Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1987, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1987. 39 I>V Af skornum skammti Sýningar Níelsar Hafstein og ívars Valgarðssonar að Kjarvalsstöðum Sýningar þeirra ívars Valgarðs- sonar og Níelsar Hafstein í austursal Kjarvalsstaða líða báðar fyrir smæð sína. Hinn margræði niðursetningur Níelsar um mýtólógíu hestsins, sem þarf á nánu samneyti við áhorfand- apn að halda, missir hluta af áhrifa- mætti sínum út um víðan völl í því gímaldi sem salurinn er. Sömuleiðis þyrfti ffamlag ívars að vera meira (og heillegra) til að gefa manni tilfinningu fyrir listrænum „prófíl" hans, þankagangi og mark- miðum. Allt um það er ágeng verk og krefjandi að finna á sýningum beggja. Þau hefðu einfaldlega plum- að sig betur annars staðar. Níels Hafstein er meðal gölhæf- ustu listamanna sinnar kynslóðar, hefur lagt gjörva hönd á skúlptúr, bækur, málverk, auk þess sem hann hefur samið ýmiss konar myndlistar- lega texta. Hugur hans hefúr jafhan hneigst til nokkurs konar naum- hyggju, meinlætastefhu, sem blönd- uð er eilitlum „dandyisma" eða sundurgerð, sem birtist gjaman í nostri við smáatriði og yfirborðs- fágun. 1 niðursetningnum um hest guð- anna er Níels sjálfum sér samkvæm- ur. Verkið er blendingur af stílfærðum tréskúlptúr á gólfi, vegg- myndum úr málmi, útsaumsverkum og svo texta, sem gefur vísbendingar um það sem listamaðurinn er að fara. Sjálfur verður áhorfandinn að spá í eyðumar, gerast virkur þátttakandi í því ævintýri sem listamaðurinn segir frá. Allir þættir verksins em einfaldir en margræðir, fágaðir í útliti - jafii- Frá sýningu Níelsar Hafstein. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson vel „smart", sem skemmir þó ekki fyrir. Rökræn myndsýn Eins og Níels er ívar hallur undir ákveðna tegund huglægrar (kon- septúal) naumhyggju, en meðan Níels gerir sér far um að gefa henni ljóðræna vídd, sem áhorfandinn get- m- lifað sig inn í að vissu marki, er ívar að steypa tilbrigði um frumform - pýramiða, strendinga o.s.fiv. - sem ítreka gildi hinnar rökrænu og hlut- lausu myndsýnar, þar sem áhorfand- inn „finnur" ekkert inntak, heldur verður að búa sér það til sjálfur. Hið „persónulega" í þessum ann- ars ópersónulegu steypum ívars birtist í óvæntum skurði formanna, teikningunni á yfirborði verkanna, eða þá í útúrdúrum eins og hinum stóra, lífræna skúlptúr á miðju gólfi, sem er eins og hylling til Hans Arps. ívar hefur meðfram fengist við málverk sem eru tengd skúlptúnm- um, en þó er ýmislegt annað að gerast í þeim sem ég átta mig ekki alveg á. Þar er hann meðal annars að fikra sig áfram með myndkerfi og sterka liti, sem eru á skjön við flest annað í myndlist hans. Annaðhvort er ívar að leita fyrir sér á nýjum vigstöðvum eða á eftir að samræma þessi viðhorf. -ai Meiming Anna Fúgaró á sýningu sinni. DV-mynd BG Á hugar- flugi Sýning Önnu Fúgaró í Menningarstofnun Bandaríkjanna Klippimyndir Önnu Fúgaró eru eins og smásögur eftir Colette þar sem angurværar ungar konur lifa ríkulegu innra lífi í mollulegum herbergjum. innan um þung bróderuð gluggatjöld, rykfallnar mublur, postulínsdúkkur og málverk í útskomum römmum. Meðan þær hlýða kalli ástríðnanna láta þær sig dreyma um sakleysi æsk- unnar þegar hlutimir virtust einfaldir og vandalitlir. Jafnframt gle>Tna þær sér í ýkjum og draumórum um tor- tímingu, trúmál, frægðina, og hina einu sönnu ást. Eins og Colette er Önnu Fúgaró eirrnig umhugað um dýr og plöntur sem em í senn fulltrúar hins óspillta og tengiliður við hið upprunalega í manninum. En Colette var skilgetið afkvæmi 19 aldar andófsstefriu þegar frásagnar- form raunsæisins er virkjað til tján- ingar á hinu fáránlega, meðan Anna Fúgaró getur látið greipar sópa um alla þá strauma og stefnur, frá súrreal- isma til ofurraunsæis, sem umbylt hafa myndlistinni á vorum dögum, og þar með hinni pósítífisku heimsmvmd. Köngulóarvefir Þetta notar Anna sér óspart enda em myndir hennar að springa undan uppfinningagáfum hennar. formræn- um og efnislegum. Samt hanga mvndir hennar saman. ekki kannski á rauðum þræði heldur veikum. Nógu sterkum samt til að Myndlist Aðalsteinn Ingófsson maður skynji hjartslátt listamannsins í þeim. * Allt það góss sem dreifist um mynd- ir hennar er þar af góðum og gildum ástæðum en ekki fyrir tilviljun. Efniviðurinn, myndir úr bókum, blöðum, bæklingum o.fl., er því aðeins brúklegur að hann samsvari einhverju sem býr innra með Önnu, minningum eða tilfinningum. Yfirborð mynda hennar er orðið efri- ismeira en áður, upphleypt með lími, lagt þráðum sem liggja eins og köng- ulóarvefir um einstaka hluta þeirra, alsett gullstjömum eða glimmer. Allt gerir þetta myndir Önnu glæsilegri ásýndar. A sýningu Önnu í Menningarstofh- un Bandaríkjanna, sem hefur yfir- skriftina „Þú flýgur hæst meá* hugarfluginu“, em 22 ný eða nýleg verk. Sýningin er ekki alveg í alfara- leið en ætti að vera það. Það er annars eins og við séum að eignast eilitla klippimyndahefð hér á íslandi: Erró. Róska, Valdís Óskars- dóttir, Kristján Kristjánsson, Anna Fúgaró, sjálfsagt fleiri. Einhver dug- andi safnamaður ætti að taka saman sýningu á þessari hefð. -ai ■© □PEL GM ♦mwr ( Vandaöu valið! Veldu KADEl BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 KADET Þessi glæsilegi vestur-þýski bíll var kosinn bíll ársins af dómharöri nefnd bílagagnrýnenda begar hann var fyrst kynntur ^ fyrirtveimurárum. hessi stórkostlega viöurkenning var upphafið aö miklum vinsældum OPEL KADETT. Áöur en þú gerir upp hug þinn varðandi hugsanleg bílakaup getur borgað sig fyrir þig aö kynna þér kosti KADETT bílanna, ss. rými, hönnun, aksturseiginleika og lágan eldsneytiskostnaö. - S- OPEL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.