Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Side 29
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987.
29
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Þjónusta
Veisl þú að það er opið alla daga
hjá okkur frá 8-19 og þjónustan tekur
aðeins 10 mín.? Við tökum einnig í
handbón og alþrif, djúphreinsun.
Sækjum, sendum. Bón- og bílaþvotta-
stöðin, Bíldshöfða 8 (v/hliðina á
Bifreiðaeftirlitinu),
sími 681944.
Tilsölu
Sumarbústaðaeigendur! 12 volta
vindrafstöðvarnar komnar. Vinsam-
legast staðfestið pantanir. Góð
greiðslukjör. Hljóðvirkinn sf.,
Höfðatúni 2, sími 91-13003.
Eigum nokkur einlök af Otto Versand
listanum, stórkostlegt vöruúrval.
Dragið ekki að senda pantanir. Hring-
ið/skrifið. S. 666375, 33249. Verslunin
Fell, greiðslukortaþjónusta.
Kápusölurnar auglýsa: Vorið er komið,
líka hjá okkur. Við eigum góðar kápur
úr léttum og þægilegum sumarefnum.
Póstsendum um land allt. Kápusalan,
Borgartúni 28, Reykjavík, og Kápu-
salan, Hafnarstræti 88, Akureyri.
Ymislegt
NEW NATURAL COUOUR
(1 TOOTHMAKEUP
Pearlie tannfarðinn gefur aflituðum
tönnum, fyllingum og gervitönnum
náttúrulega hvíta áferð. Notað af sýn-
ingarfólki og fyrirsætum. Pearlie-
umboðið, póstkröfusími 611659,
sjálfvirkur símsvari tekur við pöntun-
um allan sólarhringinn. Box 290, 171
Seltjarnarnes. Verð kr. 490.
Bílaklúbbur Akureyrar heldur torfæru-
keppni 25. maí, keppt verður í út-
búnum og, standardflokki, keppnin
gildir til íslandsmeistara. Skráning
fyrir 20. maí í síma 96-24646 frá 9-18
og 96-26869 á kvöldin.
Verslun
Ný sending af hannyrðavörum, púðar,
myndir, strengir o.m.fl. Póstsendum
um land allt. Strammi, Óðinsgötu 1,
sími 13130.
Sænskar innihurðir. Glæsilegt úrval af
innihurðum, nýja hvíta línan, einnig
furuhurðir og spónlagðar hurðir.
Verðið er ótrúlega lágt, eða frá kr.
7.600 hurðin. Harðviðarval hf.,
Krókhálsi 4, sími 671010.
Sumarkápur, gaberdínfrakkar, jogg-
inggallar, buxur, blússur, pils, peysur,
ótrúlega lágt verð. Verksmiðjusalan,
Skólavörðustíg 43, s. 14197. Opið virka
daga 10-18.
Spegilflísar. Mikið úrval af spegilflís-
um í stærðum 15x15 cm, 30x30 cm,
verð frá kr. 58 stk. Einnig úrval
kringlóttra-, boga- og raðspegla. Ný-
borg hf., Skútuvogi 4, sími 82470.
VERUM VARKÁR
FOROUMST EYDNI
Rómeó & Júlía býður pörum, hjónafólki
og einstaklingum upp á geysilegt úrv-
al af hjálpartækjum ástarlífsins í yfir
100 mismunandi útgáfum við allra
hæfi. Því er óþarfi að láta tilbreyting-
arleysið, andlega vanlíðan og dagleg-
an gráma spilla fyrir þér tilverunni.
Einnig bjóðum við annað sem gleður
augað, glæsilegt úrval af æðislega
sexý nær- og náttfatnaði fyrir dömur
og herra. Komdu á staðinn, hringdu
eða skrifaðu. Ómerkt póstkröfu- og
kreditkortaþjónusta. Opið alla daga
nema sunnudaga frá 10-18. Rómeó &
Júlía, Brautarholti 4, 2. hæð, símar
14448 - 29559, pósthólf 1779,101 Rvík.
