Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987.
Utlönd
Rust sækir
um náðun
Mathias Rust, flugmaöurinn ungi
sem dæmdur hefur verið til vistar í
þrælkunarbúöum eftir lendinguna
nálægt Rauöa torginu í Moskvu, virð-
ist treysta á nýtt andrúmsloft í Sovét-
t ríkjunum undir forystu Gorgatsjovs
og hefur Rust farið fram á náðun.
Skiptar skoðanir eru um það í
Moskvu hvort Rust verði látinn laus
fyrir tímann en hann fékk flögurra ára
dóm. Mörg dagblöð, þar á meðal Prav-
da, málgagn kommúnistaflokksins,
hafa verið samþykk ákæruatriðunum.
Margir eldri sovéskir borgarar virðast
einnig hafa verið sömu skoðimar.
Aftur á móti hefur hið áhrifamikla
vikurit Mosvkufréttir speglað viðhorf
yngra fólks sem álítur að Rust hafi
ekki haft neitt illt í huga með flugi sínu
sem hann kallaði friðarför.
Mathias Rust treystir nú á velviid Gorbatsjovs. Símamynd Reuter
EyerW«-Ch*mpa9«»k
8kemmtir8..9.og10.okt.
HLJÓMSVEITN SAGA CLASS
sýndi og sannaði í gærkvöldi að
hér er engin venjuleg hljómsveit
á ferð. Nýja húshljómsveitin í
Evrópu er meiri háttar.
DAMON MENDAY frá Mallorca
er með bestu tónlist sem heyrst
hefur á Islandi í langan tíma.
20 ára aldurstakmark
Aðgöngumiðaverð kr. 500,-
FRUMSÝNINGARPARTI
Háskólabíó frumsýnir í dag lögg-
una í Beverly Hills II og að sjálf-
sögðu verður frumsýningarpartí í
Evrópu í kvöld.
Segir bandarísku
skýrsluna galdrakukl
Gísli Guátmmdsscn, DV, Kanada;
Umhverfismáiaráðherra Kanada
er yfir sig hneykslaður á niðurstöð-
um fimm ára rannsóknar banda-
rískrar nefndar um áhrif mengunar
frá Bandaríkjunum sem veldur súru
regni í Kanada. Kailar hann skýrsl-
una galdrakukl og segir hana langt
frá því að vera sanna. Fylgi hún á
engan hátt vísindaiegu hlutleysi.
Vísindamenn Kanada segja meng-
un frá Bandaríkjunum eiga fimmtíu
prósent sök á eyðileggingu vatna
þeirra og skóglendis. Síðastliðin sex
ár hafa þeir reynt að fá Bandaríkja-
menn tÚ að setja lög er skyldi öll
helstu mengunarvaldandi iðnfyrir-
tæki þeirra fil að hreinsa úrgangs-
efni sín áður en þeim er fleygt út í
andrúmsloftið. Hreinsitæki eru dýr
og þykir Kanadamönnum sem
Bandaríkin séu að firra sig ábyrgð
með skýrslu þessari er kostaði þá
þtjú hundruð miiljónir Bandaríkja-
dollara.
Bandaríska skýrslan segir meðal
annars að orsök eyðileggingar vegna
súra regnsins sé enn óviss og ólík-
legt sé að það hafi áhrif á kanadískt
umhverfi.
En kanadískar skýrslur um sama
efhi hafa sýnt fram á að mengun sem
berst frá Bandaríkjunum eigi aö
stórum hluta sök á eyðileggingu alls
lifs í fjórtán þúsund kanadískum
vötnum og séu önnur þijú hundruð
þúsund í hættu ef ekkert verði að
gert.
HAUSTSALA A BILUM
TIL SÖLU EFTIRTALDIR BÍLAR:
Volkswagen Golf árg. ’81, ’82, ’85
Volkswagen Jetta árg. ’85
Opel Kadett 1,3 árg. ’85
Ford Escort 1,1 árg. ’86
Fiat Uno 60s árg. ’86
Suzuki Fox (yfirbyggður), árg.’85
Lada Sport árg. ’87.
Einnig nokkrir bílar skemmdir eftir árekstur og veltu.
Bílarnir eru til sýnis á bílaleigu Flugleiða við Flugvall-
arveg. Bílaleiga Flugleiða sími 690200.
BÍLALEIGA
FLUGLEIDA
BYRJENDANÁMSKEIÐ
fyrir karla og konur sem áhuga hafa á að læra að
kasta spjóti, kúlu, kringlu eða sleggju. Kennari hinn
landsfrægi kastari Erlendur Valdimarsson.
Námskeiðið hefst 26. sept. kl. 15.00 á kastvellinum
í Laugardal.
Frjálsíþróttadeild ÍR
Shultz hitti Sévardnaze, starfsbróður sinn frá Sovétríkjunum, í gær
Símamynd Reuter
Aukinn þiýst
ingur á íran
I kjölfar 90 mínútna langs fundar
Sévardnaze, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, og Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ákváð Bandaríkja-
stjóm að fresta kröfu um tafarlaust
vopnasölubann á írani með það fyrir
augum að örva írani til að fallast á
vopnahlé sem yrði þá á vegum Sam-
einuðu þjóðanna. Áður ætluðu
Bandaríkin að kalla saman fund í
Öryggisráðinu ásamt Bretum og var
ætlunin að krefjast tafarlauss vopna-
sölubann. Óvíst er þá hvort slík tiilaga
hefði fengist samþykkt þar sem vitað
er að Kínverjar munu hafiia slíkri til-
lögu og aðrir meðlimir Öryggisráðsins
ekki mjög ánægðir.
Sovétmenn hafa hins vegar viljað
taka upp frekari viðræður við írana
tíi að reyna að fá þá tíl að samþykkja
vopnahié, en bæði þeir og aðrir með-
limir Öryggisráðsins hafa lagt ríka
áherslu á vopnahlé.
Bandaríkjastjóm hefur undirstrikað
það að hún skirrist ekki við að grípa
tíl harkalegra refsiaðgerða gegn Irön-
um sjái þeir ekki að sér og mundi þá
vopnasölubann verða þar efst á blaði.
I ræðu sem Reagan hélt í gær kom
einnig fram aö Bandaríkjamenn
myndu halda skipaleiðum í flóanum
opnum héðan í frá og ekki yrði hikað
við að beita vopnavaldi gegn hveijum
þeim aðila sem reyndi að hindra sigl-
ingar um flóann.
Caspar Weinberger er væntanlegur
til Persaflóa í dag. Sagt er að hann
muni fá hlýjar móttökur í arabaríkj-
um umhverfis flóann vegna þyrluár-
ásarinnar á mánudag.