Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
•-yuwwprBi
ViðsMpti______________________________________________________________________
Verð á eriendum mörkuðum:
Hráolían að festast í
17,80 dollurum tunnan
árs um 325 krónur fyrir kílóiö en nú
er það komið niður í 234 krónur.
Lækkaði síðast um mánaðamótin.
Þetta er gríöarleg lækkun og ljóst að
verðlækkun á kaffi á heimsmarkaðn-
um hefur náð til neytenda á is-
landi.
Og þá er það ullin. Verð á mjög
flnni ull í Sydney í Ástralíu hefur
fikrað sig upp síðustu vikumar. Það
er nú um 9,10 dollarar kílóið en var
fyrir nokkrum mánuðum um 8,75
doUarar kílóið. Svohtið breytílegt
auövitaö eftir tegundum.
Sú ull, sem flutt hefur verið inn til
landsins, er í allt öðrum gæðaflokki
en uUin í ÁstraUu. Meðalgróf og
þvegin ull frá Nýja-Sjálandi eins og
flutt er tíl landsins er á biUnu 4,90
doUarar til 5,10 doUarar kUóið. Mik-
Ul munur á fínu og meðalgrófu - og
líka í verði.
-JGH
Verð á hráoUu á Rotterdammarkaði
virðist vera að festast í 17,80 doUur-
um tunnan. Verðið hefur verið í
kringum 17,80 doUara í mánuð.
Ánægjuleg tíðindi þar sem verð á
hráoUu ræður aftur verðmyndun-
inni á unnum oUuvörum eins og
bensíni og gasoUu.
HráoUan var fyrir mánuði á um 19
dollara tunnan. Verö á venjulegu
bensíni var þá 167 dollarar tonnið,
nú um 155 doUarar. Verð á súper
bensíni var þá um 186 doUarar ton-
nið, nú um 177 dollarar. Verð á
gasoUu var þá um 165 dollarar tonn-
ið, nú um 162 dollarar. GreinUeg
lækkun.
Nú eru aðeins 14 dagar tU jóla og
menn að komast í jólaskap. Menn spá
samt engri jólasveiflu í Rotterdam.
Það eru fyrst og fremst kuldaköst
sem hafa áhrif á markaðinn og verði
kalt um jólin getur verð gasolíunnar
Hér er pælt i ullinni. Verð ð mjög
finni ull í Sydney hefur fikrað sig upp
að undanförnu og er nú í kringum
9,10 dollara kílóið. Sú ull sem flutt
er til landsins er grófari, verðið á
henni er I kringum 5 dollara kílóið.
farið á flakk upp á við.
Verðið á únsunni af gulU í London
er enn um 20 doUurum hærra en fyr-
ir mánuöi. Það er nú um 485 doUarar,
og var á um 490 dollarar í síðustu
viku. Og verð á áU ætlar að festast í
kringum 920 sterUngspund tonnið í
London. ÁUð hefur hríðlækkað eftir
að það geystist upp fyrir tveimur
mánuðum. Það fór hátt í 1300 pund.
En niðurstaðan er greinileg. Það verð
hefur verið of hátt, markaðurinn
hefur hafnað því og fært það niður
aftur.
Verðbreytingar á kafti eru litlar.
Verð á kaffibaunum er í kringum 115
cent fyrir pundið. Eftir áramót tekur
samningur kaffiræktenda og kaffi-
kaupenda gUdi og hafa menn skuld-
bundið sig til að halda verðinu á
bilinu 120 til 140 cent pundið. Þess
má geta að verö frá kaffiverksmiðj-
unum á íslandi var í byrjun þessa
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15
ára og yngri og 65 ára og eldri. Innstæður
þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra
16 ára. 65 ára og eldri geta losað innstæöur
sínar með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir
eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert inn-
legg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9%
nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eða almannatryggingum. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 23%
og ársávöxtun 23%.