■ BQar til sölu
Þessi veitingabill er til sölu. Uppl. í sím-
um 77573 og 985-22660.
Til sölu af sérstökum ástæðum
Daihatsu Rocky árg. ’87, ekinn 3.000
km. Bíllinn er búinn ýmsum aukahlut-
um. Uppl. í síma 27022 (286) og 79580.
Til sýnis í Daihatsusalnum, Armúla.
Mitsubishi Pajero SW disil turbo til sölu.
Bíllinn er árgerð 1985, ekinn 73 þús.
km, vökvastýri, rafdrifnar rúður,
sjálfvirkar drifiæsingar, 4ra dyra, silf-
urgrár. Gísli Jónsson & Co hf.,
Sundaborg 11, sími 686644.
Ford Econoline Van til sölu, árgerð
1983, ekinn 50 þús. mílur. Bíllinn er
með gluggum og farþegasætum, sjálf-
skiptur og með vökvastýri, aircondit-
ion. Gísli Jónsson & Co hf.. Sundaborg
11, 686644.
26 manna Benz árg. '80 til sölu. Uppl-
í síma 93-6664.
Börn líta á lífið
sem leik.
Ábyrgöin er okkar-
fulloröna fólksins.
yssEEMv'R
Fréttir
Lionessuklúbburinn
AGLA stofnaður
í Borgarnesi
Siguiján Gunnaisson, DV, Borgamesi:
Laugardaginn 11. apríl var stofiiaður
í Borgamesi lionessuklúbbur er hlaut
nafnið Lionessuklúbburinn AGLA.
Lionessuklúbbar eru nokkurs konar
kvennaarmur Lionsklúbba því hjá
ljónunum eru hreinar kynskiptingar,
þ.e. sér karlaklúbbar og sér kvenna.
Lionessuklúbburinn var í raun
stofiiaður 20. janúar en nú var svoköll-
uð stofnskrárhátíð, þ.e. formleg stofn-
hátíð þar sem afhent var viðurkenn-
ingarskjal frá alþjóðahreyfingunni um
inngöngu þessa klúbbs.
I klúbbnum eru 28 konur og eru það
að mestum liluta eiginkonur Lions-
manna.
Fyrsta stjóm Lionessuklúbbsins
ÖGLU er þannig skipuð að formaður
er Þóra Björgvinsdóttir, ritari Hanna
Kalla Proppé og gjaldkeri Þóra Þor-
kelsdóttir.
Skólaskák
á Dalvík
Jón G. Hauksson, DV, Akureyn:
Skólaskákmeistarar Skáksambands
íslands verða krýndir á Dalvík nk.
sunnudag en þar fer fram skólaskák-
mót grunnskólanna. Það er Dalvík-
urskóli sem heldur mótið í þetta
skiptið fyrir hönd Skáksambands
íslands. Mótið hefst kl. 20 á fimmtu-
dagskvöldið og stendur fram á
sunnudag. Tíu keppendur em í hvor-
um flokki, í yngri flokknum, 1- 6.
bekk, og þeim eldri, 7.-9. bekk.
Vorboði sem margir biða eftir. Krian í Tjarnarhólmanum leikur listir sinar.
DV-mynd S
Krían komin í Tjarnarhólmann
í gærmorgun fréttist af fyrstu kríun-
um i Tjamarhólmanum. Voru þar
komnar einar fimm kríur en að sögn
heimildarmanns DV vom engar kríui'
við tjömina í fyrrakvöld. Þeim fjölgaði
svo vemlega þegar leið á daginn í gær.
Krían kemur hingað eftir að hafa
lagt að baki allt að 20 þúsund kíló-
metra leið en hún hefur vetursetu á
suðurhveli jarðar. Ratvísi hennar þyk-
ir með ólíkindum en hún verpir ætíð
í sama hreiðrið, ár eftir ár.
Hún er hvorki seint né snemma á
ferðinni þetta árið, hún er vön að
koma um þetta leyti, en í hugum
margra er hún eitthvert skýlausasta
merkið um vorkomu.
-PLP