Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987. 45 Stakkur tók því vel þegar Diðrik Jóhannsson ieiddi hann út undir bert loft fyrir Ijósmyndara DV. Stakkur á BÚ 87 Á sýningunni BÚ 87 verður þessi myndarlegi tuddi til sýnis. Hann er nú vistaður í Nautastöð Búnaðarfé- lags Islands að Hvanneyri. Hann er 2 Zi árs og að sögn Diðriks Jóhanns- sonar, framkvæmdastjóra stöðvar- innar, eru nautin, sem þarna eru, alin upp að Laugardælum í Árnes- sýslu. Þar eru nautin alin til 12-15 mánaða aldurs áður en þau koma að Hvanneyri. Úr þeim eru teknir 7500 skammtar af sæði. Um 1500 hundruð þeirra eru notaðir á fyrsta ári en afgangurinn er djúpfrystur. Ef af- kvæmi þeirra reynast vel eru þessir 6000 skammtar notaðir, en annars er þeim hent. Nautið heitir Stakkur og er ekki að efa að margt borgarbarnið verður fróðara eftir um lífsins gang. því þrátt fvrir nútímatækni er ekki enn- þá farið að framleiða mjólk i verk- smiðjum. Ó.G. „Hættið að kalla hana Fergie“ l I /, ’-'SS' V Lisa Minnelli er hér með manni sínum Mark Gero. Skrautleg og ánægð að fara að taka á móti viðurkenningu sem New York borg veitti henni fyrir velheppnað tónleikahald. Lukkulega Lisa Kabarettsöngkonan ágæta Lisa Minnelli er ánægð með lífið og tilver- una þessa dagana. Hún hefur síðustu vikur gert stormandi lukku í Carnegiehöllinni í New York. Þar hefur hún haldið tónleika eins og henni einni er lagið. Höllin hefur troðfyllst á augabragði á hverju kvöldi undanfarnar vikur. Lisa hefur víst aldrei verið betri og hrífur áhorfendur upp úr skónum kvöld eftir kvöld. Yfirvöld borgarinnar voru svo hrifin af framtaki söng- konunnar að henni var veitt sérstök þakkargjöf rétt áður en hún hætti tónleikahaldi. Lisa var að vonum stolt og ánægð þegar hún tók á móti viðurkenning- unni. Við athöfnina hló hún og veifaði til viðstaddra á sinn einstaka og barnalega máta. En ánægðust er hún þó með það að vera laus úr viðjum vímuefna sem gert höfðu henni lífið leitt um tíma. - segir Andrew prins Eins og lesendur DV hafa fengið fregnir af er Sarah Ferguson. hertoga- ynjan af York með barni. Eftir að þessi tíðindi voru kunngerð almenningi vill eiginmaðurinn, Andrew. að ýmsu verði brevtt. Sérstaka áherslu hef- ur hann lagt á það að fólk og breskir fjölmiðlar hætti að kalla frúnna Fergie. Honum leiðist mjög þessi uppnefning og segir hana alls ekki við hæfi á hertogaynjunni sjálfri. Hann vill að henni verði sýnd meiri virðing. Ekki síst þegar hún á nú von á barni. Fergie, eða öllu heldur Sarah, nýtur mikilla vinsælda hjá Bretum. Bresk- ur almenningur virkilega dáir hana og öll hennar verk. Hvar sem hún kemur er hrópað: „Fergie, Fergie". Einmitt það fmnst prinsinum óviðeig- andi. Annars er Andrew mjög ánægður með konu sína og eru þau bæði full tilhlökkunar vegna barnsins væntanlega. Þau hafa tilkvnnt að takmark- ið sé að eignast þrjú börn. Gamanið'er því rétt að byrja hjá þeim skjötu- hjúunum. Nú þegar hertogaynjan er barnshafandi finnst manni hennar tími til kominn að hætt verði að kalla hana Fergie. Enda á hún ágætis nafn; Sarah. Sviðsljós Ólyginn sagði... Frank Sinatra á í einhverjum vandræðum með aukakflóin eins og margir aðrir. Hann er alls ekkert sátt- <• | ur við „björgunarhringinn" sem stækkar og stækkar fram- an á honum. Núna ráðgerir hann megrun og segist ætla að losna við tiu kfló. Svona tfl að flýta fyrir syndir harrn eins og óður maður á hverjum degi í einkalaug sinni. Vonandi að honum gangi vel. _________________ Kalli prins hefur vist fengið nýtt áhuga- mál. Prinsinn af Wales er farixm að framleiða sitt eigið vín og hefur mjög svo gaman af. Stundunum saman er hann að dútla við þessa nýju dellu; prófa, bæta og breyta. Afurð- unum kemur harrn svo fyrir á mjólkurflöskum. Díana prins- essa er auðvitað búin að fá að smakka og því miöur varð hún ekkertXLLyfir sig hrifin af framleiðslu bónda síns. En kannski hefur hún ætlast tfl of Brigitte Neilson fyrrum húsfrú Sylvester Stall- one varð heldur betur fyrir vonbrigðum um daginn. Hún, í sakleysi sínu, brá sér inn á hárgreiðslustofu tfl að láta flikka dálítið upp á útíitið. Da- man bað um að láta lita á sér hárið rautt. Henni leist nú ekki á blikuna þegar hún steig úr stólnum. Útkoman var hræði- leg; hárið var orðið bleikt en . „ ekld rautt. Hún hreinlega tryllt- ist og bað vinsamlega eða óvinsamlega um að hárið yrði lagað í snatri. Aumingja hár- greiðslustúlkan reyndi að stflla Gitte og tjáði henni að svona lagað kæmi stundum fyrir. En með lagni tókst henni að ná litnum úr hári fyrirsætunnar. Hún varð að aflita hárið og varð það þannig lflcara nátt- úrulegum háralit fómarlambs- ins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.