Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987. Erlend myndsjá DV Afanganum fagnað Undimtun Svo er að skiptast á eintökum af skjalinu sem er afskaplega viðamikið enda mörg ákvæði, undirákvæði, aukaákvæði, aðalákvæði og undir- aukaákvæði að finna í því. Símamynd Reuter Alls staðar þessi mótmæli Hvar sem Sovétleiðtogar koma á Vesturlöndum mæta þeim yfirleitt mótmæli af einhverju tagi. Svo er einnig í þessarri ferð Mikhail Gor- batsjov því margir telja sig þurfa að koma umkvörtunarefnum á framfæri við hann. Mótlætið byrjaði strax í Bretlandi þar sem Gorbatsjov Stoppaði til að funda með Thatcher og hafa verið næsta óslitin í Washington. Þar reyndi meira að segja einn að kasta fótbolta í aðalritarann, þótt ekki sé ljóst hver tilgangur þess tiltækis átti að vera. Á myndinni að ofan eru mótmælendur í Bretlandi en á litlu myndinni sést fótboltamaðurinn leidd- ur á brott í Washington. Allur er varinn góður Sovétmenn eru varkárir og aldrei eins og þegar um líf og Umi leiðtoga þeirra er að tefla. Það þarf því ekki að koma neinum á óvart þótt þeir treysti öryggisgæslu í Washingtonborg illa og telji varlegra að bregða einum reið- hjólalás eða svo á hhð sendiráðs síns þai- meðan Gorbatsjov er innan dyra (sjá mynd til hægri). Á myndinni að neðan sjást svo þeir sem reiðhjólalásinn á að vernda, það er sendinefnd Sovétríkjanna á leiðtogafundinum. Gor- batsjov má þekkja af höfuðfatinu en hann er þessi með hattinn. Ef tU viU fór svo mikið í pels frúarinnar (vinstra megin á mynd) aö hann átti ekki fyrir loðhúfu eins og hinir. Er svo ekki rétt að takast í hendur af þessu tilefni? Innsigla samninginn og þakka fyrir vel unnin störf. Þaö tilheyrir víst svona athöfnum. Símamynd Reuter Þá er þessu aflokið og við getum snúið okkur að öðrum verkefnum þegar við höfum brosað hvor framan í annan hæfilega lengi fyrir myndavélam- ar. Margra mánaða samningaþrefi lýkur með fáeinum pennastrikum þegar leiðtogar stórveldanna undirrita samninginn. Símamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov er greinilega skemmt þegar hann hlýðir á skálar- ræðu Ronalds Reagan Bandaríkja- forseta í veislunni í Hvíta húsinu á þriðjudagskvöld. Ef til vill var Reag- an þarna að hafa yfir einn af Rússa- bröndurunum sem Bandaríkjamenn óttuðust að hann kynni að móðga kollega sinn með. Leiðtogamir höfðu þó æma ástæðu til að vera hýrir þetta kvöld því þeir fognuðu þá merkum áfanga í af- vopnunarmálum. Samningur sá er þeir undirrituðu fyrr þennan sama dag, um eyðingu meðaldrægra kjam- orkuvopna í Evrópu, markar tímamót í samskiptum stórveldanna tveggja. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.