Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987. 39 Fólk í fréttum Gunnar J. Friðriksson Gunnar J. Friðriksson, formaöur Vinnuveitendasambandsins, hefur verið í fréttum DV vegna umræðna um nýjan kjarasamning. Gunnar Jósef Friðriksson er fædd- ur 12. mars 1921 í ReyKjavík og var við nám í heimavistarskóla í Hol- landi 1933-1934. Hann brautskráðist frá Verslunarskóla íslands 1939 og varð gagnfræðingur frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1939. Gunnar var í stæröfrceðideild Menntaskól- ans í Reykjavík 1939-1940 og varð starfsmaður hjá Smjörlíkisgerðinni Ásgarði hf. í Rvík 1943. Hann hefur verið' forstjóri Sápugerðarinnar Frigg frá 1946 og jafnframt fram- kvæmdastjóri Ásgarðs hf. frá 1959. Gunnar hefur verið formaður bankaráðs Iðnaðarbanka islands hf. frá 1974 og formaður sljómar Fjár- festingafélags íslands frá stofnun 1971. Hann var í stjóm Félags ís- lenskra iðnrekanda 1950-1963 og formaður 1963-1974. Gunnar var í sfjóm Iðnlánasjóðs 1967-1978 og í stjóm Verslunarráðs um árabil. Hann hefur verið í stjóm og fram- kvæmdastjóm Vinnuveitendasam- bands íslands frá 1971 og hefur setiö á þingi sem varaþingmaður Reyk- víkinga. Kona Gunnars er Elin Margrethe Kaaber, dóttir Ludvigs Kaabers, bankastjóra í Rvík, og fyrri konu hans, Astridar, f. Thomsen. Böm þeirra em Friðrik, Einar, Ragnar, Haukur, Oddný, Gunnar og Eiríkur. Systkini Gunnars eru Jóhanna, gift Halldóri Bjamasyni, útgerðar- manni í Rvík, og Jón Agnar, starfs- maður hjá Hafrannsóknarstofnun- inni. Foreldrar Gunnars eru Friðrik Gunnarsson, forstjóri smjörlíkis- geröarinnar Ásgarðs, og kona hans, Oddný Jósefsdóttir. Faðir Gunnars, Friðrik, var sonur Gunnars, for- stjóra í Rvík, Einarssonar, b. og alþingismanns í Nesi í Höfðahverfi, bróður Halldóm, langömmu Hall- dóra, móður Kristínar Halldórsdótt- ur alþingismanns, og hálfbróður Gísla, afa Kristjáns G. Gíslasonar, stórkaupmanns og langafa Þórs Vil- hjálmssonar prófessors. Einar var sonur Ásmundar, b. í Nesi, Gíslason- ar, b. í Nesi, Ásmundssonar, fóður- bróður Þórðar Pálssonar á Kjama, sem Kjamaættin er kennd við, lang- afa Halldórs, fóður Ragnars, for- sfióra íslenska álfélagsins. Móðir Gunnars var Margrét, systir Vigfúsar, langafa Hjörleifs Gutt- ormssonar alþingismanns, dóttir Guttorms, prófasts í Vallanesi, Páls- sonar. Móðir Gunnars, Oddný, er systir Þorgerðar, móður Gunnars Eyjólfs- sonar leikara. Oddný er dóttir Jósefs, sjómanns í Keflavík, Odds- sonar, b. í Vatnagörðum í Garði, Oddssonar, b. í Vatnagöröum, Odds- sonar, b. á Eyri, Guðmundssonar, bróður Lofts, langafa Bjama Jóns- sonar vígslubiskups. Móðir Jósefs var Margrét Ólafsdóttir, b. í Gerða- koti í Gerðum, Guðmundssonar. Móðir Oddnýjar var Gróa sem er Gunnar J. Friöriksson fyrirmynd Guörúnar í sögunni af brauöinu dýra eftir Halldór Laxness. Gróa var dóttir Jóns, b. í Garðhúsi í Leira, Jónssonar, bróður Erlendar, langafa Ragnars Guðleifssonar, frv. bæjarstjóra í Keflavík, og Margrétar, móður Guðleifs Siguijónssonar, byggðasafhsvarðar í Keflavik. I Afmæli Halldór Sigurðsson Benóný Amórsson Halldór Sigurðsson, Dalbraut 31, Akranesi, er sjötugur í dag. Halldór er fæddur á Sæbóh á Ingj- aldssandi í