Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 12
12
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
Neytendur
Á myndinni eru Jón Karlsson útgefandi, Valdimar Jóhannsson, Sigurður Thorlacius læknir, ritstjóri bókarinn-
ar, og Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra.
Allt sem þú þarft að vita um
sjúkdóma og heilbrigði
Heimilislæknirinn, vandað rit fýrir almenning
Alfræðirit um heilbrigði og sjúk-
dóma fyrir almenning, Heimilis-
læknirinn, er komið út hjá
bókaútgáfunni Iðunni. Bækur
þessar eru árangur samvinnu 52
lækna og sérfræðinga en að frum-
útgáfunni stóðu 40 enskir læknar
og sérfræðingar. Tólf íslenskir
læknar og sérfræðingar unnu að
íslensku útgáfunni undir ritstjórn
Sigurðar Thorlaciusar læknis við
að þýða og staðfæra, semja íslenska
sérkafla og búa ritið sem best í
hendur íslenskra notenda. Ólafur
Ólafsson landlæknir skrifar form-
álá bókarinnar.
Verkið er í þrem bindum og skipt-
ist í fjóra hluta. í fyrsta hluta er
rætt um holla lífshætti, heilsu-
vernd og fyrirbyggjandi ráðstafan-
ir. í öðrum hluta er hægt að lesa
um greiningu sjúkdóma og þar er
að finna sjúkdómsgreiningarkort
sem auðveldar fólki að finna af
hveiju hin ýmsu sjúkdómsein-
kenni stafa. Þriðji kaflinn, sem
einnig er stærsti hluti bókarinnar,
inniheldur skýrar og nákvæmar
upplýsingar um hundruð kvilla og
sjúkdóma. Þar er leitast við að
svara fimm grundvallarspurning-
um um hvem einstakan sjúkdóm,
hver séu einkenni, hvort vanda-
málið sé algengt, hverjar séu afleið-
ingar, hvað eigi að gera og hver
meðferðin sé.
í þessum kafla er sjúkdómum
lýst og þar eru einnig vandaðar og
auðskiljanlegar skýringarmyndir.
Þar er einnig að finna kafla um
sérstök vandamál kvenna, karla,
barna, unglinga og aldraðra og auk
þess sérstakur kafii um meðgöngu
og fæðingu. Þá skrifar Siguröur
Guðmundsson læknir sérstakan
kafla um alnæmi.
í íjórða kafla bókarinnar em
kaflar um íslenska heilbrigðiskerf-
ið eftir Guðjón Magnússon aðstoð-
arlandlækni. Þar sem m.a. er greint
frá þjónustu heilsugæslustöðva,
sérfræðinga og sjúkrahúsa. Þar er
fjallað um heimahjúkrun, legu
sjúklinga í heimahúsum og sér-
stakur kafli er um dauðastríð og
dauða. í þessum kafla er einnig
fræðiorðaskrá þar sem ýmis lækn-
isfræðileg heiti og hugtök eru
útskýrð, lyfjalisti þar sem finna
má upplýsingar um flest algeng
lyf, notagildi þeirra og aukaverk-
anir. Loks er í bókinni sérkafli um
slys og neyðartilvik þar sem leita
má í skyndi ráða og leiðbeininga
um hvernig bregðast skuli viö þeg-
ar slys ber að höndum.
Heimilislæknirinn hefur m.a. ve-
rið gefinn út í flestum löndum
Vestur-Evrópu og þá undantekn-
ingarlaust í samprenti margra
landa. Vegna sérkaflanna er ís-
lenska útgáfan talsvert frábmgðin
hinum erlendu útgáfum svo bókin
var unnin í prentsmiðjunni Odda.
Prentsmiðjan Prisma í Hafnarfirði
setti bækurnar og filmuvann.
Þetta veglega rit kostar með sölu-
skatti 13.980 kr. út úr búð.
-A.Bj.
HeiIIaráð
Katta- og
hundahár
Hár af elsku heimilisdýrunum
okkur, hundum og köttum, vill
sitja eftir á stoppuðum stólsetum
ef dýrin fá sér þar blund. Þaö getur
farið illa með áklæðið að bursta það
eða skrúbba til að ná hárunum af.
Á dögunum datt okkur það snjall-
ræði í hug að ná kattarhárum af
með grófu límbandi. Við hreinlega
lögðum límbandið yfir þvera set-
una eins og við ætluðum að líma
það fast og tókum það síðan upp.
Hvert einasta hár sat eftir á lím-
bandinu og stólamir urðu eins og
nýir á eftir.
