Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987.
Erlend myndsjá DV
Afanganum fagnað
Undimtun
Svo er að skiptast á eintökum af skjalinu sem er afskaplega viðamikið
enda mörg ákvæði, undirákvæði, aukaákvæði, aðalákvæði og undir-
aukaákvæði að finna í því.
Símamynd Reuter
Alls staðar þessi mótmæli
Hvar sem Sovétleiðtogar koma á Vesturlöndum mæta þeim yfirleitt
mótmæli af einhverju tagi. Svo er einnig í þessarri ferð Mikhail Gor-
batsjov því margir telja sig þurfa að koma umkvörtunarefnum á framfæri
við hann. Mótlætið byrjaði strax í Bretlandi þar sem Gorbatsjov Stoppaði
til að funda með Thatcher og hafa verið næsta óslitin í Washington. Þar
reyndi meira að segja einn að kasta fótbolta í aðalritarann, þótt ekki sé
ljóst hver tilgangur þess tiltækis átti að vera. Á myndinni að ofan eru
mótmælendur í Bretlandi en á litlu myndinni sést fótboltamaðurinn leidd-
ur á brott í Washington.
Allur er varinn góður
Sovétmenn eru varkárir og aldrei eins og þegar um líf og Umi leiðtoga
þeirra er að tefla. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart þótt þeir treysti
öryggisgæslu í Washingtonborg illa og telji varlegra að bregða einum reið-
hjólalás eða svo á hhð sendiráðs síns þai- meðan Gorbatsjov er innan dyra
(sjá mynd til hægri). Á myndinni að neðan sjást svo þeir sem reiðhjólalásinn
á að vernda, það er sendinefnd Sovétríkjanna á leiðtogafundinum. Gor-
batsjov má þekkja af höfuðfatinu en hann er þessi með hattinn. Ef tU viU fór
svo mikið í pels frúarinnar (vinstra megin á mynd) aö hann átti ekki fyrir
loðhúfu eins og hinir.
Er svo ekki rétt að takast í hendur af þessu tilefni? Innsigla samninginn
og þakka fyrir vel unnin störf. Þaö tilheyrir víst svona athöfnum.
Símamynd Reuter
Þá er þessu aflokið og við getum snúið okkur að öðrum verkefnum þegar
við höfum brosað hvor framan í annan hæfilega lengi fyrir myndavélam-
ar.
Margra mánaða samningaþrefi lýkur með fáeinum pennastrikum þegar
leiðtogar stórveldanna undirrita samninginn.
Símamynd Reuter
Mikhail Gorbatsjov er greinilega
skemmt þegar hann hlýðir á skálar-
ræðu Ronalds Reagan Bandaríkja-
forseta í veislunni í Hvíta húsinu á
þriðjudagskvöld. Ef til vill var Reag-
an þarna að hafa yfir einn af Rússa-
bröndurunum sem Bandaríkjamenn
óttuðust að hann kynni að móðga
kollega sinn með.
Leiðtogamir höfðu þó æma ástæðu
til að vera hýrir þetta kvöld því þeir
fognuðu þá merkum áfanga í af-
vopnunarmálum. Samningur sá er
þeir undirrituðu fyrr þennan sama
dag, um eyðingu meðaldrægra kjam-
orkuvopna í Evrópu, markar
tímamót í samskiptum stórveldanna
tveggja.
Símamynd Reuter