Vestur-ísafjarðarsýslu en ólst upp hjá móðursystur sinni, Rósamundu Jónsdóttur, og Einari Guðmimdssyni, b. á Sæbóli, síðar á Bakka í Dýrafirði. Hann var við nám í Verslunarskóla íslands og var skrifstofustjóri í Olíustöðinni í Hval- firði 1948-1957 en hefur síðan búið á Akranesi og séð um rekstur Olíufé- lagsins hf. á Akranesi og Vestur- landi. Halldór var á yngri árum í stjóm UMF á Ingjaldssandi en hefur verið í stjóm Sjálfsbjargar á Akra- nesi frá stofnun félagsins, 1970, og hefur lengst af verið formaður. Kona Halldórs var Guðríður Sæ- mundsdóttir en hún lést 10. maí 1982. Guðmundur Sigurjónsson stór- meistari, Fifumýri 5, Garðabæ, er fertugur í dag. Guömundur er fædd- ur í Reykjavík, sonur Siguijóns rafvirkjameistara Guðmundssonar, skipsfjóra í Hafnarfirði, Sigurjóns- sonar og konu hans, Steinunnar Siguröardóttur, sjómanns í Reykja- vík, Jónssonar. Guðmtmdur varð stúdent frá MR. 1967 og lauk lögfræðiprófi við HÍ. 80 ára_________________________ Soffia Gísladóttir, Logafold 90, Reykjavík, er áttræð í dag. Stefán Sigurðsson bóndi, Steiná I, Bólstaðarhliðarhreppi, er átt- ræður í dag. Foreldrar hennar vora Sæmundur Halldórsson, b. á Stórabóli í Mýra- hreppi í Austur-Skaftafellssýslu, óg kona hans, Guðrún Þorsteinsdóttir. Böm Halldórs og Guðríðar era: Leif, skipsljóri á Patreksfirði, kvæntur Idu Bergmann, eiga þau þijú böm. Jónína Rósa, gift Valdimar Láras- syni, eiganda Hjólbaröaviðgerðar- irrnar hf. á Akranesi, og eiga þau fjögur böm. Sæmundur, skipstióri og eirrn af eigandum frystihússins Útvegsmiðstöðvarinnar hf. í Kefla- vík, á hann tvö böm. Sigurður Jakob, framkvæmdastjóri og einn af eigendum Útvegsmiðstöðvarinnar hf. í Keflavík, á hann tvo syni. Brynja, deildarstjóri í Verslunar- bankanum í Reykjavík. Sambýlis- maður hennar er Jón Þorbjömsson, 1973. Guðmundur hefur um árabil verið í hópi okkar sterkustu skák- manna. Hann varð skákmeistari íslands 1965,1968 og 1972. Hann náði titli alþjóðlegs skákmeistara 1970 og eftir glæsilega frammistöðu á Hast- ings-mótinu um áramótin 1974-75 varð hann alþjóðlegur meistari. Hann tefldi fyrst með ólympíuskák- sveit íslendinga 1966 og hefur teflt með henni síðan að undanskildu 70 ára___________________ Valtýr Guðmundsson, Bergþóru- götu 43 b, Reykjavík, er sjötugur i dag.___________________ 60 ára___________________ Jón Sigvaldason bóndi, Ausu, Andakfishreppi, er sextugur í dag. deildarstjóri hjá Aðalverktökum, eiga þau eina dóttur. Bræður Hall- dórs era Amór, verkamaður í Straumsvík, kvæntur Jónínu Ein- þórsdóttur, og Ragnar, verkamaður á Flateyri. Foreldrar Halldórs vora Sigurður Guðmundsson, sjómaður i Villingadal, og kona hans, Jónína Þuríöur Jónsdóttir. Foreldrar Sigurðar vora Guð- mundur Sigmundsson, b. í Villinga- dal, og kona hans, Jakobína Sigurðardóttir. Foreldrar Jónínu vora Jón Jónsson, b. á Sæbóli á Ingj- aldssandi, og kona hans, Sveinfríður Sigmundsdóttir frá Hrauni á Ingj- aldssandi, systir Guðmundar í Vill- ingadal. Faðir þeirra var Sigmundur, b. á Hrauni á Ingjalds- sandi, Sveinsson. mótinu 1980. Hann hefúr því tekið þátt í tíu ólympíuskákmótum. Guð- mundur hefur tekið þátt í fiölda öflugra erlendra skákmóta og hann hefur veriö fararsljóri