Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Síða 19
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987.
19
Menning
Víðsýnn og
kurteis heimsmaður
Gylfi Þ. Gíslason:
Hagsæld, timi og hamingja
Úr ritgerðum og ræðum
Almenna bókafélagið, Reykjavík 1987.
Gylfi Þ. Gíslason naut takmark-
aðra vinsælda, á meðan hann var
stjórnmálamaður. Bar þar margt
til. Mörgum fannst hann um of
framagjarn, og haft var á orði, að
hann væri hégómlegur. Hann þótti
ennfremur nokkur tækifærissinni.
Það spillti líka fyrir honum, að í
utanríkismálum átti hann lengi
samleið með kommúnistum. Og
vandfýsnum vísindamönnum á
sviði stjórnmála og hagfræði fannst
hann ófrumlegur og grunnfærinn í
orði og hugsun, þótt hann væri
langskólagenginn og hefði verið
háskólaprófessor, áður en hann
varð ráðherra. „Gylfi Þ. Gíslason
hefur aldrei skrifað djúpan texta,“
sagði mér einn þeirra.
Eftir að Gylfi hætti stjórnmálaaf-
skiptum, hefur orðstír hans hins
vegar aukist. Nú rifja menn upp,
hversu vinnusamur og samvisku-
samur ráðherra hann var, sérstak-
lega í viðreisnarstjórninni. Enginn
vafi leikur á því, að hann er í hópi
frambærilegustu stjórnmálamanna
síðustu áratuga, og það má hann
eiga, að hann hefur aldrei verið
áreitinn eða illvígur í stjórnmála-
starfi. Gylfi nýtur þess nú, að hann
er víðsýnn og kurteis heimsmaður
jafnframt því sem hann er einlægur
áhugamaður um íslenska menn-
ingu, listir og bókmenntir. Frjáls-
lyndir menn á íslandi kunna og að
meta, að hann hefur öðrum félags-
hyggjumönnum fremur verið
hlynntur frjálsri verslun og frjálsri
samkeppni.
Hagsæld og farsæld
Meginstefið í bók þeirri, sem Al-
menna bókafélagið gaf út á sjötugs-
afmæli Gylfa Þ. Gíslasonar í
febrúar 1987, er, að hagsæld leiði
ekki sjálfkrafa til farsældar. Mann-
inum nægi ekki að eignast auð:
hann verði líka að bjarga sál sinni.
Gylfi kemur þessari hugsun alls
staðar að, hvort sem um er að ræða
langar fræðilegar ritgerðir eða
tækifærisræður, og hún verður
honum tilefni til margra háfleygra
orða og setninga. Ef einhver annar
rauður þráður er í bókinni, þá er
hann sennilega sá, að hið frjálsa
hagkerfi fái, þrátt fyrir ýmsa góða
kosti, ekki staðist án víðtækra af-
skipta ríkisins. En sú ritgerð, sem
samnefnd er bókinni, er að mínum
dómi athyglisverðust. Þar segir
Gylfi frá hugleiðingum ágæts
sænsks hagfræðings (og eins leið-
toga sænska Ihaldsflokksins),
prófessors Staffans Burenstams
Linders, um tímaskortinn, sem sigli
í kjölfar tækniþróunar og aukinnar
velmegunar.
Það er alkunna, að fátæku fólki
í Suðurlöndum liggur oftast ekki
á. Lífið gengur þar sinn hægagang,
á meðan allir ílýta sér sem mest
þeir mega á þeirri Fimmtutröð, sem
Einar Benediktsson orti um í
kvæði sínu frá New York. Hvernig
stendur á þessu? Skýring Linders
er í fæstum orðum, að tíminn verði
fólki því meira virði sem tækifær-
unum fjölgi til þess að nýta hann
betur. Eftirspurnin eftir honum
eykst, ef svo má að orði komast,
en framboðið er næstum því
óbreytt, eins og alræmt er. Aftan
við þessar hugleiðingar Linders
hnýtir Gylfi þeirri frómu ósk, að
menn láti þennan aukna tímaskort
ekki ná of sterkum tökum á sér.
Þeir megi ekki gleyma sjálfum sér
í heimsins glaumi. Þeir verði að
breyta sér og bæta sig.
Réttlát tekjuskipting
Bókin skiptist í sex hluta. Einn
er helgaður jafnaðarstefnunni, en
Gylfi hefur löngum verið einn ötul-
asti talsmaður hennar á íslandi.
Gylfi viðurkennir raunar, að al-
menn velmegun verði miklu meiri
í frjálsu eða sjálfstýrðu hagkerfi
heldur en í því miðstýrða hagkerfi,
sem sósíalistar fyrri ára hugsuðu
sér. En hann telur ranglátt (bls.
