Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Side 20
20
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
HAFNARFJÖRÐUR
Blaðbera vantar í:
MIÐBÆ
OG
VESTURBÆ.
Upplýsingar í síma 50641.
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn í Baðstofunni, Ingólfsstræti 5, í dag,
10. desember, kl. 16.30.
Fundarefni: Staðgreiðsla skatta.
Hólmgeir Jónsson hefur framsögu og
svarar fyrirspurnum.
Stjórnin
GÓÐIR BÍLAR Á GÓÐU VERÐI
Honda Prelude 2000,16 ventla, árg.
1987, 5 gíra, 2ja dyra, ekinn 8 þús.,
rauður, sóllúga. Verð 880 þús. Góð
kjör.
Mazda 626 hatcback 2000 árg. 1987,
5 gira, 4ra dyra, ekinn 20 þús., hvít-
ur, rafmagn í rúðum, vökvastýri.
Verð 630 þús.
MMC Sapporo VX 2400 árg. 1986,
sjálfsk., 4ra dyra, ekinn 8 þús., blár.
Verð 850. þús. Bill með öllu.
Peugeot 205 GTi árg. 1987, 5 gíra,
2ja dyra, ekinn 14. þús., hvítur.
Verð 610 þús. Góð kjör.
Nauðungaruppboð
annað og síðara, sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins
1987 á fasteigninni Ökrum III, Hraunhreppi, þinglesinni eign Konráðs Júl-
íussonar fer fram að kröfu Gísla Kjartanssonar hdl., innheimtumanns ríkis-
sjóðs, Stofnlánadeild landbúnaðarins og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á
skrifstofu embaettisins þriðjudaginn 15. des nk. kl. 14.00.
Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á fasteign-
inni Álftárósi, Álftaneshreppi, þinglesinni eign Sigrúnar S. Daníelsdóttir og
Ólafs Harðar Sigtryggssonar, fer fram að kröfu Stofnlánadeildar landbúnað-
arins og innheimtumanns ríkissjóðs á skrifstofu embættisins þriðjudaginn
15. des. nk. kl. 11.30.
___________________Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 82., 84. og 88. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987 á fasteign-
inni Borgarbraut 7, Borgarnesi, þinglesin eign Blængs Alfreðssonar, fer fram
að kröfu Iðnaðarþanka íslands hf. og Veðdeildar Landsbanka íslands á
skrifstofu embættisins þriðjudaginn 15. des. nk. kl. 10.00.
___________________Sýslumaður Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Nýjar bækur
I aðalhlutverki
Bókaforlag Máls og menningar hefur
gefið út bókina í aðalhlutverki Inga
Laxness.
Ingibjörg Einarsdóttir, öðru nafni
Inga Laxness, er uppalin á miklu
menningarheimili í Reykjavík á
fyrstu áratugum aldarinnar. Hún er
dóttir Einars Amórssonar, síðasta
íslandsráðherrans, sem var einn
áhrifamesti stjómmálamaður á sinni
tíð. 16 ára gömul kynnist hún Hall-
dóri Laxness og segir hér skemmti-
lega frá kynnum þeirra og
hjónabandi sem stóö í 10 ár.
Þegar Lárus Pálsson stofnaði leik-
listarskóla sinn árið 1940 var Inga
fyrsti nemandi hans. Frásögn hennar
skráði Silja Aðalsteinsdóttir. Bókin
er 255 bls. að stærð með hátt á annaö
hundraö ljósmyndum, prentuð í
Prentsmiðjunni Odda hf. Teikn sá
um hönnun kápu. Verö kr. 2.490.
Arfur fortíðar
Vaka-Helgafell hefur sent frá sér
nýja skáldsögu, Arfur fortíðar, eftir
Victoríu Holt sem er einn af mest
lesnu skáldsagnahöfundum hér á
landi eins og í flestum löndum Evr-
ópu. Þykir fáum betur lagið en
Victoríu Holt að setja saman ró-
mantískar spennusögur og skáldsag-
an Arfur fortíðar á meðal þess besta
sem komið hefur frá Holt.
í Arfi fortíðar er sögð saga Karólínu
Tressidor sem er ung stúlka af góð-
um ættum, fógur og rík með gull-
tryggða framtíð. Allt í einu flækist
hún óafvitandi inn í leyndardóms-
fulla atburði sem gjörbreyta lífi
hennar.
Arfur fortíðar er 365 blaðsíður,
prentuð í Prentstofu G. Benedikts-
sonar og bundin í Bókfelli hf. Bókin
fæst í öllum bókaverslunum og kost-
ar 1.388 krónur með söluskatti.
Furðulúðar og Furðufés
Hjá Vöku - Helgafelli eru komnar
út nýstárlegar hækur fyrir yngri
börnin en bækur af þessari gerð hafa
til þessa ekki verið fáanlegar hér á
landi.
Þessar nýju bækur, sem eru fyrir
yngstu lesenduma, hafa hlotið naf-
nið Leikbækur og eru þetta fyrstu
tvær bækumar í þessum flokki.
Nefnast bækumar Furðulúðar og
Furðufés.