Sérbók. Við innlegg eru nafnvextir 18% en 3%
bætast viö eftir hverja þrjá mánuði án úttektar
upp í 27%. Hvert innlegg er meðhöndlað sérs-
taklega. Áunnið vaxtastig helst óbreytt óháð
úttektum en vaxtahækkun seinkar um þrjá mán-
uði ef innleggið er snert. Á þriggja mánaða
fresti er gerður samanburður vió ávöxtun þriggja
mánaða verðtryggðra reikninga, nú með 2%
vöxtum, og sú tala sem hærri reynist færð á
höfuðstól. Úttekt vaxta fyrir undangengin tvö
vaxtatímabil hefur ekki áhrif á vaxtahækkanir.
Búnaöarbankinn: Gullbók er óbundin með 33%
nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eða ávöxtun verðtryggðs reiknings
með 4,0% vöxtum reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 0,85% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Vextir færast hálfsárslega.
Metbók er með hvert innlegg bundiö í 18 mán-
uði á 34,5% nafnvöxtum og 37,5% ársávöxtun,
eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 4,0%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuðum liðnum. Vextir eru færðir hálfs-
árslega.
Iðnaöarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur með 30% nafnvöxtum og
32,2% ársávöxtun. Verðtryggð bónuskjör eru
3%. Á sex mánaða fresti eru borin saman verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau sem
hærri eru. Heimilt er að taka út tvisvar á hverju
sex mánaða tímabili. Vextir færast misserislega
á höfuðstól.
18 mánaóa bundinn reikningur er með 34%
nafnvöxtum og 34% ársávöxtun.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 33%
nafnvöxtum og 35,7% ársávöxtun. Af óhreyfð-
um hluta innstæöu frá síðustu áramótum eöa
stofndegi reiknings síöar greiðast 34,4% nafn-
vextir (ársávöxtun 37,4%) eftir 16 mánuöi og
35% eftir 24 mánuöi (ársávöxtun 38,1%). Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður á
ávöxtun 6 mánaða verótryggðra reikninga og
gildir hærri ávöxtunin. Af hverri úttekt dragast
0,85% í svonefnda vaxtaleiöréttingu. Vextir fær-
ast tvisvar á ári á höfuöstól. Vextina má taka
út án vaxtaleiðréttingargjalds næstu tvö vaxta-
tímabil á eftir.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur
stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrstu 3
mánuðina 20%, eftir 3 mánuði 26%, eftir 6
mánuði 31 %, eftir 24 mánuöi 33% eða ársávöxt-
un 35,72%. Sé ávöxtun betri á 6 mánaða
verðtryggðum reikningum gildir hún um há-
vaxtareikninginn. Vextir færast á höfuðstól 30.6.
og 31.12.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 32% nafh-
vexti og 34,56% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs
reiknings reynist betri gildir hún. Vextir færast
hálfsárslega. Af útttekinni upphæð reiknast
0,75% úttektargjald, nema af uppfæröum vöxt-
um síðustu 12 mánaða.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu
ávöxtun óverötryggðra reikninga í bankanum,
nú 32,83% (ársávöxtun 34,51%), eða ávöxtun
3ja mánaða verötryggðs reiknings, sem reiknuö
er eftir sérstökum reglum, sé hún betri. Saman-
burður er geröur mánaðarlega og vaxtaábótinni
bætt við höfuðstól, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Heimilt er að
taka út vexti og vaxtaábót næsta árs á undan
án þess að ábót úttektarmánaðar glatist. Ef ekki
er tekið út af reikningnum í 18-36 mánuöi tek-
ur hann á sig kjör sérstaks lotusparnaöar með
hærri ábót. Óverötryggö ársávöxtun kemst þá
í 35,12-36,95%, samkvæmt gildandi vöxtum.
Verslunarbankinn: Kaskóreíkningur. Megin-
reglan er að innlstæða, sem er óhreyfð í heilan
ársfjórðung, ber 29,0% nafnvexti, kaskóvexti,
sem gefa 32,31% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6
mánaða verótryggðs reiknings, nú með 4%
vöxtum, eftir því hvor gefur hærri ávöxtun fyrir
þann ársfjórðung.
Vextir og verðbætur færast á höfuðstól í lok
hvers ársfjórðungs, hafi reikningur notið þess-
ara „kaskókjara". Reikningur ber kaskókjör,
þótt teknir séu út vextir og verðbætur, sem
færðar hafa veriö á undangengnu og yfirstand-
andi ári. Úttektir umfram það breyta kjörunum
sem hér segir:
Við eina úttekt í ársfjórðungi reiknast almennir
sparisjóðsvextir af úttekinni fjárhæð, en kaskó-
kjör af eftirstöðvum. Viö fleiri úttektir fær öll
innistæða reikningsins sparisjóðsbókarvexti.
