Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
33
Smáauglýsingar
Nýjar bækur
■ BOar til sölu
VW Transporter disil turbo, árg. ’85, til
sölu, nýsprautaður og nýyfirfarinn.
Mjög traustur vinnuþjarkur. Góð
greiðslukjör. Skipti - skuldabréf.
ÍJppl. á bílasölunni Bliki, Skeifunni
8, símar 686477, 687178 og 686642.
Scout II 74 til sölu, 8 cyl., sjálfskiptur,
vökvastýri, upphækkaður, ný 35x12,5
Marsghall dekk, klæddur að innan,
sportstólar, góð greiðslukjör. Uppl. í
síma 39675.
esr;i rvtr
Nýinnfluttur Chevrolet Eurosport ’86 til
sölu, með beinni innspýtingu, V6 vél
2.8 FI, selst á mjög hagstæðu verði,
skuldabréf koma til greina. Aðalbíla-
salan, sími 15014,17171 og eftir lokun
53344, 54263.
VW Golf, árg. 1981, rauður, ekinn 88
þús„ útborgun 10 þús., eftirst. á 10-12
mán., góður bíll. Uppl. í síma 78822
og 985-21270.
■ Ymislegt
KOMDU HENNI/HONUM
ÞÆGILEGA Á ÓVART.
Áttu i erfiðleikum með kynlff þitt,
ertu óhamingjusamur(söm) í hjóna-
bandi, leið(ur) á tilbreytingarleysinu
eða haldin(n) andlegri vanlíðan og
streitu? Leitaðu þá til okkar, við eig-
um ráð við því. Full búð af hjálpar-
tækjum ástarlífsins í mörgum teg. við
allra hæfi, einnig sexí nær- og nátt-
fatnaður í úrvali. Ath., ómerktar
póstkröfur. Vertu ófeimin(n) að koma
á staðinn. Opið frá 10-18 mán.-fös. og
10-16 laug. Erum í
Veltusundi 3, 3. hæð (v/Hallærisplan),
101 Rvk, sími 29559 - 14448.
■ Þjónusta
Falleg gólf!
Gólfslípun og
akrylhúðun
[AÉdafí
Slípum, lökkum, húðum, vinnum park-
et, viðargólf, kork, dúka, marmara,
flísagólf o.fl. Hreingemingar, kísil-
hreinsun, rykhreinsun, sóthreinsun,
teppahreinsun, húsgagnahreinsun.
Fullkomin tæki. Vönduð vinna. För-
um hvert á land sem er. Þorsteinn
Geirsson verktaki, sími 614207,
farsími 985-24610.
srORii DflRraffiOKm
KVÆÖUflklR
Stóra barnabókin endur-
útgefin
Frjálst framtak hf. hefur endurútgef-
ið Stóru barnabókina en hún kom
út fyrir nokkrum árum, seldist þá
upp á skömmum tíma og hefur verið
ófáanleg síðan. Stóra barnabókin
hefur að geyma sígilt íslenskt úrvals-
efni fyrir böm. Þar em m.a. gamal-
kunnug ævintýri og sögur, ljóö og
vísur, gátur, þrautir og leikir. Þá er
einnig efni um föndur í bókinni. Jó-
hanna Thorsteinsson fóstra valdi
efnið og bókin er myndskreytt af
Hauki Halldórssyni - myndlistar-
manni. Bókin er prentuð í Prentstofu
G. Benediktssonar og bundin hjá
Arnarfelli hf. Verö kr. 795.
Ný bók á markaðinn:
Skákstríð við Persaflóa
Skáksamband íslands hefur gefið út
bók eftir Jón L. Ámason stórmeist-
ara sem hann nefnir Skákstríð viö
Persaflóa. Þar greinir Jón frá ferð
íslenska skáklandsliðsins á ólympíu-
mótið í Dubai í fyrra. Að auki em í
bókinni allar skákir íslensku sveitar-
innar með skýringum eftir skák-
meistarana sjálfa.
Bókin skiptist í tvo meginkafla. í
fyrri hlutanum segir Jón frá aðdrag-
anda ólympíumótsins í Dubai,
undirbúningi íslenska liðsins, feröa-
laginu til Dubai og lífi skákmann-
anna á þessu spennandi skákmóti. í
síðari hlutanum em svo skákir ís-
lendinganna meö skýringum og
nokkrar valdar skákir frá mótinu.
Liðsstjóri og þjálfari sveitarinnar,
Kristján Guðmundsson, skrifar kafla
um þann þátt undirbúningsins og
ferðarinnar.
Bókin er prýdd fjölmörgum ljós-
myndum frá ólympíumótinu.
-S.dór
Imatreiðslubókin
PIZZA XjRVSTA
Matreiðslubókin Pizza og
pasta
Itölsku réttimir pizza og pasta hafa
farið sigurfór um heiminn og eru
komnir hingað til a’ð vera, enda holl-
ir og fjölbreytilegir réttir sem
skemmtilegt er að matreiða.
