Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 1
DAGBLAÐIÐ - VÍSIR 279. TBL. - 76. og 12. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Þá er hún loksins komin út, jólagjafahandbók DV, sem að þessu sinni er 56 síður að stærð. i bókinni er hægt að finna jólagjafir fyrir alla aldurs- hópa og á öllu verði. Blaðamaður og Ijósmyndari DV hafa á undanförnum vikum gengið á milli versl- ana á höfuðborgarsvæðinu og myndað vörur til jólagjafa. Einnig má finna í blaðinu jólaföt og jóla- skó á börnin. Margir kaupmenn eru á því að í ár verði gefnar nytsamar jólagjafir - gjafir sem koma að notum. Stundum er kannski um dýra hluti að ræða en ekkert er þá því til fyrirstöðu að heimilis- fólk slái saman og gefi heimilinu eitthvað sem hefur vantað. Auðvitað er einnig mikið úrval ódýrra gjafa í blaðinu og höfum við einmitt leitast við að benda kaupmönnum á að sýna frekar það sem er í ódýr- ari kantinum. Það ættu sem sagt allir að finna eitthvað við sitt hæfi á þessum síðum. í fyrsta skipti er handbókin tölvuunnin og vonumst við til að með því móti sé hún mun aðgengilegri fyrir lesand- ann. Þá má nefna að öll þau fyrirtæki, sem bjóða vörur sínar í þessu blaði, senda í póstkröfu hvert á land sem er. Einmitt landsbyggðarfólk ætti að geta notfært sér þessa þjónustu DV og sparað sér með því bæjarferð - aðeins símtal og varan er send heim. I öllum textum eru símanúmer gefin upp og að sjálfsögðu einnig verðið. Aðeins í örfáum tilfell- um vantar verð en það er vegna þess að útreikning- ar á vörunni lágu ekki fyrir er blaðið var unnið. Texti: Elín Albertsdóttir Ljósmyndari: Ragnar Sigurjónsson BRAUN jólagjafir Hentugar og ódýrar Rakvélar frá kr. 1.900.- Jólagjöfin í ár: Braun skeggsnyrtirinn, kr. 6.580.- Braun skeggsnyrtirinn (bartskeri og klippur) gerir alla skeggsnyrt- ingu létta og auðvelda. Stilianlegur fyrir fjórar skegglengdir, 3—8—14—19 mm. Bæði fyrir straum og hleðslu. 40 mín. notkun á hleðslu. á 1 BRflun 30 DAGA SKILAFRESTUR of keypt er fyrir 31.12.86 TILBOÐ r Nýjung: 30 daga skilafrestur á Braun rakvélum ef kaup eru gerð fyrir 3i.l2.t986. Verslunin PFAFF Borgartúni 20 sími 26788 og allar betri raftækjaverslanir landsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.