Sé reikningur stofnaður fyrsta eða annan virkan
dag ársfjórðungs, fær innistæðan kaskókjör ef
hún stendur óhreyfð út fjórðunginn. Reikning-
ur, sem stofnaður er síðar fær til bráðabirgöa
almenna sparisjóðsbókavexti en getur áunnið
sér kaskókjör frá stofndegi að uppfylltum skil-
yrðum.
Sparisjóöir: Trompreikningur er verðtryggður
og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3,5%
nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða
er gerður samanburður á ávöxtun með svoköll-
uðum trompvöxtum, sem eru nú 30% og gefa
32,90% ársávöxtun.Reynist trompvextir gefa
betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikning-
inn. Hreyfðar innstæöur innan mánaðar bera
trompvexti sé innstæöan eldri en 3ja mánaða,
annars almenna sparisjóðsvexti, 21,5%. Vextir
færast misserislega.
12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vélstjóra
er með innstæðu bundna í 12 mánuöi, óverð-
tryggða, en á 34% nafnvöxtum. Misserislega
er ávöxtun 6 mánaða verðtryggös reiknings, nú
með 3,5% vöxtum, borin saman viö óverð-
tryggöa ávöxtun, og ræður sú sem meira gefur.
Vextir eru færðir síðasta dag hvers árs.
Topp-bók nokkurra sparisjóða er með innstæðu
bundna í 18 mánuði óverðtryggða á 32% nafn-
vöxtum og 35,3% ársávöxtun eða á kjörum 6
mánaóa verðtryggðs reiknings, nú meö 5,0%
vöxtum. Vextir færast á höfuðstól misserislega
og eru lausir til útborgunar á næsta vaxtatíma-
bili á eftir. Sparisjóðirnir í Keflavík, Hafnarfiröi,
Kópavogi, Borgarnesi, á Siglufirði, Ólafsfiröi,
Dalvík, Akureyri, Árskógsströnd, Neskaupstaö,
Patreksfiröi og Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis bjóöa þessa reikninga.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðþréf eru til sölu hjá verð-
bréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veöi
undir 60% af brunabótamati fasteignanna. Bréf-
in eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggö og
með mismunandi nafnvöxtum. Algengustu
vextir á óverötryggðum skuldabréfum vegna
fasteignaviðskipta eru 20% eða meðalvextir
bankaskuldabréfa. Þau eru seld með afföllum
og ársávöxtun er almennt 12-16% umfram verð-
tryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá húsnæðisstofnun ríkisins
getur numið 2.755.000 krönum á 4. ársfjórö-
ungi 1987, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á
síðustu þrem árum, annars 1.929.000 krónum.
Út á eldra húsnæði getur lán numið 1.929.000
krónum, hafi viðkomandi ekki átt íbúð á sl. þrem
árum, annars 1.350.000 krónum.
Undantekningar frá þriggja ára reglunni eru
hugsanlegar vegna sérstakra aðstæðna.
Lánin eru til 40 ára og verðtryggð. Vextir eru
3.5%. Fyrstu tvö árin greiöast aðeins veröbætur
og vextir, síðan hefjast afborganir af lánunum
jafnframt. Gjalddagar eru fjórir á ári.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóöir eru í landinu. Hver sjóður
ákveöur sjóðfélögum lánsrétt, lánsupphæðir,
vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er
30-60 mánuðir. Sumir sjóöir bjóða aukinn láns-
rétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru
mjög mishá eftir sjóðum, starfstíma og stigum.
Lánin eru verðtryggð og meö 5-9% vöxtum,
algengastir eru nieðalvextir, nú 8,1%. Lánstími
er 15-42 ár.
Biötími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt
er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eöa
safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknaöir í einu
lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagö-
ir við höfuöstól oftar á ári verða til vaxtavextir
og ársávöxtunin veróur þá hærri en nafnvextirn-
ir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10%
nafnvöxtum veröur innstæðan í lok tímabilsins
1100 krónur. Ársávöxtunin veröur því 10%. Sé
innstæöan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr
raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafn-
vel oröið neikvæð.
Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10%
nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eftir 6 mán-
uði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan
á þá upphæö leggjast 5% vextirseinni 6 mánuð-
ina. Á endanum veröur innstæðan því 1.102,50
og ársávöxtunin 10,25%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 4,1 % á mánuöi eða 49,2% á ári.
Vísitölur
Lán«k|aravisltala I desember 1987 er 1886
stig en var 1841 stig i nóvember. Miðaö er viö
grunninn 100 I júnl 1979.
Byggingarvfaltala fyrir desember 1987 er 344
stig á grunninum 100 frá 1983, en 107,5 á
grunni 100 frá júll 1987.
Húsalelguvfsltala hækkaöi um 5% 1. okt. Þessi
vlsitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem
við hana er miöaö sérstaklega I samningum
leigusala og leigjenda. Hækkun vlsitölunnar
miðast við meðaltalshækkun launa næstu þrjá
mánuði á undan.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 20-22 Lb,lb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 20-24 Úb
6mán. uppsögn 22-26 Ab
12mán. uppsögn 24-30,5 Úb
18mári.uppsögn 34 Ib
Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb
Sértékkareikningar 10-23 Ib
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab,Úb, Lb,Vb
Innlán meðsérkjör- 19-34,5 Úb
um Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-7,25 Ab.Sb, Vb
Sterlingspund 7,75-9 AbVb, Sb
Vestur-þýskmörk 3-3,5 Ab.Sp, Vb
Danskarkrónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 33-34 Sp
Viöskiptavlxlar(forv.)(1) 36 eða kaupgengi
Almennskuldabréf 35-36 Úb.Vb, Sb,Sp
Viöskiptaskuldabróf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr.) 35-39 Sp
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 9,5 Allir
Útlántilframleiðslu
Isl.krónur 31-35 Úb
SDR 8-9 Vb
Bandaríkjadalir 9-10,5 Vb
Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb
Vestur-þýsk mörk 5,5-6,5 Vb
Húsnæðislán 3,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 49,2 4,1 á món.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. des. 87 35
Verðtr. des. 87 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala des. 1886stig
Byggingavísitala des. 344 stig
Byggingavísitalades. 107,5stig
Húsaleiguvísitala Hækkaöi 5% 1 okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,3456
Einingabréf 1 2,484
Einingabréf 2 1,454
Einingabréf 3 1,534
Fjölþjóðabréf 1,140
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2,497
Lífeyrisbréf 1.249
Markbréf 1,272
Sjóðsbréf 1 1,218
Sjóðsbréf 2 1,077
Tekjubréf 1,308
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiðir 196 kr.
Hampiöjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
Iðnaöarbankinn 143 kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 160 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðaö við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, lb= Iðnaöarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb= Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Hraður
akstur veldur oft
alvarlegum slysum
UMFERÐAR
RÁÐ
Verð á eriendum
mörkuðum
Verö í Rotterdam, fob., 8. des.
Bensín, veiýul......154,50$ toimið
eöa um........4,30 ísl. kr. lítrinn.
Bensín, super,......176,50$ tonnið
eöa um........4,90 ísl. kr. lítrinn.
Gasolla............161,50$ tonnið
eöa nm........5,05 ísl. kr. lítrinn.
Svartolía............93,50$ tonnið
eöa um........3,20 ísl. kr. litrinn
Hráolía
Verð í Rotterdam, fob., 8. des.
um......17,80 dollarar tunnan
eða um....654 Isl. kr. túnnan.
Gull
Verð í London 9. des.
um.........485 dollarar únsan
eöa um.....17.824 ísl. kr. únsan.
Verð í Sydney, Ástralíu
um.................910 cent kílóið
eða um........334 ísl. kr. kílóið.
Bómull
Verð á bómull í New York
um...........65 cent pundið
eða um.......53 ísl. kr. kílóiö.
Hrásykur
Verð í London
um........202 dollarar tonnið
eða um.7.424 ísl. kr. tonnið.
Sojamjöl
Verö í Chicago
um........210 dollarar tonnið
eða um.7.718 ísl. kr. tonniö.