Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Qupperneq 4
4
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
Fréttir
Friðrik Ólafsson:
„Einvígið er báðum til sóma
u
„Þetta var ansi hressileg keppni
og ég held að þetta einvígi hafi sýnt
að þeir kappar eru mjög jafnir,“
sagði Friðrik Ólafsson, stórmeist-
ari og skrifstofustjóri Alþingis.
Hann sagðist vera ánægður með
einvígið í heild sinni þó hann hefði
ekki tekið afstöðu með eða móti
öðrum hvorum keppandanum.
Einvígið hefði verið þeim báðum
til sóma,
„Síðasta skákin var mjög lipur-
lega og skemmtilega tefld hjá
Kasparov sem er greinilega góður
á taugum. Karpov tefldi hins vegar
fullþunglamalega og hægt en lík-
lega var það þó tímahrakið sem fór
með hann.“ -SMJ
Johann Hjartarson:
Kasparov litríkur heimsmeistari
„Það má segja að það sé kannski
betra fyrir skáklistina að Kasparov
heldur heimsmeistaratitlinum.
Hann er litríkari persónuleiki en
Karpov og auglýsir skákina betur
þó framkoma hans sé ekki alltaf
heimsmeistara sæmandi," sagði
Jóhann Hjartarson stórmeistari
um úrslit einvígisins í Sevilla.
„Annars er það ósköp fátt sem
kemur nú orðið á óvart þegar þeir
tefla saman þessir tveir.“ Hann
bætti því við að framan af hefði
slök frammistaða Kasparovs kom-
ið á óvart en honum hefði þó tekist
aö bjarga andlitinu á síðustu
stundu.
-SMJ
rU
Margeir Pétursson:
„Ósanngjamt ef Kasparov hefði tapað‘
andi eftir 11. skákina en með sigri
í lokin sýndi Kasparov að hann
stendur undir nafni. Þetta einvígi
„Mér iíst ágætlega á þessi úrslit.
Karpov var heimsmeistari í 10 ár
og nú er ljóst að Kasparov verður
heimsmeistari í allavega 5 ár,“
sagði Margeir Pétursson stórmeist-
ari um úrslitin í Sevilla en hann
hafði spáð Karpov sigri í einvíginu.
„Þaö hefði í sjálfu sér verið ákaf-
lega ósangjamt að Kasparov hefði
tapað titlinum því hann hefur orðið
að verja hann á árs fresti síðan
1985. Hann tefldi að vísu ósannfær-
bar keim af því að þeir eru búnir
að tefla mikið saman en lokin
sýndu svo sannarlega að skák get-
ur verið spennandi og skemmti-
leg.“ Margeir taldi vel líklegt að
þessi úrsht myndu styrkja stöðu
Kasparovs og stórmeistarasam-
bandsins gagnvart FIDE.
-SMJ
Þeir brosa breitt Garry Kasparov og Florencio Campomanes þegar forseti FIDE afhendir heimsmeistaranum
sigurkransinn við verðlaunaafhendinguna í Sevilla á laugardaginn. Símamynd Reuter
Kapella vígð í Kiýsuvík
Kapella vígð í Krýsuvík. Séra Sigurður Guðmundsson, settur biskup, vígði
kapelluna. DV-mynd Brynjar Gauti
Séra Sigurður Guömundsson, sett-
ur biskup, vígði á laugardag kapellu
í Krýsuvíkurskóla. Þaö em Krýsu-
vikursamtökin sem eiga kapelluna
og er hún hluti af meöferðar- og
fræðslustofnun sem samtökin hyggj-
ast opna í Krýsuvík næsta haust.
Kapellan er fyrsti hluti hússins
sem tilbúinn er til notkunar. Tuttugu
og fimm gestir rúmast í kapellunni.
Séra Örn Bárður Jónsson, sóknar-
prestur í Grindavík, er sóknarprest-
ur í Krýsuvík og þjónaði hann fyrir
altari við vígsluna. Tveir prestar,
sem jafnframt eru stjórnarmenn í
Krýsuvíkursamtökunum, aðstoðuðu
við vígsluna en þaö eru þeir séra
Birgir Ásgeirsson á Mosfelli og séra
Guðmundur Örn Ragnarsson far-
prestur. Ragnar Ingi Aðalsteinsson
lék á orgelið en hann er í stjórn sam-
takanna. Meðhjálpari var Snorri
Welding, framkvæmdastjóri Krýsu-
víkursamtakanna.
Eigendur Tommahamborgara af-
hentu samtökunum gjafabréf upp á
86.100 krónur. Er það áheit til sam-
takanna. Upphæðin nemur 700
krónum á hvern starfsmann sem er
á launaskrá hjá fyrirtækinu.
Milli jóla og nýárs verður öllum
konum á aldrinum 18 til 70 ára send-
ur gíróseðill vegna áheitasöfnunar
sem samtökin eru að fara af stað
með. Er það von Krýsuvíkursamtak-
anna að styrkur fáist til aö nýta húsið
fyrir fyrirhugaða starfsemi.
-sme
Til Reykja-
víkur eftir
bílveltu
Bílvelta varð við Eyvindarárdal
skammt frá Egilsstöðum aðfara-
nótt laugardagsins. Ökumaður-
inn var einn í bílnum og slasaðist
hann töluvert.
Skarst hann meðal annars á
höfði auk annarra meiðsla. Var
maöurinn fluttur með flugvél til
Reykjavíkur.
Bíllinn er ónýtur. Ekki er vitað
með hvaða hætti slys þetta varð.
