Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Síða 27
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987.
27
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
JM~T 0, vesalingurinn 'smái,
hvar finnurðu til?
^Ég held að hann geti enn náðX^
tökum á konunum, en hann þarf
samt á þeim styrk að halda sem"'
hann fær úr þessu glasi.
■ Atvinnuhúsnæði
Hús verslunarinnar. Til leigu strax er
eitt skrifstofuherbergi i Húsi verslun-
arinnar. Afgreiðsluaðstaða, símaþjón-
usta og húsgögn geta fylgt. Tiíboð
sendist DV fyrir mánudaginn 11. maí
nk., merkt „Hús verslunarinnar“.
25-35 m! skrifstofuhúsnæði óskast,
helst með símaþjónustu. Hafið sam-
band við auglþj. DV í síma 27022.
H-3262.
lönaðarhúsnæði óskast til leigu, 50-150
fm, á Stór-Reykjavíkursvæðinu, allt
kemur til greina. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-3274.
Gott skrifstofuhúsnæði í Ármúla til
leigu strax. Uppl. í símum 686535 og
656705.
Óska eftir að taka á leigu 50-200 fm
iðnaðarhúsnæði. Uppl. í símum 671947
og 43009.
■ Atvinna í boði
Ljósmyndaþjónustan hf., Laugavegi
178, óskar eftir starfsmanni. Um fram-
tíðarstarf er að ræða. Óskað er eftir
starfsmanni á aldrinum 18-25 ára sem
hefur einhverja þekkingu eða áhuga
á ljósmyndun. I starfinu felst m.a. af-
greiðsla í verslun, útkeyrsla, söluferð-
ir o.fl. Hafið samband við auglþj. DV
í síma 27022. H-3235.
Smáauglýsingaþjónusta DV. Þú getur
látið okkur sjá um að svara fvrir þig
símanum. Við tökum við upplýsingun-
um og þú getur síðan farið yfir þær í ^
ró og næði og þetta er ókeypis þjón-
usta. Síminn er 27022.
Húsgagnaframleiðsla. Óskum eftir
starfsfólki við framleiðslu og samsetn-
ingu á húsgögnum. mikil vinna, góð
aðstaða og mötuneyti. Uppl. á staðn-
um. Kristján Siggeirsson. Hesthálsi
2-4, Reykjavík.
Okkur vantar fólk í ýmis störf fyrir við-
skiptavini okkar. Látið skrá ykkur
hjá Atvinnuþjónustunni. Athugið.
Skráum í dag aðeins á milli 17 og 20.
Atvinnuþjónustan. ráðningarþjón-
usta. sími 79920.
Bílasmiðlr - blikksmiðir. Óskum að
ráða menn til framleiðslu á álgluggum
og hurðum í áldeild okkar að Bílds-
höfða 18. Uppl. gefnar á skrifstofunni.
Síðumúla 20. Gluggasmiðjan.
Bilstjórar + vélamenn. Abyggilegir og
duglegir vélamenn og bílstjórar með
meirapróf óskast strax. mikil vinna.
Hafið samband við auglþj. DV í síma
27022. H-3268.
Eldhúsvinna. Okkur í Skógarborg 2.
dagheimili við Borgarspítalann. vant-
ar góða eldhúskonu. helst í maí.
vinnuhlutfall 75 %. Uppl. hjá for-
stöðumanni í síma 696702.
Er einhver góð kona á aldrinum 35—55
ára sem hefur gaman af börnum og
vill vinna í eldhúsi á litlu dagheimili
4-5 tíma á dag? Uppl. á Kársnesbraut r
121 milli kl. 16 og 19 í dag og á morgun.
Hafnarfjörður. Óskum að ráða mann á
Payloader og nýja traktorsgröfu.
einnig verkamenn með lyftararéttindi.
Uppl. í síma 54016 og eftir kl. 19 í síma
50332.
Húsgagna- eða húsasmiður. Trésmíða-
þjónustuna Gófer hf.. Kársnesbraut
100. Kópavogi. vantar nú þegar eða
sem fvrst menn á verkstæði. Uppl. á
staðnum. ekki í síma.
Járniðnaðarmenn. Okkur vantar nú
þegar vélvirkja. suðumenn eða menn
vana járniðnaði. Gneisti hf.. vél-
smiðja. Laufbrekku 2. Kópavogi. sími
641745 og 78607.
Söluturninn Pólis óskar eftir
afgreiðslustúlku. þarf að vera vön ís- ‘
sölu og ekki vngri en 20 ára, tvískiptar
vaktir. Uppl. á staðnum í dag til kl.
18. Pólís. Skipholti 50c.
Veitingahúsið Fógetinn óskar eftir
starfsfólki í sal, einnig óskast mat-
reiðslumaður og aðstoðarmaður í
eldhús. Uppl. gefnar í símum 18082 og
16323.
Kvennmaður óskast til starfa í eldhúsi
(uppþvottur o.fl.), vinnutími 4-5 tímar
eftir hádegi. Breiðholtskjör, Arnar-
bakka 4-6 og í síma 74700.
Bakari. Stúlkur, vanar afgreiðslu, ósk-
ast til starfa um helgar. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-3275.
Heildverslun vill komast í samband við
aðila sem getur bætt við sig vörum
og dreifingu. Áhugasamir hringi í
síma 26811 milli kl. 10 og 14.
Járniðnaðarmenn! Viljum ráða jám-
smiði eða menn vana járnsmíðum,
mikil vinna framundan. Uppl. í síma
54568 eftir kl. 20.