Þessi vandaða bók, sem Ari Garðar
Georgsson matreiðslumeistari hefur
þýtt og staðfært, leiðir okkur um
leyndardómana að baki pizzunnar
og pöstunnar með myndskreytingum
og nákvæmum skýringum þannig að
matreiðslan verður léttur leikur og
árangurinn ótrúlega ljúffengur og
fjölbreyttur.
Utgefandi er Setberg. Glæsileg, lit-
prentuð matreiðslubók. Verð kr.
1.680.
Mönimusögur
Bamabók með 366 sögum og 468 ht-
myndum. Stuttar sögur, bamavísur
eða þekkt ævintýri fyrir hvem ein-
asta dag ársins. Hvorki afi né amma,
pabbi eða mamma veröa lengur í
vandræðum með söguefni. Falleg Ut-
prentuð bók sem er í stóm broti, 240
blaðsíður. Útgefandi er Setberg. Þór-
ir S. Guðbergsson og Hlynur Öm
Þórisson þýddu og staðfærðu. Verð
kr. 1.250.
Hringsól
Mál og menning hefur ^efið út
skáldsöguna Hringsól eftir Álfrúnu
Gunnlaugsdóttur.
Álfrún rekur í þessari bók örlaga-
sögu íslenskrar konu. Sagan hefst í
Utlu þorpi við sjó á öndverðum fjórða
áratugnum þegar soguhetjan leggur
upp í sína ævireisu. Leiöin Uggur til
Reykjavíkur og síðar til meginlands
Evrópu en ferðinni lýkur þar sem
hún hófst - fimm áratugum síðar.
Álfrún Gunnlaugsdóttir hefur áður
Þjóð bjarnarins mikla
Skáldsagan Þjóð bjamarins mikla er
nú komin út í nýrri útgáfu frá Vöku-
HelgafelU. Þetta er einstætt skáld-
verk sem farið hefur sigurfór um
heiminn og hvarvetna fengiö stór-
kostlegar viötökur.
Þjóð bjamarins mikla er upphafiö á
hinni hrífandi sögu Aylu, stúlku af
ætt Krómagnonmanna fyrir 35.000
ámm, sem verður viðskila við fólk
sitt og elst upp í helU hjá fornri kyn-
kvísl Neanderdalsmanna, sem ekki
getur náð lengra á þróunarbraut-
inni. Ayla er frábrugðin þessi fólki
og það magnar upp spennu og hefur
áhrif á samfélagið allt.
Fríða Á. Sigurðardóttir rithöfundur
þýddi bókina. Þjóð bjamarins mikla
er 492 blaðsíöur og kostar 1.890 krón-
ur með söluskatti.
sent frá sér tvær bækur, smásagna-
safnið Af manna völdum og skáldsög-
una Þel en fyrir þá síðamefndu hlaut
hún menningarverðlaun DV.
Hringsól er 308 bls. að stærð, prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar.
Verð kr. 2.190.
Franskbrauð með sultu
Verölaunabókin Franskbrauð með
sultu eftir Kristínu Steinsdóttiu- er
meðal jólabókanna hjá Vöku-Helga-
felU. Bókin var vaUn úr fjölda
handrita sem bárust í árlega sam-
keppni Verölaunasjóðs íslenskra
bamabóka sem stofnaður var 1985
af Bókaútgáfunni Vöku og fjölskyldu
Ármanns Kr. Einarssonar rithöfund-
ar.
Franskbrauð með sultu gerist á
Austurlandi fyrir 30 árum á tímum
sUdarævintýrisins. Söguhetjan T.illa
fer í heimsókn til ömmu sinnar og
afa, kynnist nýju umhverfi og
skemmtfiegum leikfélögum og öðlast
nýja lífsreynslu. Fyrr en varir lendir
hún í margvíslegum ævintýrum.
Krakkarnir í Guðjónsenshúsinu eru
engu líkir, EmU bíóstjóri sýnir Tarz-
an í þijúbíó, leyndardómar loft-
vamabyrgisins í hlíðinni hejlla og
heyskapur og vinna á sUdarplaninu
opna borgarbaminu nýja veröld.
Franskbrauð með suítu er prýdd
fjölda mynda eftir Brian Pilkington
sem jafnframt teiknaði kápumynd.
Bókin er í kiljubandi og kostar 685
krónur með söluskatti.
Stálnótt
Stálnótt heitir skáldsaga eftir Sjón
sem bókaforlag Máls og menningar
hefur gefið út.
Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar-
ins, óvepjuleg og sterk eins og viö
mátti búast. Hún er í anda vísinda-
skáldsagna, framtíöarsýn þar sem
notaðir eru þættir úr ævintýrabók-
um og hryllingssögum í bland við
bíómyndir samtímans.
Sjón hefur áður sent frá sér fjöl-
margar ljóðabækur og starfað í
súrrealistahópnum Medúsu. Stál-
nótt er 104 bls. að stærð, prentuö í
Prentsmiðjunni Odda. Hrafnkell Sig-
urðsson sá um útlit bókarinnar. Verö
kr. 1.980. .
Alves meirí háttar kaffi.