Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Síða 9
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
49
ELAN
Elan skíði
í SPORTI, Laugavegi 62, sími 13508, fást hin vin-
sælu Elan skíði sem sænski kappinn Ingmar Stenmark
notar er hann vinnur til verðlauna. Elan skíðin eru til
bæði fyrir börn, unglinga og fullorðna. Barna- og
unglingaskíði eru í stærðum frá 120-170 cm og kosta
3.241-3.980 krónur. Einnig fást skíðastafir á 610
krónur og bindingar á 1.750 krónur.
Moon boots
Flestir krakkar vilja nú frekar ganga á Moon boots
heldur en kuldaskóm. Reyndar eru Moon boots bæði
kuldaskór og stígvél og eru kannski langsamlega
besti skófatnaðurinn í snjó. SPORT, Laugavegi 62,
sími 13508, selur Moon boots frá Lotto og Lesona
og eru þeir til í stærðum frá 23-46. Barna- og ungl-
ingastærðir kosta frá 1.070 krónum.
Borðtennisspaðar
Fyrir borðtennisfólk eru þetta mjög nytsamar jóla-
gjafir. Borðtennisspaðar frá Banda fást í versluninni
SPORT, Laugavegi 62 , sími 13508, og kosta
373-1.140 krónur. Einnig fást kúlur og hulstur. Þess-
ir spaðar hér á myndinni eru vandaðir og góðir.
Falleglr fráNike
Það er ekki ofsögum sagt með Nike skóna að þeir
eru einstaklega fallegir og ekki síður góðir skór. Það
er heldur ekki fyrir ekki neitt að poppstjarnan Micha-
el Jackson segist ganga í Nike. Þessir á myndinni
eru aðeins lítið brot af öllu úrvalinu sem fæst í
SPORTI, Laugavegi 62, sími 13508. Það eru körfu-
boltaskór sem kosta 2.865, íþróttaskór sem kosta
2.865 og aerobicskór úr sérlega mjúku skinni á 3.300
krónur.
Adidas íþróttaskór
Þeir eru alltaf jafnvinsælir, Adidas íþróttaskórnir, en
nú fyrir jólin býður SPORT, Laugavegi 62, sími
13508, upp á þessa Adidas skó á myndinni á einstak-
lega góðu verði eða aðeins 995 krónur. Ef þú vilt fá
skó sem eiga að endast í meira en nokkrar vikur þá
ertu pottþéttur á Adidas.
Sport í nýju húsnæði
Það er ekki langt síðan verslunin SPORT flutti sig
um set á Laugaveginum og ef það skyldi hafa farið
fram hjá einhverjum er rétt að minna á það. Verslun-
in Sport býður upp á allan sportfatnað og kappkostar
að halda verðinu í lágmarki.
Rúskinnsstígvél
Þessi fallegu rúskinnsstígvél eru glæný í versluninni
MÍLANÓ, Laugavegi 20, sími 10655. Þetta eru tísku-
stígvél með eða án kögurs. í Mílanó er geysilega
mikið úrval af fallegum tískuskóm á alla fjölskylduna.
Stígvélin eru í brúnum lit og í stærðunum 36-41 með
kögri og 41-45 án kögurs. Þau kosta 3.975 krónur.
Barnaskór á jólunum
Þessir fallegu barnaskór fást í skóversluninni
MÍLANÓ, Laugavegi 20, sími 10655. Það eru telpna-
skór með blómi að framan og ökklabandi í stærðum
frá 19-36 í svörtu og hvítu á 1.350 krónur og stráka-
skór í stærðum frá 23-31 á 1.695 krónur. Telpna-
skórnir til hægri kosta sama og skórnir til vinstri og
fást í sömu stærðum. Ennfremur mikið úrval af öðrum
barnaskóm, jafnt spariskóm sem kuldaskóm.
Æfingagallar í
SPORTI
Þessirfallegu æfingagall-
ar, sem bæði eru fyrir
dömur og herra, fást í
versluninni SPORT,
Laugavegi 62, sími 13508.
Þetta eru Odlo gallar sem
eru vel þekktir og eru fáan-
legir grænir, bláir, svartir
og rauðir. Verðið er frá
2.810 krónum. Odlo gallar
eru sniðug jólagjöf handa
öllum þeim sem vilja klæð-
ast þægilegum fatnaði.
Jólaskórfyrirdömur
Þeir eru fallegir, dömuskórnir í versluninni MÍLANÓ,
Laugavegi 20, sími 10655. Þeireru til háhælaðir, með
lágum hæl og sléttbotnaðir. Á myndinni eru þrjú sýn-
ishorn. Frá vinstri eru háhælaðir spariskór með slaufu
að aftan sem fást í svörtu og hvítu og kosta 3.100
krónur. Þá eru grænir skór, einnig fáanlegir í rauðu
og svörtu á 2.490 krónur, og loks sléttbotnaðir leður-
skór með rúskinnsmunstri í bláu og svörtu á 2.950
krónur.
Alpina skíða-
skór
jt c
1 'V
% rfk.
■
í versluninni SPORT,
Laugavegi 62, sími 13508,
fást hinir vinsælu Alpina
skíðaskór og kosta frá
1.988 krónum. Þeir eru til
í öllum stærðum og mörg-
um litum. Alpina skíða-
skórnir hafa löngum verið
eftirsóttir hjá skíðafólkinu.
Þeir þykja bæði vandaðir
og þægilegir.
Lúffur og hanskar
Ef þú vilt gefa góða, hlýja og ódýra gjöf eru lúffur
og hanskar alltaf kærkomin, ekki bara á börn heldur
einnig þá sem eldri eru. Litlir strákar eru til dæmis
mjög hrifnir af því að eiga hanska. Lúffur kosta frá
295 krónum og eru að sjálfsögðu til í mörgum mis-
munandi gerðum og litum. Hanskarnir eru á sama
verði.