í leikbókunum er lesmál mjög tak-
markað en þess í stað er höfðað til
sköpunargáfu lesendanna og ímynd-
unarafls. Á hverri síðu era kúnstug-
ar persónur og geta börnin sjálf
ákveðið útlit þeirra.
Plastþynnur, sem hægt er að nota
aftur og aftur, fylgja bókunum og
hægt er að festa þær inn á teiknaðar
andlitsmyndir þannig að andhtin
breyti sífeUt um svip. Á þynnunum
eru myndir af mismunandi andUts-
hlutum, munnum, nefjum, skeggi og
fleiru.
Leikbækurnar kosta hvor um sig 290
krónur með söluskatti.
vera hress. Einnig era kaflar úr bók-
unum Á Saltkráku, Leynilögreglu-
maðurinn Karl Blómkvist, Elsku Míó
minn og Ronja ræningjadóttir.
Vilborg Dagbjartsdóttir, Þorleifur
Hauksson, SUja Aðalsteinsdóttir,
Sigrún Ámadóttir, Skeggi Ásbjarn-
arson og Heimir Pálsson þýddu
sögumar í bókinni sem er 632 bls.
að stærð með myndum. Prentsmiðj-
an Oddi hf. prentaði. Verð kr. 1.995.
ÍSnatÖm toka HdjSJjnl
Nýir eftirlætisréttir
Ut er komin ný bók hjá Vöku-
HelgafelU sem ber titUinn Nýir
Eftirlætisréttir. í bókinni birtast
fimmtíu matarappskriftir sem
fengnar hafa veriö frá fimmtíu þjóð-
kunnum íslendingum.
Fyrir sex árum kom út hjá bóka-
útgáfunni Vöku hókin Eftirlætisrétt-
urinn minn sem byggð var upp á
svipaðan hátt og bókin sem hér birt-
ist. Sú bók naut mikilja vinsælda og
er nú löngu uppseld. Því hefur þótt
ástæða til að leita aftur fanga meðal
þekktra samferðarmanna okkar og
tína afraksturinn saman.
Nýir eftirlætisréttir er bók fyrir
aUa þá sem hafa gaman af aö búa til
góðan mat. Verð 1.890.
Bréf séra Böðvars
Bréf séra Böðvars eftir Ólaf Jóhann
Sigurösson er komið út að nýju en
sagan birtist fyrst í safninu Leynt og
ljóst árið 1965. Það er bókaforlag
Máls og menningar sem gefur bókina
út.
Bréf séra Böðvars sýnist í fljótu
bragði ekki segja frá miklum við-
burðum. Aldraður prestur og heið-
ursmaður, séra Böðvar S.
Gunnlaugsson, fer í gönguferð um-
hverfis Tjörnina með konu sinni og
hitta þau hjón gamlan kunningja á
leiðinni, Gússa að nafni. En frásögn-
in er útsmogin og býr yfir mörgum
leyndardómum.
Bókin er 121 bls. í kUjubroti, prent-
uð hjá Norhaven hogtrykkeri í
Danmörku. Verð kr. 495.
Jóhanna Á.Steingrímsdóttir
Á bökkum Laxár
eftir Jóhönnu Álfheiði Steingríms-
dóttur
Út er komin bókin Á bökkum Laxár
eftir Jóhönnu Álfheiði Steingríms-
dóttur í Ámesi í Aðaldal. Útgefandi
er Almenna bókafélagið.
Jóhanna í Ámesi segir frá margs
konar atburðum sem gerst hafa á
bökkum þessarar frægu laxveiðiár,
flestir á hennar dögum, en Jóhanna
er borin og barnfædd í Nesi í Aðal-
dal. Og hún segir frá mannlífinu á
þessum slóðum og baráttunni við
hina fögru á.
Bókin er prýdd aUmörgum fógram
Utmyndum frá Laxá og umhverfi
hennar.
Á bökkum Laxár er 168 bls. að
stærð og prentuð í Prentsmiðju Áma
Valdemarssonar. Verð kr. 1.750.
Sögur og ævintýri
Mál og menning hefur gefið út bók-
ina Sögur og ævintýri sem er stór hók
með verkum Astrid Lindgren. Bókin
er gefin út í tUefni áttræðisafmæUs
höfundarins en er jafnframt ein af
afmæUsbókum Máls og menningar á
fimmtíu ára afmæU bókmenntafé-
lagsins.
Hér birtast í heild sögumar Þegar
ída litla ætlaði að gera skammar-
strik, Tu tu tu, Bróðir minn Ljóns-
hjarta, Emil í Kattholti og Madditt
og leikþátturinn Aðalatriðið er að
Heimili og húsagerð
1967-1987
Hjá Almenna bókafélaginu er komin
út bók um íslenskan arkitektúr er
nefnist Heimili og húsagerð
1967-1987.
Fjöldi glæsUegra ljósmynda er í bók-
inni en þær hafa tekið þeir Guð-
mundur Ingólfsson, Kristján
Magnússon og Ragnar Th. Sigurðs-
son.
Bókin er 192 bls. að stærð í stóru
broti, prentuð í Grafik hf. Verð kr.
2.750.