Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. 15 Var þýski nasisminn áframhald kaprtalismans? Fyrir nokkrum vikum reit ég grein hér í blaðið, þar sem ég benti á sögufolsun eina (af mörgum) í bók Lofts Guttormssonar og tveggja félaga hans, Mannkyns- sögu 1914-1956. Þeir höfðu haldið því fram, að þýskir stórkapítalistar hefðu komið Hitler til valda. En rannsóknir sagnfræðinga hafa leitt það hvort tveggja í ljós, að stórkap- ítahstar veittu Hitler og félögum hans sáralítið fé í samanburði við það, sem þeir lögðu til annarra, og að nasistar voru alls ekki háðir þessu fé. Nú hefur ungur þýskunemi í Freiburg, Einar Heimisson, birti grein hér í blaðinu (15. desember), þar sem hann tekur undir þetta og nefnir því til frekari stuðnings nokkur verk, sem mér var ekki kunnugt um, og þakka ég honum hjálpina. En Einar bætir við, að ég hafi aðeins sagt hálfa sögima, þar sem ég hafi ekki getið þess, hversu dyggilega stórkapítahstar hafi stutt Hitler, eftir að hann komst til valda. Nú er því til að svara, að varla er sanngjarnt að deila á mig fyrir að fara ekki til Akureyrar, þegar ætlunin var að fara th Ákraness. Ég hlýt að minna Einar á, að grein mín bar nafnið: „Komu þýskir stór- kapítalistar Hitler til valda?“ Mér dettur ekki í hug að neita því, að þýskir stórkapítalistar hafi unniö með Hifler eftir valdatöku hans. En grein mín var um það, sem gerð- ist fyrir 1933. Það liggur í eðli kapítahsta, eins og ég tók skýrt fram í grein minni, að keppa að hagnaði, en vinna ekki að hugsjónum. En skrif Einars er^ mér kærkomið tilefni til að ræða í* örstuttu máh um þá söguskoðun Eymd félagshyggjunnar Kjallarinn Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðingur margra vinstrisinnaðra sagnfræð- inga, að nasisminn hafi verið áframhald eöa lokastig kapítahsm- ans, en Brynjólfur Bjamsort kom skýrustum orðum að henni í tíma- ritinu Rétti árið 1933: „Fasisminn lætur alla spádóma gamla Marx rætast um vilhmennsku þá, sem borgarastéttin hlyti að sökkva nið- ur í á dauðstundum hennar." Ættarmótið leynir sér ekki Þessi söguskoðun er furðuleg, þar eð nasistar drógu aldrei dul á, að þeir væru félagshyggjumenn eða sósíalistar. Þeir nefndu flokk sinn Hinn þjóðernis-sósíahska verkamannaflokk Þýskalands, hömuðust í ræðu og riti gegn „gróðaöflum" og „vaxtaokri" og kröfðust skipulagningar atvinnu- lífsins. Og þeir tóku skipulag flokks síns og alla starfshætti eftir hinum hefðbundnu sósíahstaflokkum, eins og Friedrich A. Hayek benchr á í Leiðinni til ánauðar. Það voru ekki nasistar, heldur sósíalistar, sem smöluðu fyrstir óhörðnuðum unglingum inn í flokksfélög sín. Það voru ekki nasistar, heldur sós- íahstar, sem stofnuðu fyrstir sér- stök bókmenntafélög og íþróttafé- lög fyrir flokksmenn til þess að tryggja, að þeir yrðu ekki fyrir neinum óæskilegum áhrifum. Það voru ekki nasistar, heldur sósíal- istar, sem tóku upp á því að heilsa aö flokkssið og ganga í sérstökum einkennisbúningum. Hvaða mun- ur var annar á rauðhðunum og svartstökkunum, sem skálmuðu bísperrtir um götur Berlínarborgar í lok þriðja áratugarins, en liturinn á einkennisbúningunum? Það var tæplega nein tilviljun heldur, að margir kunnustu fasist- ar í Norðurálfunni komu úr röðum sósíalista. Benító Mússóhni hafði til dæmis verið ritstjóri flokksblaðs sósíahsta á ítalíu, Vidkun Quishng fylgt norska Verkamannaflokkn- ■ um að málum og Oswald Mosley