Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1987, Side 4
4
LAUGARDAGUR 28. MARS 1987.
Fréttir
Steinullarverksmiðjan a
Sauðárkróki gjaldþrota
Reyna á að Irfjga hana við með 60 milljóna króna nýju hlutfé og ýmiss konar hagræðingu
Staða Steinullarverksmiðjunnar á
Sauðárkróki er með þeim hætti að hún
er í raun gjaldþrota fyrirtæki. Eigna-
raðilar verksmiðjunnar eru nú með
björgunaraðgerðir í bígerð. Jónas El-
íasson, aðstoðarmaður iðnaðarráð-
herra, var spurður hvort raunhæft
væri að reyna að bjarga verksmiðj-
unni með nýju hlutafé upp á 60 millj-
ónir króna en ríkið á 40% eignaraðild
að verksmiðjunni.
„Ég veit ekki hvort það er raun-
hæft. Ríkið er eignaraðili að 40%
hlutafjár en ýmsir aðilar eiga síðan
60%. Þegar fyrirtækið er í rauninni
gjaldþrota má segja að eigendur séu
búnir að spila sína rullu í fyrirtækinu
og aðrir koma og segja hvað á að gera.
Það hafa aðilar, bæði frá ráðuneytum
og stjóm fyrirtækisins verið að vinna
í málinu og búið til það sem við gætum
kallað pakka, sem búið er að leggja
fyrir alla hagsmunaaðila," sagði Jón-
as.
Hann sagði að í þessum pakka væri
gert ráð fyrir að inn í fyrirtækið kæmi
nýtt hlutafé upp á 60 milljónir króna.
Þá er gert ráð fyrir því að lán verði
skrifuð niður til að lækka fjármagns-
kostnað. Einnig er gert ráð fyrir að
umboðsmenn lækki sín umboðslaun,
starfsfólk taki á sig ýmsar hagræðing-
ar, dregið verði úr kostnaði við
framleiðsluna og að steinullarverðið
hækki.
„Þetta liggur á borðinu nú þegar en
síðan verða eignaraðilar að sam-
þykkja þessar hugmyndir. Það er hins
vegar alveg ljóst að annaðhvort verð-
ur þessi leið farin eða þá verksmiðjan
er gjaldþrota. Ríkisstjómin er tilbúin
til að gera þessa tilraun, en hvort hún
er raunhæf verður bara að koma í
ljós,“ sagði Jónas Elíasson, aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra. -S.dór
Albert að verða langafi
Það gölgar brátt í Borgaraflokkn-
um fyrir alvöm. Albcrt Guðmunds-
son verður langafi áður en langt um
h'ður:
„Ég held að afi sé himinlifandi með
þetta. Ég á von á mér í júní,“ sagði
Jóhanna Sveinjónsdóttir en hún er
dóttir Helenu Albertsdóttur. Þrátt
fyrir þungunina var Jóhanna á kafi
í kosningastarfi á skrifstofu Borg-
araflokksins í gær ásamt móður
sinni, firændum og stuðningsmönn-
um afa síns sem nú ætlar fram á
eigin vegum.
„Nei, bamið á ekki að heita Al-
bert. Það em þegar komnir tveir
Albertar í fjölskylduna," sagði Jó-
hanna og átti þar við yngri bróður
sinn og son Inga Bjöms Albertsson-
ar.
Jóhanna er tvítug og stefhir að því
að ljuka stúdenteprófi í vor. Að því
loknu ætlar hún að flytja vestur um
haf til móður sinnar í Tulaa, Okla-
homa: „Unnusti minn, ólafur
Haraldsson, ætlar að hefja nám í
markaðsfræðum ytra og ég býst
eirrnig við að frtra í nám þegar bar-
nið stækkar. Annað er óráðið.“
- Bauð afi þinn þér ekki sæti á
lista hjá sér?
„Nei, það gerði hann ekki. En ég
er bjartsýn fyrir hans hönd, ég held
að þetta eigi eftir að ganga vel,“
sagði Jóhanna. -EER
Jóhanna Sveinjónsdóttir og Helena móölr hennar ráöa ráöum sfnum ð
kosningaskrttstofu Borgaraflokksins i gær. DV-mynd GVA.
I öðru sæti hjá Albert:
„Hef ekki alltaf kosið Sjálfstæðisflokkinn“
- segir Guðmundur Ágústsson
Guömundur Ágústsson hefur hallast til hægri meö ðrunum. DV-mynd GVA
„Þetta framboð var fyrst ámálgað
við mig fyrir nokkrum dögum. Að ég
skyldi lenda svona ofarlega á listanum
vissi ég hins vegar ekki fyrr en á
fimmtudagskvöldið," sagði Guðmund-
ur Ágústsson, annar maður á lista
Borgaraflokksins í Reykjavík. „Mér
var sagt að Albert hefði viljað fá ung-
an, menntaðan mann í annað sætið
og ég orðið fyrir valinu."
