Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Qupperneq 18
18
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987.
íþróttir
Góður árangur hjá íslenskum knattspymumönnum:
llílDDA
numiA
HELD!
Septembermánuður hefur verið sæt-
ur fyrir islenska knattspymu. Mörg
frækileg afrek hafa verið urrnin og ber
árangur íslenska landsliðsins undir
sfjóm V-Þjóðverjans Sigi Held hæst.
Fyrst sigur, 2-0, gegn A-Þjóðverjum j,
ólympíukeppninni og síðan tveir sigr-
ar gegn Norðmönnum, sem tefldu
fram sínu sterkasta landsliði fram til
þessa. Norðmenn vora lagðir að velli,
2-1, í Reykjavík og svo 1-0 í Osló. Fé-
lagslið okkar stóðu í ströngu í Evrópu-
keppninni. Skagamenn léku aðeins tíu
lengstum gegn ellefu leikmönnum
Kalmar FF og norskum dómara. Þeir
gerðu jafntefli, 0-0. Vaismenn fóra til
A-Þýskalands þar sem þeir glímdu við
leikmenn Wistmud Aue og rússnesk-
an dómara.
Sigrar íslands era sætir og þá sér-
staklega fyrir Sigi Held landsliðsþjálf-
ara. Á hann hefur óspart verið deilt
að undanfömu og era þeir sem það
gera enn ekki búnir að gleyma skeflin-
um, 0-6, fyrir A-Þjóðveijum á Laugar-
dalsvellinum í sumar. Þetta tap hefur
setið svo fast í mönnum að þeir hafa
gleymt eða lokað augunum fyrir því
að síðan hafa íslensk landslið leikið
sex leiki undir stjóm Sigi Held ár. þess
að tapa, unnið flóra og gert tvö jafn-
tefli. íslenskir landsliðsmenn hafa
skorað tíu mörk í þessum leikjum en
aðeins fengið á sig flögur. 21 árs lands-
liðið hefur leikið þrjá leiki, gert jafn-
tefli, 0-0 og 2-2, gegn Dönum og
Finnum og unnið sigur, 3-1, yfir Dön-
um í Danmörku. Síðan komu sigramir
nú í september sem sagt var frá í upp-
hafi.
„Derrick" íslenskrar
knattspyrnu
Þeir sigrar hafa unnist þrátt fyrir
að hvert óhappið af öðra hefur átt sér
stað hjá íslenskum landshðsmönnum,
sem hafa átt við meiðsli að stríða. Já,
jafnvel forfaflast á elleftu stundu. Þaö
má með sanni segja að Sigfrid Held
landsflðsþjálfari sé „Derrick" íslenskr-
ar knattspymu. Þessi gamfl knatt-
spymurefúr, sem hefur ekki kippt sér
upp við óréttmæta ádeilu, er klókur
og útsjónarsamur, maður sem þekkir
sín talunörk. Hann sníður íslenskum
knattspymumönnum stakk eftir vexti
og leysir erfiðar þrautir þegar þær
koma upp. Held gerir sér íyflilega
grein fyrir hvað íslenskir knatt-
spymumenn kunna og geta. Hann
veit hvernig hægt er að fá það besta
út úr leik þeirra hveiju sinni.
Deilt hefur verið á Held vegna vam-
arleiks. Jafnvel vora deilur háværar
eftir sigurleik, 2-1, gegn Norðmönn-
um. Þeir sem hafa barið bumbur að
undanfomu era ekki eins klókir og
Held. Þessir menn hafa taflð að ís-
lenskir knattspymumenn væra
orðnir svo góðir að þeir geti leyft sér
að leika stífan sóknarleik í landsleikj-
um án þess að hugsa um vamarhlið-
ina. Þeir hafa gleymt því að íslensk
knattspymuflð háfa undanfarin ár
náð sínum besta árangri gegn þraut-
þjálfuðum atvinnumönnum með því
að leika vamarleik. Já, þess má til
gamans geta í þessu sambandi að
sterkur vamarleikur ítala færði þeim
heimsmeistaratitiflnn á Spáni 1982.
íslenskir knattspymumenn era ekki
orðnir það sterkir að þeir geti farið að
leika sóknarleik á kostnað vamarinn-
ar. Sóknarleikur hefst yfirleitt aftar-
lega á velflnum og þaðan hefjast
uppbyggingar á sóknarlofum - sókn-
arlotum sem alfir ellefu leikmennimir
taka virkan þátt í. Þannig hefur ís-
lenskt landslið leikið mörg undanfarin
ár og þannig mun það leika í ókom-
inni framtíð. íslenskt landsflð á að
byggja á kletti en ekki á sandi og sýnd-
armennskunni einni.
Held veit hvað hentar best
Árangur íslenska landsliðsins í Evr-
ópukeppni landsflða er mjög góður
Fréttaljós
Sigm. O. Steinarsson
undir stjóm Helds. Menn geta ekki
farið fram á betri árangur eins og
máfln hafa þróast. Margir bestu leik-
menn okkar hafa ekki getað leikið
vegna meiðsla. Aðaláhersla Helds er
að íslenska landsflðið leiki yfirvegað
og skynsamlega, haldi knettinum og
láti hann ganga frá manni til manns.