Hálka var lítil og færö mjög
þokkaleg.
-sme
í dag mælir Dagfari
Upphefðin kemur að utan
Fyrir tæpum fjörutíu árum var
maður að nafni Stefán Jóhann Stef-
ánsson forsætisráðherra á íslandi.
Stefán Jóhann var á sama tíma
formaður Alþýðuflokksins en stóð
stutt við í báðum þessum embætt-
um. Þetta voru umbrotatímar í
pólitík og andstæðingar hans,
hvort heldur í Alþýðuflokknum
eða öðrum flokkum, gátu ekki unnt
Stefáni Jóhanni þess að sitja á frið-
arstóli. Einkum vegna þess að í
stjórnartíð Stefáns var aðild ís-
lands að Atlantshafsbandalaginu
samþykkt og Stefán var mikill
hvatamaður þess og um hann og
stjórn hans stóð mikill styrr þegar
þeir atburðir gerðust. Almennt er
þó talið að sagan hafi geflð Stefáni
góðan dóm og hann hafi reynst
hinn farsælasti stjórnmálamaður.
Stefán Jóhann er látinn fyrir all-
mörgum árum og eins og títt er um
látna menn var ekki viö öðru að
búast en Stefán fengi aö hvíla í friði
og njóta sannmælis.
En annað hefur komiö í Ijós. Ein-
hver norskur besefl, sem kallar sig
sagnfræðing, hefur grafið upp göm-
ul bandarísk leynisköl, eða segist
að minnsta kosti hafa gert það. í
skjölunum kemur fyrir nafn Stef-
áns Jóhanns með þeim hætti að
bandarískir sendiráðsstarfsmenn
hafi hitt íslenska forsætisráðher-
rann að máli og skráð niður hvað
hann sagði við þá í einhverjum
prívatsamtölum. Þessu er síðan
lekið í trúgjarna útvarpsfréttarit-
ara í Noregi, sem uppplýsa með
stríðsletri og upphrópunum að
Stefán Jóhann hafi verið sérlegur
útsendari og samstarfsmaður
bandarísku leyniþjónustunnar.
Við frekari rannsókn kemur hins-
vegar í ljós, að ekki er flugufótur
fyrir þessum fréttaflutningi og
bæði fréttaritarinn, fréttastofan og
útvarpsráð eins og það leggur sig
hafa þurft að biöjast afsökunar fyr-
ir að hafa haft Stefán fyrir rangri
sök.
En eins og venjulega á íslandi eru
afsakanir ekki teknar gildar og
lygin er orðin að sannleika ef hún
er endurtekin nógu oft. Nú hafa
aðrir Qölmiðlar tekið við, fyrir til-'
stilli Islendinga sem ekki voru
fæddir þegar Stefán var forsætis-
ráöherra. Nú eru þeir búnir að
upplýsa aö stórnjósnarinn og út-
sendari CIA, Stefán Jóhann Stef-
ánsson, hafl rekið veðurfræðinginn
Theresíu samkvæmt fyrirmælum
að vestan!
Þessir englabossar hafa þá lífs-
skoðun að allt sem kemur að vestan
frá Bandaríkjunum sé af hinu
vonda og til að sanna þá kenningu
sína, þurfa þeir að draga nafn-
kunna og látna íslendinga niður í
svaðiö í leiðinni. Stefán Jóhann
liggur vel við höggi vegna þess að
hann er fyrir löngu farinn 111 feðra
sinna og getur ekki borið hönd fyr-
ir höfuð sér. Það skulu sönnuö upp
á hann landráðin með góðu eða illu.
Nú má vel vera að einhverjir fár-
áðlingar í bandarísku utanríkis-
þjónustunni hafl taliö sig geta
öðlast frama með því að ljúga ein-
hveiju upp á Stefán Jóhann. Eða
séð ástæðu til að skjalfesta eitthvað
sem Stefán sagði við þá í einkasam-
tölum um veðurfræðinga. Ekki
vissi maður þó aö veðriö væri við-
fangsefni bandarísku leyniþjón-
ustunnar. Allt er hey í harðindum.
En heldur eru það undarleg utan-
ríkissamskipti ef ekki má segja
neitt viö erlenda diplómata öðru-
vísi en að það flokkist undir pjósnir
og leyniþjónustu. Það er hugguleg
framtíð sem þeir eiga fyrir sér, ut-
anríkisráðherrar íslendinga síðast-
liðna áratugi, ef þeir geta búist við
því löngu eftir andlát sitt að þeim
verði velt upp úr spjalli sínu við
útlendinga um veðurfarið, vegna
þeirrar skyldurækni bandarískra
sendiráðstarfsmanna að senda það
sem leyniskýrslur vestur um haíl
Sérstaklega þegar slíkar leyni-
skýrslur eru ekki meiri leyni-
skýrslur en það að sagnfræðingar
út um allar koppagrundir íletti síð-
an upp í þeim til aö sanna upp á
menn lygina.
Það má með sanni segja að upp-
hefö Stefáns Jóhanns komi að utan.
Ekki bað hann um þá upphefð
umfram það sem hann hafði sjálfur
unnið til. Hann hefði áreiðanlega
sleppt því að tala um veöráttuna á
íslandi við bandaríska sendiráðs-
starfsmenn ef hann hefði vitað að
það flokkaðist undir njósnir og
gagnnjósnir að hafa skoðun á því
hvort tiltekinn veöurfræðingur
spáði rétt í veörið fyrir fjörtíu árum
síðan.
Dagfari