og aðstoðar- maður íslenskra skákmanna á erlendum mótum. Hann hefur ritað tiölda greina um skák og skákþjálfun og þá helst í tímaritið Skák. Karl Steingrímsson bifreiðar- stjóri, Ránargötu 1, Akureyri, er sextugur í dag. 50 ára____________________ Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræð- ingur, Ásvallagötu 18, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Benóný Amórsson, b. að Hömrum og oddviti í Reykdælahreppi, er sex- tugur í dag. Benóný fæddist á Húsavík og ólst þar upp hjá foreldr- um sínum. Hann sótti Héraðsskól- ann aö Laugum, stundaði verkamannavinnu í tvö ár og var síðan til sjós á bátum frá Húsavík. Benóný fluttist að Hömram 1952 og hefur búið þar síðan. Benóný hefur verið í hreppsnefnd Reykdælahrepps í tuttugu og fimm ár og oddviti þar í fimm ár. Hann sat á þingi sem varamaður Bjöms Jónssonar á árunum 1971-74 en hafði áður verið varaþingmaður fyr- ir Alþýðubandalagið 1968. Benóný kvæntist 1950 Valgerði Jónsdóttur, b. á Hömrum í Reykdælahreppi, Friðrikssonar, b. á Helgastöðum í sömu sveit, Jónssonar, og konu hans, Friðriku, sem nú er látin, Sig- fúsdóttur, b. á Halldórsstöðum í sömu sveit, Jónssonar. Systir Frið- riku var Þóra, móðir Einars hug- læknis, en bróðir þeirra systra var Sigurður Bjarklind, maður Huldu skáldkonu. Benóný og Valgerður eiga sjö böm: Hrönn, f. 1947, er starfsmaður Pósts og síma á ísafirði. Sambýlismaður hennar er Páll Loftsson, smiður í skipasmíðastöðinni þar. Jón Friðrik, f. 1949, er b. á Hömrum hjá foreldr- um sínum. Guðrún Amhildur, f. 1952, býr í Hafnarfiröi, gift Jakob Kristjánssyni bifreiðarstjóra. Amór leikari, f. 1954, býr í Reykjavík, kvæntur Súsönnu Svavarsdóttur blaðamanni. Amór er formaður Fé- lags íslenskra leikara. Friörika Sigríður, f. 1956, býr í Reykjavík og stundar nám í bókmenntafræði við HÍ. Sambýlismaður hennar er Sigfús Bjartmannsson. Bergþóra, f. 1958, er við nám í Svíþjóð, gift Ingólfi Ingólfs- syni frá Húsavík. Hörður Þór, f. 1963, er b. að Hömrum og býr þjá foreldr- um sínum. Systkini Benónýs era fjögur: Sig- ríöur Matthildur, f. 1926, deildar- stjóri hjá Kaupféiagi Þingeyinga á Húsavík. Herdís, f. 1929, starfsmaður hjá Kaupfélaginu á Húsavík. Kári, f. 1931, skólastjóri Fossvogsskólans í Reylqavík, og Hörður, f. 1933, for- stöðumaður eliiheimilisins Hvamms á Húsavík. Foreldrar Benónýs vora Amór, f. 1900, d. 1976, Kristjánsson og kona hans, Guðrún Elísabet, f. 1899, d. 1983, Magnúsdóttir. Amór var for- maður Verkamannafélags Húsavík- ur í sjö ár og bróðir hans, Ásgeir, var formaður sama félags í tíu ár en sonur Ásgeirs er Kristján, útgerðar- stjóri Höíða hf. Föðuramma Benón- ýs var Þuríður, fyrsti formaður Verkakvennafélagsins Vonar, Bjömsdóttir, b. á Jarlsstöðum, Bjömssonar og Sigurlaugar Guð- mundsdóttur spaða, b. á Rauðu- skriðum í Aðaldal. Faöir Amórs var Krislján, verkamaður á Húsavik, Sigurgeirsson, hálfbróðir Páls Stef- ánssonar, forsljóra í Rvík. Bræður Sigurgeirs vora Pétur, faðir Stefáns þjóðskjalavarðar og Eðvald, afi Stef- áns Kristjánssonar, fyrrv. íþrótta- fulltrúa. Móðir Benónýs, Guðrún, var dóttir Magnúsar Guðmundsson- ar ríka í Eyrardal, Arasonar. Móðir Magnúsar var Guörún, systir Hjalta, fóður