Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 50
90
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
Fallegir jólakjólar
í versluninni BOMBEY, Reykjavíkurvegi 62, sími
54600, er geysilega mikið til af fallegum jólafatnaði
á börnin. Jólakjólar á stúlkur frá sex mánaða og upp
í tiu ára í fimmtán gerðum. Á myndinni eru þrír falleg-
ir jólakjólar frá Englandi og írlandi. Efst til vinstri er
pallíettuskreyttur kjóll sem kostar 3.420 krónur, þá
lítill sætur bleikur kjóll á 1.780 krónur og loks hvítur
og rauður kjóll með svörtu flauelsbandi í mittinu á
2.700 krónur. Þessi fatnaður fæst eingöngu í Bom-
bey. En reyndar eru þar til kjólar á 400-4.200 kr.
Utifatnaður í Bombey
Verslunin BOMBEY, Reykjavíkurvegi 62, sími
54600, selur útigalla og úlpur á alla krakka. Tvískipt-
ur, fallegur útigalli kostar aðeins 2.800 krónur og er
til á börn frá eins árs aldri. Dúnúlpurnar eru einnig á
mjög góðu verði eða frá 3.990 krónum í barnastærð-
um en 5.800 í dömu- og herrastærðum.
Telpnakápa og drengjaföt
Ef sparikápu vantar fyrir jólin þá fæst hún í BOM-
BEY, Reykjavíkurvegi 62, sími 54600. Þessar fallegu
telpnakápur eru með hettu og mjög hlýjar og fást á
3ja til 8 ára. Þær eru á mjög góðu verði eða aðeins
3.900 krónur. Drengjasparifötin eru til á 2ja til 6 ára
og kostar settið, buxur og vesti, aðeins 1.980 krón-
ur. Skyrtan kostar frá 600 kr. og er til í mörgum litum
og leðurslaufa kostar 250 krónur. Leðurbindi eru á
sama verði.
Álklæddar
úlpur
I SPORTMARKAÐN-
UM, Skipholti 50c, sími
31290, fást extra hlýjar og
léttar, álklæddar úlpur á
aðeins 3.285 krónur. Það
væsir ekki um neinn á fjöll-
unum í slíkri flík. Einnig
dúnhúfur, sem eru með
þeim bestu á 1.135 krónur
og lúffur á 299 krónur. Þú
getur valið um marga liti.
Seiko í Hafnarfirði
Hann TRYGGVI ÓLAFSSON úrsmiður, Strandgötu
17, sími 53530, er sá eini í Firðinum sem selur Seiko
og veitir alla þjónustu. En hann býður auðvitað einn-
ig margar fleiri gerðir og má hér sjá nokkrar þeirra.
Frá vinstri er látlaust og fallegt kvenúr sem heitir
Júpiter. Það er til í þremur litum og kostar 2.380 krón-
ur, þá er tvílitt Orient úr á 10.390 krónur, Citizen
herraúr á 11.790, Seiko stálúr á 8.960 og Favre Le-
uba á 6.250 kr. með rómverskum tölum. Einnig fást
vekjaraklukkur, stofuklukkur og mikið úrval skartgripa.
Pentax í gjafakassa
Þetta er Pentax Pinu 35 mm, frábær myndavél í
gjafakassa með rafhlöðum, tösku og filmu á aðeins
6.654 krónur. Hún fæst hjá LJÓSMYNDAVÖRUM,
Skipholti 31, sími 25177. Þar er mikið úrval af jóla-
gjöfum svo sem þrífætur, töskur, skuggamyndir,
albúm og margt fleira. Alls sautján gerðir af fullkomn-
um litlum myndavélum. Það má segja að hjá Ljós-
myndavörum sé allt til að skrá fjölskyldusöguna í
myndum. Meira að segja framköllunin.
Pentax sjónaukar
Hjá LJÓSMYNDAVÖRUM, Skipholti 31, sími
25177, fást fjórtán gerðir af sjónaukum frá 7x35 upp
í 16x50 og verðið er frá 6.845 krónum. Þessir sjónauk-
ar hafa það fram yfir aðra að þeir eru með sérstökum
filterum fyrir útfjólublátt Ijós og skaða því ekki aug-
un. Það er ekki síst þess vegna sem þeir eru mjög
mikið notaðir af atvinnumönnum.
Skíðaskór
Þeir eru bæði til á börn og fullorðna, skíðaskórnir
í SPORTMARKAÐNUM, Skipholti 50c, sími 31290.
Skíðaskórnir eru af gerðinni Trappeur og Tecnica.
Þetta eru nýir skór sem Sportmarkaðurinn flytur inn
sjálfur en einnig hafa þeir mikið úrval af skíðavörum
sem þeir selja í umboðssölu. Þá er einmitt hægt að
versla mjög ódýrt þó hluturinn sé sem nýr.
Hagan skíði
Þeir hjá SPORTMARKAÐNUM, Skipholti 50c, sími
31290, selja Hagan skíði í miklu úrvali. Þau eru að
sjálfsögðu glæný en Sportmarkaðurinn er einnig með
mikið af vetrarvörum í umboðssölu. Hagan skíðin
kosta frá 2.580 krónum, lúffur kosta frá 285 krónum
og húfur frá 350 krónum. Einnig fást skíðagleraugu
á 21 5 krónur.
Kasthjól og hnífar
Fyrir veiðimanninn er ýmislegt að fá í SPORT-
MARKAÐNUM, Skipholti 50c, sími 31290. Má
benda hér á góðar jólagjafir handa honum eins og
til dæmis kasthjól frá Silstar á 1.635 krónur og
Shakespeare á 2.730 krónur. Á myndinni eru einnig
vasahnífar og hnífar í leðurhulstrum í úrvali á verði
frá 2.500 krónum,
Sporttöskur
Þessar sporttöskur á myndinni eru mittistöskur til
að hafa þegar verið er á skíðum. Þær eru af gerðinni
Swix, sem þykir mjög gott merki. Mittistöskurnar
kosta frá 432 krónum en stærri töskur með axlarólum
kosta frá 998 krónum. Þú getur valið um mjög stórar
töskur eða minni, jafnvel mittistöskur sem mjög eru
vinsælar í Sportmarkaðnum.
Hljómtæki í Sportmarkaðnum
Já, það er úrval af hljómtækjum í SPORTMARK-
AÐNUM, Skipholti 50c, sími 31290. Þetta eru allt
notaðar vörur og því á mjög hagstæðu verði. Auk
hljómtækja eru sjónvörp, bíltæki og allar vetrarvörur.
Það getur oft borgað sig að kíkja inn í Sportmarkað-
inn og sjá hvað þar er að fá.