Hann hefur brýnt fyrir mönnum að
beijast og gefa aldrei eftir, gefa allt sem
þeir eiga til í leikinn. Þetta gerðu ís-
lensku leikmennimir gegn Rússum og
Frökkum á Laugardalsvellinum í
fyrra og árangurinn varð 1-1 og 0-0
gegn þessum sterku knattspymuþjóð-
um. Sigi Held var þá hetja og áttu
menn mörg góð lýsingarorð yfir hann.
Þegar íslensku landsfiðsmennimir
sofiiuðu á verðinum - mættu til leiks
of sigurvissir og sjálfumglaðir í leik
gegn A-Þjóðveijum, þar sem þeir
fengu skell, 0-6, var Held orðinn óal-
andi og ófeijandi. Menn vildu að hann
hætti með landsliðið.
Held var ekki ánægður með leikinn
gegn A-Þjóðveijum. Hann lagði þá
ekki árar í bát heldur sagði að þetta
mætti ekki gerast aftur. Held hefur
staðið við það. Hann hefur náð að
púrra leikmenn upp þannig að þeir
hafa gefið allt sem þeir eiga í leik sinn.
Rétt uppbygging
Það hefur átt sér stað rétt uppbygg-
• Sigfrid Held, landsliðsþjálfarinn snjalli, sem hefur náð mjög góðum árangri
með landslið íslands. Teikning: EMM
Sigfrid Held, landsliðsþjálfari
Islands er „Demck islenskrar iwnu. Hann er ntaðurinn
sem k< jt■iwa ncaiiiB d inciviiiimi inn að leysa flókmistu
vandamál.
• Islenskir knattspymumenn hafa fagnað mörgum góðum sigrum að undanfömu. Þeir hafa ieikið sex leiki í röð und-
ir stjóm Sigi Held án þess aö tapa. Það er gleði í herbúðum íslenskra knattspymumanna þessa dagana.
ing á íslenskum landsliðum undir
stjóm Helds. Hann stjómar þremur
landsflðum, A-landsflðmu, ólympíu-
flðinu og 21 árs liðinu. í síðustu leikj-
um hefur Held ekki getað stíflt upp
sama byijunarliðinu vegna meiðsla
leikmanna. Þegar leikmaður í A-flðinu
forfaflast kallar Held á leikmann úr
ólympíuliðinu til að fyfla skarðið. Þeg-
ar leikmaður forfallast í ólympíuliðinu
kallar Held á leikmann úr 21 árs liðinu
til að fylla skarðið þannig að undir-
búningurinn er keðjuverkandi.
Leikmennimir í þessum þremur flð-
um vita alflr hvers Held ætlast til af
þeim og hvemig hann vill aö þeir leiki.
Við erum búnir að eignast stóran og
sterkan hóp af knattspymumönnum
sem aflir geta klæðst landsflöspeys-
unni þegar þeir era kallaðir til orr-
ustu.
Tuttugu leikmenn hafa leikið lands-
leikina gegn A-Þjóðveijum og Norð-
mönnum í september. Þeir bafa aflir
staðið sig vel. Margir hafa átt við
meiðsfi að stríða og ekki getað leikið.
Undir stjóm Helds höfum við eignast
stóran og sterkan hóp af knattspymu-
mönnum sem aflir era tilbúnir í
slaginn þegar blásið er til orrastu.
-sos
Miðvikudagur
2
septemben
íslenska ólymp- íulandsliðið náði íslendingarléku gegn Norðmönn- Valsmenn náðu
Miðvikudagur um í Evrópu- keppni landsflöa. Þriðjudagur Tíu Skagamenn Miðvikudagur góðum árangri í UEFA-keppninnií Mlðvikudagur
að koma fram Sigur vannst, 2-1, léku gegn ellefu Aue í A-Þýska-
hefndum gegn A- A þrátt fyrir að 4 E leikmönnum 41 A landi. Þar gerðu
Þjóðveijum, vann Norðmeim skor- 1 Kalmar FF frá L þeir jafntefli, 0-0,
sigur, 2-0, með W ■ uðu fyrsta mark Svíþjóð og norsk- bVi viö leikmenn
vörkum Guð- leiksins. Pétur um dómara í Wismut Aue sem
mundar Torfa- sonar og Ólafe septemben Pétursson og Pét- ur Ormslev september Evrópukeppni bikarhafa. Jafn- september fengustuðningfrá rússneskum september
Þóröarsonar. skoruðu mörkin. tefli varð, 0-0. dómara.
Góður árangur
íslenska lands-
liösins í Osló þar
semsigurvannst,
1-0, gegn Norð-
mönnum í Evr-
ópukeppni
landsliða.AtliEð-
valdsson skoraði
markið.