glæsilega stál, sem hér sést á myndinni, er
aðeins brot af öllu því úrvali sem verslunin HEKLA,
Laugavegi 170, sími 695500, býður. Þetta er franskt
pólerað stál sem ekki fellur á og má setja í ofn. í
þessu merki eru fáanleg föt, diskar og skálar í öllum
mögulegum gerðum og stærðum. Á myndinni er skál
með loki sem kostar 5.955 krónur og diskur sem
kostar 2.925 krónur.
Kenwood gourmeat
Það hefur eiginlega ekki ennþá fundist neitt gott
íslenskt nafn yfir þessar vélar sem nota má sem hræri-
vél, hakkavél, hnoðara, rífara og saxara eða hvað allt
það nefnist. Þetta er Kenwood gourmeat sem er til í
tveimur útgáfum og kostar með öllum fylgihlutum
5.300 og 6.195 krónur. Vélin fæst í HEKLU, Lauga-
vegi 170, sími 695500.
Franskir pottar
Nú á tímum sparnaðar er gott að eiga góða potta
sem spara rafmagnið. Þessir steypujárnspottar, sem
fást hjá HEKLU, Laugavegi 170, sími 695500, eru
ekki bara nytsamlegir og góðir heldur einnig bráð-
fallegir. Þeir eru til gulir, rauðir og svartir og kosta
þessir á myndinni 1.610 krónur, 2.150 krónur og
2.870 krónur.
Góðar gjafir á
herrann
Hér koma vandaðar og
klassískar gjafir handa
herramanninum og fást
þær í HERRADEILD
P & Ó, Austurstræti 14,
sími 12345. Þetta eru
bráðfallegir leðurhanskar
úr mjúku og góðu skinni
sem kosta 1.985 krónur,
treflar úr ekta lambsull á
aðeins 860 krónur og húf-
ur sem kosta ca 1.500
krónur. Bæði húfurnar og
treflarnir eru til í mörgum
fallegum litum.
Fallegar skyrt-
ur
Nýlega tóku nýir eigend-
ur við HERRADEILD
P & Ó, Austurstræti 14,
sími 12345, og bjóða þeir
einungis upp á vandaða
og góða vöru. Á myndinni
er hvít Van Hausen spari-
skyrta sem kostar 1.590
krónur, bindi sem kostar
690 krónur, einnig er til
alsilkibindi á 1.590 krónur,
þá er smókingskyrta sem
kostar 2.290 krónur. Þær
eru til í fimm gerðum, bæði
hvítar og misiitar. Svarti
klúturinn kostar 495 krón-
ur og slaufan 595 krónur.
RBADEILD
Lloyd skórnir hjá P & Ó
Allt frá hatti oní skó, segja þeir hjá HERRADEILD
P & Ó. Það eru engar ýkjur því mikið úrval er af skóm
hjá þeim og það allt saman fínir og vandaðir herra-
skór frá hinu vel þekkta Lloyd-fyrirtæki. Á myndinni
eru nokkur sýnishorn en skórnir kosta, frá vinstri tal-
ið: 5.390, 4.900, 7.490 og 5.900 krónur. Þeir sem
vilja ganga í fínu leðri ættu að reyna þessa.
Náttföt og náttserkir
Alltaf eru náttföt vinsæl jólagjöf, sérstaklega handa
pabba og afa. Reyndar eru komin á markaðinn nátt-
föt sem ungu mennirnir myndu ekki síður vilja sofa í,
til dæmis náttserkirnir sem hafa verið mjög vinsælir.
Þeir kosta 2.250 krónur. Frá vinstri eru náttföt sem
eru einlit og kosta 1.890 krónur og þá náttföt frá
Schiesser sem eru munstraður jakki og einlitar buxur
og kosta þau 3.980 krónur. Náttfötin fást líka hjá
HERRADEILD P & Ó, Austurstræti 14, sími 12345.
Vandaðar peysur
Á þessari mynd má sjá fallegar peysur sem yrðu
áreiðanlega vel þegin jólagjöf hjá herranum. Það er
einlit peysa frá Bayford sem kostar 3.290 krónur, þá
röndótt skyrta sem kostar 1.790 krónur, munstruð
peysa, Schiesser, sem kostar 4.660 krónur og einlit
Schiesser skyrta sem kostar 2.490 krónur. Þetta fæst
auðvitað allt hjá HERRADEILD P&Ó, Austurstræti
14, sími 12345.
Melka ullar-
úlpa
Þessi ungi maður klæðist
mittisullarúlpu frá HERRA-
DEILD P&Ó, Austur-
stræti 14, sími 12345.
Þetta er mjög smart úlpa
sem einnig er bæði létt og
hlý. Hún kostar 5.800
krónur og er aðeins ein af
mörgum gerðum. Einnig
er til mikið af fallegum
stökum jökkum. Flauels-
buxurnar, sem herramað-
urinn klæðist, eru grófriffl-
aðar og kosta 3.500
krónur. Einnig eru til dýrari
flauelsbuxur, sérlega van-
daðar, fyrir þá sem gera
kröfur.