Stirðir gluggar
og skúffur
Ef opnanlegu gluggamir eru eitt-
hvað stiröir getur verið gott að
nugga kerti í falsinn á gluggakarm-
inum. Sama er hægt að gera ef
skúffur eru eitthvað stirðar. Nugg-
ið kerti utan á skúffurnar og þær
verða liprari á eftir.
Enginn grátur
yfir lauk
Þú losnar við að tárast yfir laukn-
um ef þú stingur honum í svona
10 mín. í frysti áður en hann er,
skorinn.
Hreinsun
á töflu
Margir krakkar eiga töflur sem
þau nota í skólaleik. Hægt er að
hreinsa töflur mjög vel með ediki.
Þá verða þær eins og nýjar.
Edikí
gufiijámið
Ef gufustraujámið þitt er eitt-
hvað farið að stíflast er gott ráð að
láta svolítið edik í vatnstankinn.
Það hreinsar allar stíflur úr járn-
inu.
Plast til
húsgagna-
flutninga
Það getur verið mikið vandamál
að færa þung húsgögn til á gólf-
teppi þegar á að mála eða hreinsa
teppið. Góð lausn á því er að láta
hveija löpp á sóffanum í plastpoka
og ýta síðan viðkomandi sófa til á
auðveldan hátt.
Suma hluti getur verið hægt að
draga til, t.d. með því að breiða
stórt baðhandklæði á gólfið undir
hlutinn, kannski stóra pottaplöntu,
og draga síðan eftir gólfinu á hand-
klæðinu.
-A.Bj.
Meðal- Lægsta Hæsta Mismunur
verð verð verð i%
Kellogs com flakes 375 g pakki 106.66 102.80 112.00 8,9%
Koilogs com flakes 500 g pakki 131,34 124,80 138.00 10,6%
Kellogs corn flakes 500 g pokl 108.21 104.20 114.00 9,4%
Cheerios7oz 69.11 66.50 74.00 11,3%
CheerioslSoz 140.72 137.00 146.00 6,6%
CocoPuffs12oz 145.02 139.00 150.00 7,9%
CocoPuffs17oz 196.93 189.00 205.00 8,5%
Þarna má sjá meðalverð á morgunkorni úr verðkönnun Verðlagsstofnunar
sem gerð var í október si.
Morgunkomið 8%
dýrara í
Hagkaup en Nýjabæ
„Þetta em mínir peningar og ég
vil ekki greiða hærra verð fyrir vör-
una en ég nauðsynlega þarf,“ sagði
maöur nokkur er heimsótti okkur á
Neytendasíðunni. Hann hafði veriö
að snæða morgunverð með fjöl-
skyldu sinni og á borðum var
Cheerios. Sá pakki hafði verið keypt-
ur í Nýjabæ og kostaði 129,50 kr. Er
ekki að orðlengja það að pakkinn
kláraðist og tekinn var annar pakki
sem keyptur haföi verið í Hagkaupi.
Sögumaður okkar hugðist nú sjá hve
mikið hann hefði sparað sér með því
að kaupa í ódýrustu búðinni í höfuð-
staðnum. Mikil var undrun hans er
í ljós kom að Hagkaupspakkinn kost-
aði 139 kr., eða rétt um 8% meira en
í „dýrustu" búðinni, Nýjabæ.
Sögumaður okkar fór þá á stúfana
til þess að athuga hvort þetta hefði
verið einangrað fyrirbæri, en í Ijós
kom að stóreflisstæða af 425 g Cheer-
ios pökkum var verðmerkt með 139
kr. í Hagkaupi. Þá athugaði hann
einnig verðið á 500 g af Kelloggs
komflögum sem kostaði 118,50 í Nýja
Bæ en 127 kr. í Hagkaupi. 375 g Kel-
logspakki kostaði 96,50 kr. í Nýja Bæ.
en 104 kr. í Hagkaupi.
Það má því segja að engum sé alls
varnað og e.t.v. ekki alltaf aö treysta
því að verðiö sé lægst í Hagkaupi á
öllum vömm sem þar fást.
Meðalverð á Cheerios í 15 oz pakka
(425 g) í verðkönnun Verðlagsstofn-
unar í október reyndist vera 140,72
kr„ lægsta verð var 137 kr. og það
hæsta 146 kr. Sjá nánar á meðfylgj-
andi töflu. Nýibær virðist hafa
lækkað verð á Cheerios síðan verð-
könnunin var gerð í október.
-A.Bj.
Morgunkornið, sem keypt var i Nýjabæ, var um það bil 8% ódýrara en í
Hagkaupi. DV-mynd KAE
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
ijölskyldu af sömu stærð og yðar.
Nafn áskrifanda
j Heimili
Sími
! Fjöldi heimilisfólks i Kostnaður í nóvember 1987:
J Matur og hreinlætisvörur kr. 1 Annað kr.
Alls kr. . DV