Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 24
64 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Ein sú besta Kaffikönnur og brauðristir Katlar í mörgum litum Flestir þekkja orðið Kitchen Aid hrærivélarnar, enda hafa þær verið nánast óbreyttar I fjölda ára. Það vill svo til að það er óþarfi að breyta Kitchen Aid því þær þykja hvað bestar eins og þær eru og halda alltaf vinsældum sínum. Sumum finnast þær gamaldags í útliti en það er einmitt það sem gerir þær sjarmer- andi. Reyndar voru þær uppseldar er handbókin var á ferðalagi en væntanlegar á sama góða verðinu og þær hafa verið á. Kitchen Aid fæst í RAFBÚÐ SAM- BANDSINS, Ármúla 3, sími 687910. Alltaf eru þetta sígildar gjafir. Nú fást kaffikönnurn- ar hvítar eins og þessi á myndinni sem er til í tveimur útgáfum á 2.560-2.800 krónur en hún er af gerðinni Melitta Rio plus. Þá eru það Bauknecht brauðristir sem eru til í nokkrum gerðum á 1.660-3.150 krónur. Þessi á myndinni kostar 2.380 krónur. Dýrustu vélarn- ar eru fyrir fjórar brauðsneiðar. Allt fæst þetta í RAFBÚÐ SAMBANDSINS. Flraðsuðukatlar þurfa ekki endilega að vera stállitað- ir. Þeir geta líka verið hvítir, svartir, rauðir eða eitthvað arinað, að minnsta kosti eru þeir þannig í RAFBÚÐ SAMBANDSINS, Ármúla 3, sími 687910. Það eru katlar sem óþarfi er að fela inni í skáp. Þeir kosta 2.830 krónur. Einnig fást gufustraujárn sem kosta frá 2.180 krónum. Gufustraujárnið á myndinni kostar 2.750 krónur. Útvarps- og kassettutæki Thompson útvarps- og kassettutækið á myndinni fæst í RAFBÚÐ SAMBANDSINS, Ármúla 3, sími 687910. Það er með öllum bylgjum en kostar samt ekki nema 9.870 krónur. Einnig fást ferðatæki með FM og MW bylgjum, bæði með rafhlöðum og fyrir rafmagn, á aðeins 1.820 krónur. Þú nærð öllum nýju stöðvunum á þetta ódýra tæki. Frábær jólagjöf Þetta er ein af sniðugustu gjöfunum í ár. Þetta tæki er samþyggt útvarp, vekjari og svarthvítt sjónvarp sem kostar þó aðeins 13.650 kr. Tækið gengur bæði fyrir rafhlöðum og rafstraumi. Það má því hafa hvar sem er, til dæmis í eldhúsinu á meðan fréttirnar eru í sjón- varpinu, síðan má taka það með sér í háttinn og horfa á sjónvarpið til enda og láta tækið síðan vekja sig að morgni. Auðvitað er það einnig hentugt í sumar- húsið eða í vinnuna ef eitthvað er á seyði sem ekki má missa af - sem sagt til margra hluta nytsamlegt. Singer spori framar Þetta er Singer saumavélin, númer 6818, sem kost- ar 17.920 krónur. Hins vegar er vélin á sérstöku kynningarverði nú fyrir jólin og með því aðsýna þenn- an miða færðu vélina með eitt þúsund króna afslætti, sem sagt á 16.920 krónur. Singer saumavélin fæst í RAFBÚÐ SAMBANDSINS, Armúla 3,'sími 68791Ö. Baðskápar Er ekki tilvalið að flikka upp á þaðherbergið og gefa sjálfum sér fallegan baðskáp í jólagjöf? VALD PO- ULSEN, Suðurlandsbraut 10, sími 686499, býður mikið úrval af fallegum baðskápum og baðinnrétting- um frá Hafa. Baðskápurinn, sem er á myndinni, fæst í þremur gerðum og tveimur litum, hvítu og Ijósum aski. Verðið er mjög gott eða frá 4.065-5.585 krónur. India baðáhöld VALD POULSEN, Suðurlandsbraut 10, sími 686499, hefur á boðstólum geysilega mikið af falleg- um baðáhöldum I hvítu og rauðu, krómi og og gylltu. Á myndinni er t.d. hringur fyrir handklæði sem kostar 633 krónur, glas I höldu á 1.009 krónur, sápudiskur á 1.009 krónur og snagi á 413 krónur. Allt mjög skemmtilegir hlutir á góðu verði. Handunnir úr smíðajárni í versluninni, ZAREZKA HÚSIÐ, Hafnarstræti 17, sími 11244, fæst mjög mikið af íslenskum handunn- um smíðajárnshlutum fyrir heimilið eða sumarbústað- inn. Það er mjög vönduð vinna á þessum hlutum og eru þeir til í fjölmörgum útgáfum. Kertastjakarnir á myndinni kosta 350 og 390 krónur, sem telst ekki mikið í dag, og aðventukrans á 2.635 krónur. Einnig er boðist til að smíða eftir þínum eigin óskum, einnig leikföng og gjafavörur. Handavinna í Zarezka Er ekki skemmtilegt að gefa gjöf sem þú hefur búið til sjálfur? Hjá ZAREZKA HÚSINU, Hafnarstræti 17, sími 11244, er geysimikið úrval af fallegum ósaumuð- um púðum fyrir börn, unglinga og fullorðna. Á myndinni eru þrjár útgáfur, rósapúði sem kostar frá 549 krónum, kanínupúði frá 295 krónum og hjörtu, einnig frá 295 krónum. Það er ekki síður hægt að gefa púðana ósaumaða. Einnig mikið úrval af fallegu og góðu prjónagarni. Skrautlampi með gyilingu Hann er ákaflega sérkennilegur, skrautlampinn á myndinni sem minnir helst á vasa með loki. Hann er með gyllingu og kostar 1.800 krónur I versluninni LJÓS ÓG ORKA, Suðurlandsbraut 12, sími 84488. Einnig lítill borðlampi, heppilegur á náttborð, á 1.375 krónur, og fjölbreytt úrval af annars konar lömpum, vegglömpum, gólf- og borðlömpum. Lítill leslampi Þessi litli leslampi er eiginlega hlægilega ódýr, kost- ar aðeins 320 krónur. Hann fæst í versluninni LJóS OG ORKA, Suðurlandsbraut 12, sími 84488. Lampinn er bara klemmdur á bókina og þá geta þeir sofið róleg- ir sem ekki þola bókaorma seint á kvöldin. Leslampinn getur líka verið þægilegur á ferðalögum og fyrir þá sem vilja hafa mikla birtu yfir lesmálinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.