70), „að eign færi eiganda nokkru
sinni meiri tekjur en svarar til þess
verðs, sem hæfilegt er að greiða
fyrir þjónustu hennar. Hér er um
að ræða eitt helsta ágreiningsefni
jafnaðarmanna og einkareksturs-
sinna, sem telja markaðslögmál
eiga að ráða þeim tekjum, sem
eignamenn hafa af eignum sínum
og aðstöðu."
Hér er margt að athuga. Hvað
er „hæfilegt" að greiða fyrir þjón-
ustu eignar? Frjálshyggjumenn
telja, að það hljóti kaupandi og
Bókmenntir
Hannes H. Gissurarson
seljandi að ákveða í frjálsum samn-
ingum sín á milli. En við því hreyfir
Gylfi þeirri mótbáru, að stundum
séu slíkir samningar ekki frjálsir,
þar eð seljandi hafi einokunarað-
stöðu og geti knúið fram hærra
verð en hæfilegt sé. Frjálshyggju-
menr. taka undir, að þetta geti
stundum gerst, enda sé eina eðli-
lega skilgreiningin á arðráni, að
það sé einokunarhagnaður. En
hvað um samninga, sem eru í raun
og veru frjálsir? Hér greinir frjáls-
hyggjumenn á við jafnaðarmenn.
Þeir geta sofið á næturnar, þótt
öðrum gangi vel. Jafnaðarmenn
siga hins vegar á fólk skattheimtu-
mönnum. Og hvaða tryggingu
höfum við raunar fyrir því, að sú
tekjuskipting, sem leiðir af samn-
ingum á vettvangi stjórnmálanna
(þ.e. pólitískum hrossakaupum), sé
réttlátari en sú, sem leiðir af samn-
ingum úti á frjálsum markaði?
Einokun og stórfyrirtæki
Önnur andmæli Gylfa við hinu
sjálfstýrða hagkerfi eru sótt í rit
bandaríska sósíalistans Johns
Kenneths Galbraiths. Þau eru, að
það hafi tilhneigingu til að breyt-
ast í kerfi einokunarkapítalisma,
þar sem nokkur stórfyrirtæki ráði
mörkuðum. „I nútímaiðnríki hefur
hins vegar verið um sívaxandi til-
hneigingu til stórreksturs að
ræða,“ skrifar Gylfi. „Stór fyrir-
tæki og fyrirtækjasamtök setja í æ
ríkara mæli svip sinn á atvinnulíf-
ið. Þá koma ný vandamál til
skjalanna. Hætt er við, að slík fyr-
irtæki öðlist óeðlilega mikil áhrif
í þjóðfélaginu. Þess vegna verður
hið opinbera að hafa skilyrði til
þess að hafa með þeim eftirlit."
Ég ræddi um þessi andmæli í
nokkrum smáatriðum í doktorsrit-
gerð minni, sem gefin var út í
Bandaríkjunum um svipað leyti og
bók Gylfa hér á landi, og komst að
þeirri niðurstöðu, að jiau styddust
ekki við staðreyndir. A síðustu ára-
tugum hefur ekki verið tilhneiging
til þess að fyrirtæki stækki og þeim
fækki, eins og þeir Galbraith og
Gylfi halda fram. Öðru nær. Sam-
keppni fyrirtækja er nú harðari en
áður, meðal annars vegna þess að
fólki hefur fjölgað, samgöngur hafa
batnað og tækni hefur fleygt fram.
Þetta merkir, að fyrirtæki starfa
við meiri aga en áður, svo að minni
þörf er á eftirliti ríkisins með þeim.
A ýmsum sviðum atvinnulífsins er
stórrekstur ekki heldur eins hag-
kvæmur og smárekstur, þar sem
sérþekking einstaklinga nýtist
Gylfi Þ. Gíslason.
jafnan betur. Og hver á að hafa
eftirlit með eftirlitsmönnunum?
Ættum við satt að segja ekki að
hafa mestar áhyggjur af einokun-
arfyrirtækjum ríkisins, til dæmis
Ríkisútvarpinu. þar sem stjórnend-
ur og starfsmenn virðast fara sínu
fram án nokkurs tillits til þarfa og
óska neytenda?
