Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Side 8
8
MANUDAGUR 10. AGUST 1987.
Útlönd
Gervihnottur hrapar til jarðar
Sovéskur gervihnöttur mun að öll-
um líkinaam hrapa tíl jarðar í dag
og talið er að hann tnuni lenda í
sunnanvérðu Kyrmhafi. nálægt
Suðurpólnum.
Gervihnötturinn, sem um ræðir,
er Cosmos-hnöttur sem: skotíð var á
loft þann 1. ágúst. Hann vegur um
tíu tonn og ber mikið af vísíndaleg-
um búnaði og fiarskiptatækjum.
Sovétmenn gáfu engar skýringará
því hvers vegna gervihnötturinn
væri að hrapa. Fréttastofan Tass sagði í gær að mjög lítil hætta stafaði af
braki úr hnettínum því að hann myndi falla á svæði þar sem mjög lítið er
af fólki. Tali er að brak úr hnettinum muni dreifast um mjög stórt svæði.
Fögnuður meðal Tamila
Mikill fögnuður ríkir nú meðal þeúra skæruliða úr röðum Tamila á Sri
Lanka sem látnir hafa verið lausir úr fangelsum landsins í samræmi við
aðgerðir í framhaldi af friðarsamningum þeim sem 'Sri Lanka og Indveijar
gerðu með sér um málefhi Tamila á eyjunni.
Um helgina voru þrjú hundruð Tamilar látnir lausir úr fangelsum en alls
er áætlað að fjögui- þúsund verði sleppt.
Við komuna úr fangelsinu urðu miklir fagnaðarfundir með Tamilunum
og fjölskvldum þeirra. Sumir fanganna höföu á orði að þeir myndu aldrei
aftur láta flækja sér í skæruliðastarfsemi.
Önnur hrtabylgja á Grikklandi
önnur hitabylgja hófst á Grikk-
landi nú um helgina þegar hitastig
skreiddist að nýju upp fyrir fiörutíu
gráður og hundruð þúsunda íbúa
Aþenu flúðu hið snarasta úr borg-
inni til staða þar sem þeir höfðu
betri von um að finna svala.
Ekki er búist við erfiðleikum neitt
svipuðum þeim sem áttu sér stað í
síðasta mánuði þegar tíu daga liita-
bylgja varð hundruðum manna að
bana í Grikklandi. Þá komst hiti í
forsælu upp í fiörutíu og fiórar gráð-
ur á Celsíus.
Heilbrigðismálaráðherra Gríkklands sagði þó í gær að sjúkrabús i landinu
vrðu í viðbragðsstöðu þar til hitar rénuðu að nýju. Veðurfræðingar spá
kólnandi veðri á morgun, þriðjudag.
Mynd með Ronnie og Ollle
Þrátt fyrir öll þau mótmæli sem
vopnasalan til íran og ólöglegur
stuðningur við kontraskæruliða f
Nigaragúa hefiir valdið er mikill
fiöldi þeirra sem fara um Washing-
tonborg reiðubúinn að greiða um
hundrað og sextíu krónur fyrir ljós-
mynd af sér með dúkkulísum af
Ronnié (Ronald Re&gan) og Ollie
(Oliver North) í fullri líkamsstærð.
Áðspurðir segja f'ei-öamennimir
það ekki skipta máli hvort þeir séu
sammála stefnu og aðgérðum forset-
ans og þessa fyrrverándi starfs-
raanns þjóðaröryggisráðsíns. Mymd
af þeirn sjálfura með frægu fóiki sé
jafn mikils virði hvort sem fræga
fólkið sé gott eða illt.
Flóð af EMs-aðdáendum
Meira en eitt hundrað þúsund
aödáendur rokkkóngsins Elvis Pres-
ley hafa nú safnast saman í fæðing-
arþorg hans, Mamphis í Tennessee,
til þess að minnast þess að í þessari
viku em tíu ár liðin frá dauða söngv-
arans.
