Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
77
Draumafjölskyldan
Hún er alveg meiri háttar krúttleg, nýja draumafjöl-
skyldan frá Mattel sem fæst í LIVERPOOL, Laugavegi
18, og í LEIKBÆ í Hafnarfirði. Á þessari mynd er til
dæmis ein útgáfan af henni en það eru hjón með
barn og mamman getur verið ófrísk í smátíma eins
og dúkkan sýnir sem stendur hjá þeim. Með henni
fylgja nefnilega tækifærisfötin. Þegar hún er búin að
fæða getur hún keypt sér barnavöggu, vagn og fleira
tilheyrandi og alltaf er hægt að bæta við. Kassinn
með mömmu, pabba og barninu og nokkrum fylgi-
hlutum fyrir litla barnið kostar 2.290 krónur. Barbie-
dúkkur eru hins vegar til frá 375 krónum.
Lundbyhúsið frábæra
Það er sannarlega frábært, sænska Lundby-dúkku-
húsið sem fæst í LIVERPOOL, Laugavegi 18, og í
LEIKBÆ í Hafnarfirði. Það er hægt að byrja að kaupa
það á tveimur hæðum og síðan er auðvitað hægt að
byggja við og stækka. Bílskúrinn getur beðið smá-
tíma. Það er kannski skemmtilegra að byrja að fylla
húsið af hinum frábæru húsgögnum sem til eru og
svo er auðvitað líka hægt að fá lampa því Lundby
er hægt að lýsa upp með alvöruljósi. Það er alveg
sama hvort það er lítið eða stórt, allt fæst í Lundby-
húsið, og ekki ætti að væsa um eigendur þess húss.
Sindyhúsið
Það eru mörg hús á boð-
stólum í LIVERPOOL og
LEIKBÆ því þarfæst núna
nýja tveggja hæða Sindy-
húsið. Sindy getur reyndar
valið um hvort hún vill
frekar búa á tveimur eða
þremur hæðum. Nýja hú-
sið kostar 2.690 krónur og
hægt er að fá alla fylgi-
hluti og auðvitað eigend-
urna sjálfa. Þetta er
leikfang sem stúlkurnar
dunda við árum saman og
hafa alltaf jafngaman af.
Meira að segja mömmurn-
ar nenna oft að leika sér
með.
Rosalegir og fjarstýrðir
Strákarnir ættu bara að kíkja á úrvalið af fjarstýrðum
bílum í LIVERPOOL, Laugavegi 18, og LEIKBÆ í
Hafnarfirði, til dæmis svarta löggubílinn sem ekur
ósköp venjulega um götur nema þegar einhvern þarf
að elta, þá setur hann allt í botn og sírenan og rauðu
Ijósin fara í fullan gang. Hann kostar 6.980 krónur
og trukkarnir vinsælu og jepparnir kosta frá 3.285
krónum.
Járnbrautarlestir
Þær eru alltaf draumaleikfang strákanna og helst
að þeir fái slíkt á jólum. í LIVERPOOL, Laugavegi
18, og í LEIKBÆ í Hafnarfirði fást vandaðar og
skemmtilegar járnbrautarlestir í mismunandi stórum
útfærslum, allt frá einum hring á 2.440 krónur upp í
marga metra á 5.700 krónur. Alltaf er hægt að bæta
inn í vögnum og teinum. Þessi lest heitir Lima Mod-
els og henni fylgir straumbreytir.
Það má þvo þessar dúkkur sem koma frá frændum
okkar í Danmörku. Og svo er hægt að velja hvaða
þjóðerni sem mann langar helst í því þær eru til svart-
ar, gular og hvítar. Þessar dúkkur kosta frá 1.070
krónum en þessar á myndinni kosta 1.660-1.830
krónur. Sú sem liggur er heldur stærri, eða 65 cm,
og kostar hún 2.270 krónur. Sú er ekta til að drusl-
ast með, eins og sagt er. Þær fást í LIVERPOOL og
LEIKBÆ.
ævintýra-karlar ásamt
fylgihlutum.
Danskardúkkur
Veggarm-
bandsúr
Það er ekki amalegt,
þetta rosalega armbandsúr
sem er hvorki meira né
minna en 85 cm á lengd.
Það sómir sér vel á hvaða
vegg sem er og kostar ekki
nema 1.550 krónur í
LIVERPOOL, Laugavegi
18. Þetta er sannarlega
frumleg gjöf sem kemur á
óvart. Einnig fást venjuleg
armbandsúr á aðeins 380
krónur og borðklukka í
mörgum litum á 1.350
krónur. Það er stórkostlegt
úrval af gjafavöru í Liver-
pool, það máttu vera viss
um.
HINIR
HEIMSFRÆGU
v íi-\
Nýtt frá Fisher Price
Hér á myndinni er glænýtt Fisher Price-hús fyrir
yngstu börnin, frá eins árs upp í þriggja ára, sem fæst
í LIVERPOOL, Laugavegi 18, og LEIKBÆ, Hafnar-
firði. Því fylgja karlar og hjól og á því er hægt að
færa til ýmsa hluta og opna og láta skralla eins og
litlu börnunum finnst svo skemmtilegt. Þetta hús er
á mjög góðu verði eða 1.890 krónur.
Laugavegi 18a S: 11135-14201
Landsins mesta úrval
Skrifið -
hringið —
komið.