Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987. 45, Jón Þórarinsson tónskáld, sem varð sjötugur um daginn, hefur haft i mörgu að snúast á kvikmyndahátiðinni. Hér er hann ásamt konu sinni, Sigurjónu Jakobsdóttur, og borgarstjórahjónunum, þeim Davið Oddssyni og Ástríði Thorarensen. Kristinn Hallsson söngvari og Valsmaður heilsar hér Sieglinde Kahmann sönkonu með virktum en eiginmaður hennar, Sigurður Björnsson fram- kvæmdastjóri, fylgist með álengdar. Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri var auðvitað mættur á opnunina en hér er hann ásamt Valgerði Matthías- dóttur arkitekt og Jóhanni Sigurjónssyni sjávarlíffræðingi. DV-myndir S Ettore Scola var heiðursgestur við opnun kvikmyndahátíðar. Sviðsljós Ólyginn sagði... Bruce Willis getur svo sannarlega glaðst þessa dagana. Hann er á góðri leið með að verða ein helsta stjarna kvikmyndanna en það var frammistaða hans í sjónvarpsþáttunum Moon- ligting sem tryggði ferilinn. Nýlega fékk hann hin virtu Emmy-verðlaun fyrir leik sinn í þáttunum en þau eru nokk- urs konar óskarsverðlaun meðal sjónvarpsfólks Michael J. Fox þykir nú allra manna vinsæl- astur í Hollywood ef mælt er i aðdáendabréfum sem hon- um berast á viku. Hann fær sem nemur 20500 bréfum á viku en segist því miður ekki geta svarað þeim öllum enda hætt við að hann fengi krampa í höndina ef hann gerði það. Linda Evans er í öðru sæti með 18000 bréf. Tony Danza fær 15000 bréf, Bill Cosby 14500 og Joan Collins fær 12000 bréf. Kvikmyndahátíð með pomp og prakt Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum að nú er kvikmyndahátíð hér í bæ en Listahátíð stendur nú fyrir sinni 8. kvikmyndahátið í Laug- arásbíói. Þar eru sýndar yfir 30 myndir frá 17 löndum og margar þeirra hin forvitnilegustu kvik- myndaverk. Nú fer hver að verða síðastur að njóta þeirra hstaverka sem er boðið upp á þarna því að há- tíðinni lýkur um helgina, nánar tiltekið á sunnudagskvöld. Opnun hátíðarinnar fór fram síð- asta laugardag að viðstöddu miklu flölmenni. Um leið og hátíðin var sett voru afhent verðlaun í handrita- samkeppni listahátíðar. Að lokinni setningarathöfninni var sýnd mynd ítalans Ettore Scola, Makkaróní, en Scola var einn af mörgum erlendum gestum hátíðarinnar. Ljósmyndari DV lét sig ekki vanta á þetta manna- mót og festi atburðinn á filmu. Jón Helgason landbúnaðarráðherra og kona hans, Guðrún Þorkelsdóttir. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra ásamt önnu Kristínu, dóttur sinni. Lárus Ýmir Óskarsson var einn af verðlaunahöfum í handrltakeppni llstahá- tiðar en eítthvað er hann skritinn á svip yfir því. Með honum á myndinni eru þau Guðrún Gisladóttir leikkona og Friörik Þór sem var í dómnefndinni M\ MÆTIR MEÐ KASSAGÍTARINN I rn m m — rn Blfflil SUÐURLANDSBRAUT 26 23.30 VERÐ KR. 400

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.