Guðmundur er 28 ára og settist í
lagadeild Háskóla íslands eftir að hafa
lokið stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um við Hamrahlíð 1978.1 lagadeildinni
sat hann í fimm ár og að námi loknu
starfaði hann í þrjú ár á lögmanns-
stofú Guðjóns Ármanns Jónssonar. {
apríl í fyrra opnaði hann síðan eigin
stofu í Skipholti, við hliðina á Sóknar-
húsinu þar sem Aðalheiður Bjam-
freðsdóttir ræður ríkjum. Aðalheiður
skipar sem kunnugt er þriðja sætið á
lista Borgaraflokksins í Reykjavík en
Guðmundur þvertekur fyrir að nokkur
tengsl séu á milli setu þeirra á lista
Alberts og vinnustaðanna við Skip-
holt.
„Já, við Albert erum skoðanabræður
en það er hins vegar ekkert leyndar-
mál að ég hef ekki alltaf kosið Sjálf-
stæðisflokkinn í kosningum. Á hitt ber
að líta að maður hallast meira til
hægri í skoðunum með aldrinum,"
sagði Guðmundur og bætti þvi við að
hann væri bjartsýnn á velgengni
Borgaraflokksins í væntanlegum
kosningum.
Guðmundur Ágústsson á ættir sínar
að rekja í Borgarfjörðinn en bemsku-
stöðvar hans vom við Grensásveginn
í Reykjavík og skólagöngu sína hóf
hann í Hvassaleitisskóla. Hann er
kvæntur Sigríði Sigurðardóttur upp-
eldisfræðingi og eiga þau þijár dætur.
„Helstu áhugamál mín tengjast
íþróttum. Ég spila fótbolta einu sinni
í viku og reyni síðan að fylgjast með
á þeim vettvangi. Þá gríp ég í bridge
og skák í tómstundum," sagði Guð-
mundur. -EIR
Hafskipsmálið:
Verður Albert
ákærður?
„Það er verið að vinna að athugun
málsins," sagði Hallvarður Einvarðs-
son ríkissaksóknari í samtali við DV
þegar borin var undir hann fiétt Hel-
garpóstsins síðastliðinn fimmtudag.
Þar er fullyrt að búast megi við ákæru
á hendur Albert Guðmundssyni - og
reyndar öllum stjómarmönnum Haf-
skips. Hallvarður var inntur eftir
sannleiksgildi fréttarinnar - hvort svo
kynni að fara að Albert Guðmundsson
yrði dreginn til ábyrgðar í málinu og
ákærður og þá hvort sama gilti um
staka stjómarmenn Hafskips eða jafn-
vel alla stjómina á hverjum tíma,
„Ég hef svarað því sem ég vil segja
um þetta mál,“ endurtók Hallvarður.
Þegar hann var beðinn um að svara
spumingunni sagði Hallvarður orð-
rétt:
„Heldur þú að þú stjómir spuming-
urn um þetta mál?“
I frétt Helgarpóstins segir að vem-
legar líkur séu taldar til þess að
stjómarmenn muni ekki sleppa við
ákæm, þeir verði gerðir samábyrgir
fyrir meintum refsiverðum atriðum og
þá muni nöfh um tuttugu þekktra at-
hafnamanna - og sjálfstæðismanna
piýða ákæruskjalið. Aðspurður um
sannleiksgildi þeirra fullyrðinga svar-
aði Hallvarður Einvarðsson ríkissak-
sóknari:
„Það er unnið að athugun málsins
eins og ég hef áður sagt og það er
mitt svar við þessum spumingum."
-baj
Blaðamannafélag íslands:
Starfsréttur
fjölmiðlafólks
sé virtur
Stjóm Blaðamannafélags Islands
kom saman til fundar í gær vegna
atburðarins sem átti sér stað á Hótel
Borg á fimmtudag þegar Albert Guð-
mundsson veittist að Einari ólasyni
ljósmyndara. Stjómin samþykkti eftir-
farandi ályktun:
„Stjóm Blaðamannafélags Islands
fordæmir þann atburð sem gerðist á
Hótel Borg síðastliðinn fimmtudag er
Albert Guðmundsson, fiáfarandi iðn-
aðarráðherra, veittist að Einari
Ólasyni, ljósmyndara Þjóðviljans, með
þeim afleiðingum að Einar hlaut slæm
meiðsl.
Stjóm Blaðamannafélagsins krefst
þess að starfsréttur fjölmiðlafólks sé
virtur. Jafriframt bendir stjóm félags-
ins á að starfsvettvangur fréttamanna
er þar sem eldurinn brennur heitast
hveiju sinni og þvi hljóta þeir sem em
í eldlínunni að gera róð fyrir miklum
samskiptum við fréttamenn.
Stjómin lítur atburðinn á Hótel
Borg alvarlegum augum og vonar að
til slíks komi ekki aftur.“ -S.dór
Fiskvinnslunámskeið í Eyjum:
Ómax Gaxítesson, DV, Vestmaxmaeyjuxn:
Námskeiðum fiskvinnslufólka í
Vestmannaeyjum, sera hófust sl.
haust, lýkur formlega með afhend-
ingu skírteina í dag, laugardag, í
samkomuhúsinu. Alls munu um 260
manns ljúka námskeiðunum að
þessu sinni en það er stærsti hópur-
inn sera útakrifast hefiir á landinu.
_ I tilefhi þe&sa var ákveðið að sýna
á laugardag og sunnudag kvikmynd-
ina Silfitr hafsins en hún fjallar um
sfldveiðar og síldarvinnslu íslend-
inga í 100 ár.