Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Síða 27
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987.
39
I>V
Af skornum
skammti
Sýningar Níelsar Hafstein og ívars Valgarðssonar að Kjarvalsstöðum
Sýningar þeirra ívars Valgarðs-
sonar og Níelsar Hafstein í austursal
Kjarvalsstaða líða báðar fyrir smæð
sína. Hinn margræði niðursetningur
Níelsar um mýtólógíu hestsins, sem
þarf á nánu samneyti við áhorfand-
apn að halda, missir hluta af áhrifa-
mætti sínum út um víðan völl í því
gímaldi sem salurinn er.
Sömuleiðis þyrfti ffamlag ívars að
vera meira (og heillegra) til að gefa
manni tilfinningu fyrir listrænum
„prófíl" hans, þankagangi og mark-
miðum.
Allt um það er ágeng verk og
krefjandi að finna á sýningum
beggja. Þau hefðu einfaldlega plum-
að sig betur annars staðar.
Níels Hafstein er meðal gölhæf-
ustu listamanna sinnar kynslóðar,
hefur lagt gjörva hönd á skúlptúr,
bækur, málverk, auk þess sem hann
hefur samið ýmiss konar myndlistar-
lega texta. Hugur hans hefúr jafhan
hneigst til nokkurs konar naum-
hyggju, meinlætastefhu, sem blönd-
uð er eilitlum „dandyisma" eða
sundurgerð, sem birtist gjaman í
nostri við smáatriði og yfirborðs-
fágun.
1 niðursetningnum um hest guð-
anna er Níels sjálfum sér samkvæm-
ur. Verkið er blendingur af
stílfærðum tréskúlptúr á gólfi, vegg-
myndum úr málmi, útsaumsverkum
og svo texta, sem gefur vísbendingar
um það sem listamaðurinn er að fara.
Sjálfur verður áhorfandinn að spá í
eyðumar, gerast virkur þátttakandi
í því ævintýri sem listamaðurinn
segir frá.
Allir þættir verksins em einfaldir
en margræðir, fágaðir í útliti - jafii-
Frá sýningu Níelsar Hafstein.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
vel „smart", sem skemmir þó ekki
fyrir.
Rökræn myndsýn
Eins og Níels er ívar hallur undir
ákveðna tegund huglægrar (kon-
septúal) naumhyggju, en meðan
Níels gerir sér far um að gefa henni
ljóðræna vídd, sem áhorfandinn get-
m- lifað sig inn í að vissu marki, er
ívar að steypa tilbrigði um frumform
- pýramiða, strendinga o.s.fiv. - sem
ítreka gildi hinnar rökrænu og hlut-
lausu myndsýnar, þar sem áhorfand-
inn „finnur" ekkert inntak, heldur
verður að búa sér það til sjálfur.
Hið „persónulega" í þessum ann-
ars ópersónulegu steypum ívars
birtist í óvæntum skurði formanna,
teikningunni á yfirborði verkanna,
eða þá í útúrdúrum eins og hinum
stóra, lífræna skúlptúr á miðju gólfi,
sem er eins og hylling til Hans Arps.
ívar hefur meðfram fengist við
málverk sem eru tengd skúlptúnm-
um, en þó er ýmislegt annað að
gerast í þeim sem ég átta mig ekki
alveg á. Þar er hann meðal annars
að fikra sig áfram með myndkerfi
og sterka liti, sem eru á skjön við
flest annað í myndlist hans.
Annaðhvort er ívar að leita fyrir
sér á nýjum vigstöðvum eða á eftir
að samræma þessi viðhorf. -ai
Meiming
Anna Fúgaró á sýningu sinni.
DV-mynd BG
Á hugar-
flugi
Sýning Önnu Fúgaró í Menningarstofnun Bandaríkjanna
Klippimyndir Önnu Fúgaró eru eins
og smásögur eftir Colette þar sem
angurværar ungar konur lifa ríkulegu
innra lífi í mollulegum herbergjum.
innan um þung bróderuð gluggatjöld,
rykfallnar mublur, postulínsdúkkur
og málverk í útskomum römmum.
Meðan þær hlýða kalli ástríðnanna
láta þær sig dreyma um sakleysi æsk-
unnar þegar hlutimir virtust einfaldir
og vandalitlir. Jafnframt gle>Tna þær
sér í ýkjum og draumórum um tor-
tímingu, trúmál, frægðina, og hina
einu sönnu ást.
Eins og Colette er Önnu Fúgaró
eirrnig umhugað um dýr og plöntur
sem em í senn fulltrúar hins óspillta
og tengiliður við hið upprunalega í
manninum.
En Colette var skilgetið afkvæmi 19
aldar andófsstefriu þegar frásagnar-
form raunsæisins er virkjað til tján-
ingar á hinu fáránlega, meðan Anna
Fúgaró getur látið greipar sópa um
alla þá strauma og stefnur, frá súrreal-
isma til ofurraunsæis, sem umbylt
hafa myndlistinni á vorum dögum, og
þar með hinni pósítífisku heimsmvmd.
Köngulóarvefir
Þetta notar Anna sér óspart enda
em myndir hennar að springa undan
uppfinningagáfum hennar. formræn-
um og efnislegum.
Samt hanga mvndir hennar saman.
ekki kannski á rauðum þræði heldur
veikum. Nógu sterkum samt til að
Myndlist
Aðalsteinn Ingófsson
maður skynji hjartslátt listamannsins
í þeim. *
Allt það góss sem dreifist um mynd-
ir hennar er þar af góðum og gildum
ástæðum en ekki fyrir tilviljun.
Efniviðurinn, myndir úr bókum,
blöðum, bæklingum o.fl., er því aðeins
brúklegur að hann samsvari einhverju
sem býr innra með Önnu, minningum
eða tilfinningum.
Yfirborð mynda hennar er orðið efri-
ismeira en áður, upphleypt með lími,
lagt þráðum sem liggja eins og köng-
ulóarvefir um einstaka hluta þeirra,
alsett gullstjömum eða glimmer. Allt
gerir þetta myndir Önnu glæsilegri
ásýndar.
A sýningu Önnu í Menningarstofh-
un Bandaríkjanna, sem hefur yfir-
skriftina „Þú flýgur hæst meá*
hugarfluginu“, em 22 ný eða nýleg
verk. Sýningin er ekki alveg í alfara-
leið en ætti að vera það.
Það er annars eins og við séum að
eignast eilitla klippimyndahefð hér á
íslandi: Erró. Róska, Valdís Óskars-
dóttir, Kristján Kristjánsson, Anna
Fúgaró, sjálfsagt fleiri. Einhver dug-
andi safnamaður ætti að taka saman
sýningu á þessari hefð. -ai
■©
□PEL
GM
♦mwr (
Vandaöu valið!
Veldu KADEl
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
KADET
Þessi glæsilegi vestur-þýski bíll
var kosinn bíll ársins
af dómharöri nefnd bílagagnrýnenda
begar hann var fyrst kynntur ^
fyrirtveimurárum.
hessi stórkostlega viöurkenning
var upphafið aö miklum vinsældum
OPEL KADETT.
Áöur en þú gerir upp hug þinn
varðandi hugsanleg bílakaup
getur borgað sig fyrir þig
aö kynna þér kosti KADETT bílanna,
ss. rými, hönnun, aksturseiginleika
og lágan eldsneytiskostnaö. -
S-
OPEL