Búist er við að tugþúsundir aðdá-
enda taki þátt í minningarathöfn
næsta laugardag en þá verða liðin
tíu ár frá því að Presley lést. Ætlun-
in er að fólkið gangi í þögn, í
einfaldri röð, með kertaljós í hönd-
um, framhjá garðinum þar sem
Preslcy er grafinn.
x>v
Líbýumenn til-
búnir í stórátök
Hersveitir Muammar Gaddafi, leið-
toga Líbýu, virtust í gær reiðubúnar
til stórátaka við stjómarher ná-
grannalandsins Chad vegna eyði-
merkursvæðis sem kallað er
Aouzou-ræman.
Stjómarher Chad fagnaði í gær sigri
eftir að hafa náð á sitt vald stjórnar-
farslegri miðstöð svæðisins, bænum
Aouxou, á laugardag. Svæði þetta
hefur verið hernumið af Líbýumörin-
um undanfarin ár.
Skömmu eftir þennan sigur stjómar-
hersins hófu Líbýumenn sprengjuá-
rásir á Aouzou og þorp í nágrenni
bæjarins.
Að sögn stjómarhersins í Chad vörp-
uðu líbýskar flugvélar brotasprengjum
og napalmsprengjum á svæðinu.
Sendiherra Chad í París, Ahmed All-
am-Mi, sagði ennfremur að til mikilla
sprengjuárása hefði komið á svæðið
um helgina.
í tilkynningu til Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna og til aðalritara
Einingarsamtaka Afríkuríkja, sagði
líbanski utanríkisráðheiTann, Jad-
allah Azzouz Al-Talhi, að Líbýa hefði
fullan rétt til að hrinda árás-Chad og
uppræta þá sem að henni, stæðu.
Ráðamenn í Chad kváðust í gær
fyllilega búast við gagnaðgerðum af
hálfu Líbýumanna þvi stjómvöld þar
væru greinilega ekki reiðubúin til að
láta af útþenslustefnu sinni gagnvart
Chad.
Líbýumenn hertóku Aouzou-
ræmuna árið 1973 og innlimuðu Líbýskurhermaðurliggurfallinnfyrirframanskriðdrekaeffirbardaga viðsfjórn-
svæðið í Líbýu. arher Chad.
Simamynd Reuter
Lenti á þyriu
Ung kona lét lífið skammt frá
borginni Andover á Bretlandi um
helgina þegar hún lenti beint ofan á
skrúfublöðum þyrlu.
Konan var fallhlífarstökkvari og
var þátttakandi í æfingarstökki
fimm félaga úr fallhlífark lúbbi í
Andover á Englandi. Hún hafði tölu-
verða reynslu í fallhlífarstökki og
hafði áður tekið þátt í svipuðum
æfingum.
í stökkinu um helgina lenti hún
af einhverjum orsökum beint ofan á
þyrlu sem var á flugi í lítilli hæð og
lét lífið samstundis er hún varð fyrir
skrúfublöðunum. Engan af þeim sem
tóku þátt í stökkinu með konunni
sakaði.
W;; / Wý W.'-. WJ'-'-' ? '/rfrv f 'C* 'WC* ’ '. -C' h *
Olíuflutningaskipið Sea Isle City frá Kuwait siglir undir bandarískum fána fram
hjá litlum fiskibáti á leið sinni gegnum flóann. Simamynd Reuter
Tundur
duflSn
frá
íran
Floti olíuflutningaskipa frá Kuwait
og bandarískra herskipa lá við akkeri
í nótt undan ströndum Saudi-Arabíu
á meðan slætt var eftir tundurduflum
síðasta spöl leiðarinnar gegnum fló-
ann.
Vamarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, Caspar Weinberger, sagði í
sjónvarpsviðtali í gær að tundurdufl,
er fundist hefðu fyrir utan höfn í
Kuwait, væru frá íran. Sendiherra ír-
ans hjá Sameinuðu þjóðunum sagði
við sama fréttamann í gær að íranir
hefðu ekki komið fyrir tundurduflum
á þeirri leið sem bandarísk herskip
sigla. Hins vegar hefðu bæði íranir
og Irakar komið fyrir tundurduflum f
flóanum þar sem þeir líti á hann sem
styijaldarsvæði.
Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir
og Halldór Valdimarsson