Magnúsar H. Magnússonar „Ljósvíkingsins". Móðir Guðrúnar var Guðbjörg Ásgeirsdóttir, prófasts í Holti, Jónssonar, bróður Þórdísar, móður Jóns forseta. Guðmundur Sigurjónsson ________________________________________Gullbrúðkaup Kristín Sveinbjömsdóttir og Guðmundur Ámason Gullbrúðkaup eiga í dag hjónin Kristín Sveinbjömsdóttir og Guð- mundur Amason, bóndi á Þver- hamri í Breiðdal. Þau era að heiman í dag en ætla að taka á móti gestum laugardaginn 26. september í sal Veitingahallarinnar, Húsi verslun- arinnar, miili kl. 3 og 6. Guðmundur fáeddist 7. apríl 1908 á Þverhamri í Breiðdal og ólst þar upp. Hann tók við jörðinni á Þver- hamri eftir foðmr sinn og hefur verið bóndi þar síðan en frá 1973 hefur hann búið með Hermanni syni sín- um. Guðmundur var auk þess lengi sláturhússijóri hjá Kaupfélagi Stöðvfirðinga á Breiðdalsvík. Hann á eina systur, Þórdísi, sem giftist Magnúsi Guðmundssyni, sjómanni í Rvik, en Magnús er nú látinn. Foreldrar Guömundar vora Ámi Guðmundsson, b. á Þverhamri, og kona hans, Herdís Jónsdóttir, ættuð úr Homafirði. Faðir Áma var Guð- mundur, b. á Þverhamri, Pétursson Guðmundur giftist 1937 Kristínu Sveinbjömsdóttur. Hún fæddist 6. september 1913 á Gautavík og ólst þar upp, fluttist að Skriðustekk í Breiðdai 1925 en hefur búið á Þver- hamri síðan 1936. Systkini Kristínar vora Guðlaug, gift Valdimari Lúð- víkssyni, verkamanni á Fáskrúðs- firði, þau era bæði látin, Marta, gift Emil Eiríkssyni, verkamanni á Fá- skrúðsfirði, sem er látinn, Elís, var b. á Flögu í Breiðdal, kvæntur Maríu Reimarsdóttur, Þórlindur, múrari í Reykjavík, er látinn, Hulda, gift Ein- ari Vigfússyni, starfsmanni Ríkisút- varpsins, hann er látinn, Björgvin, b. á Skriðustekk í Breiðdal, sem er látinn, og Kristinn, b. á Skriðustekk, sem er einnig látinn. Foreldrar Kristínar vora Svein- bjöm Erlendsson, b. fyrst á Eyjólfs- stöðum í Fossárdal og síðast á Skriðustekk í Breiödal, og kona hans, Ingibjörg Magnúsdóttir. Böm þeirra Guðmundar og Kristínar era Ami, f.l. janúar 1940, skipstjóri, út- gerðarmaður og síðast kaupmaður í Hafiiarfirði, kona hans er Margrét Aronsdóttir og eiga þau fiögur böm, Birgir, f. 29. desember 1941, starfs- maöur Olíuverslunar íslands, kvæntur Emu Hjartardóttur og eiga þau tvö böm, Hörður, f. 17. maí 1945, netamaður á Breiðdalsvik, kvæntur Geirlaugu Þorgrímsdóttur og eiga Kristfn Svelnbjömsdóttir og Guft- mundur Ámason þau einn son, Hermann, f. 19. nóv- ember 1946, b. á Þverhamri í Breiöd- al, sambýliskona hans er Ólafía Jónsdóttir, og Smári, f. 30. október 1950, starfsmaður Pijónastofúnnar Iöunnar, kvæntur Auöi Hjaltadótt- ur. Eiga þau tvö böm. Andlát Guðmundur Kristjánsson bæjar- sfjóri, Höfðavegi 15, Bolungarvík, lést á heimfii sínu 23. september. Gunnar Bjarnason, fyrrum skólastjóri Vélskólans, varö bráðkvaddur að morgni dags 24. september. Svavar Jóhannsson, fyrrverandi bifreiðaeftirlitsmaður, Bjarkar- stíg 1, Akureyri, lést 19. septemb- er. Þóra Petrina Jónsdóttir, fyrrum húsfrú Reynisvatni, Mávahlíö 3, lést á heimili sínu 21. september. Adolf Andersen, Önundarhomi, Austur-Eyjafjallahreppi, lést á heimili sínu sunnudaginn 20. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.