Hugmyndir Gylfa um stjórn-
skipan
Gylfi Þ. Gíslason er einn örfárra
stjórnmálamanna á íslandi. sem
spyrja ekki aðeins að leikslokum í
stjórnmálum. heldur velta líka fyr-
ir sér þeim leikreglum. sem þar
gilda. í bókinni er einmitt birt vfir-
gripsmikil ritgerð um stjórnar-
skrármál frá 1945. Kjarninn í
tillögum Gvlfa er. að takmarka
þurfi kost þingmanna á hrossa-
kaupum með þvi að minnka þau
áhrif, sem þeir geti haft á fram-
kvæmdavaldið. Hann telur. að til
þess eigi þjóðkjörinn forseti að
skipa ríkisstjórn. Hann er ennfrem-
ur þeirrar skoðunar. að einmenn-
ingskjördæmi geri þingmenn of
háða kjósendum sínum. svo að at-
kvæðakaup aukist. Þess vegna
leggur hann til. að landinu sé skipt
í fimm stór kjördæmi (en svipuð
hugmynd var framkvæmd árið
1959, en landinu var þá skipt í átta
kjördæmi).
Ég held að Gvlfi flvtji vandann
aðeins til með þessum hugmyndum.
en leysi hann ekki. Það skiptir
ekki eins miklu máli. hverjir fara
með valdið og hvaða skorður því
eru settar. Segjum sem svo. að þjóð-
kjörinn forseti skipi ráðherra og
fari með framkvæmdarvald. Hvaða
tryggingu hefur Gvlfi fvrir því. að
slíkur forseti verði óháður pólitísk-
um hrossakaupum? Albert
Guðmundsson fékk þrátt fvrir allt
um 20% atkvæða í forsetakjöri árið
1980. Og gallinn við það að skipta
landinu i fá og stór kjördæmi er.
að smáfiokkar eiga auðveldara með
að koma mönnum á þing. en við
það eykst upplausn. Ég held, að við
hljótum á næstu árum einkum að
huga að því, hvernig við getum
endurbætt stjórnarskrána, þannig
að misnotkun valds verði valds-
mönnunum sjálfum dýrari og því
óliklegri.
Ég get ennfremur ekki stillt mig
um að nefna örlítið dæmi um. að
ekki verður við öllu séð-með skyn-
samlegum leikreglum. Gylfi segir
(bls. 57): „Ákæruvaldið í opinber-
um málum hefur og verið í höndum
dómsmálaráðherra. og hefur ekki
reynst heppilegt. að stjórnmála-
menn fari með það vald. Það hefur
átt sér stað. að því er virðist vegna
stjórnmálahagsmuna. að ekki hafi
verið höfðað mál á hendur mönn-
um. sem réttarrannsókn hefur þó
leitt í ljós. að gerst hafa brotlegir
við lög. og er slíkt vitanlega
óhæfa." Þetta var sem betur fer
gert á viðreisnarárunum: ákæru-
valdið var tekið af dómsmálaráð-
herra og falið sérstökum
saksóknara ríkisins. En síðan kom
Hallvarður Einvarðsson til
sögu...
Ágætur frágangur
Helgi Skúli Kjartansson sagn-
fræðingur bjó þessa bók til prent-
unar. Frágangur hennar er ágætur
og vandað til pappírs og leturs.
Margar mvndir af Gylfa. fjölskvldu
hans og ýmsum fvrirmönnum. sem
hann hefur hitt um dagana. prýða
hana. Við snöggan vfirlestur rakst
ég þó á nokkrar afleitar villur: Þing
vestur-þýskra jafnaðarmanna í
Godesberg. þar sem horfið var frá
miðstýringu og áætlunarbúskap.
var til dæmis ekki haldið árið 1952.
eins og'segir á bls. 87. heldur 1959.
Og ræðustúfur eftir Gvlfa er kvnnt-
ur á bls. 139 sem ávarp á 50 ára
afmæli Leikfélags Akureyrar. en
þetta er greinilega erindi á fimmtíu
ára afmæli Háskóla íslands.
Sjálfur hefði ég hins vegar hagað
þessari útgáfu með öðrum hætti.
Ég hefði valið annað efni til út-
gáfu, sleppt innihaldslitfum tæki-
færisræðum frá ráðherraárum
Gylfa, en birt í staðinn fróðlega
háskólafyrirlestra hans frá fimmta
áratugnum, sem prentaðir voru á
sínum tíma í Samtíð og sögu, til
dæmis „Er styrjöldin stríð milli
hagkerfa?" og „Vísindalegt þjóð-
félag“. En þetta breytir því ekki,
að Gylfi er vel að bókinni kominn
og að henni mikill fengur fyrir alla
áhugamenn um þjóðmál.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
SHIPMATE
RS 8000
- allar rásir
- tvöföld hlustun
- 1 og 25 vött
- hagstætt verð
Fridrik A. Jónsson h.f.
Skipholti 7, Reykjavik,
Simar 14135 - 14340.
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.....91-31815/686915
AKUREYRI:.......96-21715/23515
BORGARNES:.............93-7618
BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:.....95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489
HÚSAVÍK:........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:...........97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ......97-8303
interRent
Urval
vid allra hæfi