hinum breska bróðurflokki hans og Jacques Doriot verið frammá- maður í Alþjóðasambandi komm- únista. Laval hinn franski var hka gamall sósíahsti. Ýmsir mennta- menn komu úr sömu átt, svo sem Henrik de Man og Werner Somb- art. Þessir menn sameinuðust alhr í hatri á vestrænni fijálshyggju. Þeir skildu ekki þá sjálflcrafa sam- stillingu í atvinnulífmu, sem Adam Smith hafði lýst í Auðlegð þjóðanna árið 1776, og viðurkenndu ekki, að einstakhngarnir ættu sjálfa sig, eins og John Locke hafði leitt rök að í Ritgerð um ríkisvald árið 1689. Hvort sem þeir voru hefðbundnir sósíalistar, kommúnistar eða nas- istar, trúðu þeir á valdið, en ekki frelsið - á hópinn, en ekki einstakl- ingana. Akurinn plægður Auðvitað var margt ólíkt með hefðbundnum sósíahstum og nas- istum. Sósíahstar voru alþjóða- hyggjumenn og skirskotuðu til einnar stéttar, en nasistar þjóðern- issinnar og vísuðu til einnar þjóðar. Sósíahstar voru að sumu leyti skynsemistrúar, en nasistar hins vegar rökhatarar. Sósíahstar sóttu fylgi sitt einkum til verka- manna í þéttbýli, en nasistar til bænda, eftirlaunamanna og von- svikinna smáborgara. Fyrir sósíal- istum var borgarastéttin aöalóvin- urinn, en gyðingar fyrir nasistum. Nasistar virtu séreignarréttinn, þótt þeir væru á móti frjálsri sam- keppni, en sósíahstar voru andvíg- ir hvoru tveggja. Það fór ekki heldur fram hjá neinum, að þessar „Hvort sem þeir voru hefðbundnir sós- íalistar, kommúnistar eða nasistar, trúðu þeir á valdið, en ekki frelsið - á hópinn, en ekki einstaklingana.“ tvær fylkingar bárust á banaspjót. En við skulum ekki láta vopnaskak viha um fyrir okkur. Aðalatriöið var, að nasistar beittu sömu úrræð- um og aðrir sósíahstar. í staðinn fyrir að takmarka ríkisvald eins og frjálshyggjumenn vildu reyndu þeir að beita því í þágu markmiða sinna. í staðinn fyrir að treysta á sjálfstýringu á markaöi reyndu þeir að reka áætíunarbúskap, þar sem munurinn var, aö Hitler gerði áætlanir til fjögurra ára, en Stalín til fimm ára. Ég held, að valdataka þýskra nas- ista hafi orðið fyrir slysni, röð tilvhjana, en ekki sögulega nauð- syn. En sósíalistar og íhaldsmenn í anda Bismarcks höfðu í samein- ingu plægt þann akur, sem nasistar sáðu síðan í. Þeir höfðu stofnað velferðarríki upp úr 1870 og þannig fjölgað því fólki, sem var háð ríkinu um afkomu sína. Þeir höfðu reist tollmúra í kringum Þýskaland og þannig eflt einokunarfyrirtæki og komið í veg fyrir frjálsa sam- keppni. Verkalýðsfélög höfðu raskað tekjuskiptingunni félögum sínum í vil og þannig valdið óánægju þeirra hópa, sem voru óskipulagðir og urðu því útundan. Þeir höfðu svipt sparifjáreigendur innistæöum sínum í óðaverðbólgu eftirstríðsáranna. Smám saman hvarf það viðnám við valdinu, sem fólgið er í sjálfstæðum einstakling- um með heilbrigða siðferðisvitund. Nasisminn var því áframhald sós- íalismans - að vísu ekki óumflýjan- legt áframhald hans, en þó mögulegt. Og skiptir það öllu máh, hvort útrýmingarbúðirnar heita Dachau eða Kolyma? Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson Heiðarleg ríkisstjórn Þjóðartekjur okkar stefna nú í það að verða 220 milljarðar króna á árinu. Þetta eru um 22.000 doharar á mann eða eitt það alhæsta sem þekkist í veröldinni. Fimm manna fjölskylda ætti þá að hafa um hundrað og tíu þúsund dollara eða um fjórar milljónir króna. Reikni svo hver sem betur má hvort hann er meðaljón eða ekki. Að vísu sér ríkisvaldið um 40% af eyðslu okkar og eitthvað þarf í fjárfestingu til að halda öhum þess- um tekjum við og svo borgum við auðvitað útlendingum vexti. Ráð- stöfunartekjur meðalheimihshalds á íslandi ættu þó að vera um tvær mihjónir. Vandasöm meðaltöl Oft hefur verið bent á hversu meðaltöl og óvönduð tölfræði séu hættuleg í ahri þjóðfélagslegri um- ræðu. Sagt er í gríni að tölfræðin sé sú fræðigrein sem haldi því fram að standi maður með annan fótinn á logandi eldi, en með hinn ofan í frystikistu, þá hafi hann það að meðaltali mjög gott. Þannig geta heilu þjóðfélagshóparnir haft það mjög slæmt tekjulega séö þótt með- altahð sé mjög hátt. Hitt er svo augljóst að miklar meðaltekjur þjóðar gefa til kynna miklar almennar tekjur, þannig að margir hafi það í rauninni mjög gott efnahagslega. Séu meðaltekjur lágar er einnig hætta á að margt ' sé um fátækhnga meðal þjóðarinn- ar. Rýmri búskapur Þessar miklu tekjur gera ýmis- legt í efnahagsmálum þjóðarinnar léttbærara en ella. Þannig lækka erlendar skuldir þjóðarinnar hlut- fallsíega af þjóðartekjum og hinar gífurlegu vaxtagreiðslur verða auðveldari. Skuldhindingar ríkis- valdsins verða einnig auðveldari viðfangs þar sem meira er til skipt- KjaHarinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur ráðast á mannfólkið. Þá þurfa öldr- unarmáhn meira fé, slysavamir og ýmsar verklegar framkvæmdir . sem tengjast öryggi þegnanna með opinberu þjónustunni. T.d. vega- gerð, bygging flugvalla, hafnarbæt- ur ásamt húsnæðismálunum. Þá hefur þjóðin sett metnað sinn í að viðhalda hinni miklu og almennu menntun landsmanna og má hik- laust telja það hestu fjárfestingu sem sérhvert þjóðfélag á völ á. íslensk velferðarhugsjón Það er því í mörg horn að líta en gleði vekur að hinar gífurlega háu þjóðartekjur þetta árið ættu að gera ýmislegt kleift án þess að koma illilega við pyngjuna. ís- lenska velferðarhugsjónin setur metnað sinn í það að sérhver lifi hamingjusömu lífi hér á landi, án tillits til efnahags, fjölskyldu „Þannig lækka erlendar skuldir þjóö- arinnar hlutfallslega af þjóðartekjum og hinar gífurlegu vaxtagreiöslur verða auðveldari.“ anna og auðveldara að ná fénu. Undanfarin ár era t.d. fallnar 8,4 milljarða skuldbindingar á ríkið úr orkugeiranum einum saman og sér hver og einn í hendi sér hvort slík arðlaus skuld sé til þess fallin að auðvelda ríkisbúskapinn. í mörg horn að líta Ríkisvaldið stendur einnig núna frammi fyrir tiltölulega lágum launum ríkisstarfsmanna og ættu þeir að fá leiðréttingu launa sinna. Átakanlegast er að ekki skuh hægt að manna sjúkrahús landsins, t.d. yfir sumarfrístímann, enda spyrja sjúkdómar ekki að því hvort það sé sumarfrí eða ekki þegar þeir tengsla eða þjóðfélagsstöðu yfir- leitt. Verðbólgan, sem nú er áætíuð stefna á um 30%, vekur áhyggjur. Það er því.ánægjulegt hvernig rík- isstjórnin berst um á hæl og hnakka að stuðla ekki að verö- bólgunni sjálf. Takist ríkisstjórn- inni að ná hallalausum fiárlögum, eða því sem næst, í gegnum þingið, þá hefur hún svo sannarlega lyft grettistaki til þess að hafa verð- bólgudrauginn undir. Heiðarleiki og vitsmunalegt hugrekki Slík tök á ríkisfiármálunum krefiast mikhs heiðarleika af stjórnarforustunni. Ekki er komið á bakið á þjóðinni með verðbólguna sem afleiðingu af vönkuðum hugs- unarhætti i stjórn peningamála og ríkisfiármálanna. Lofað upp í erm- ina á sér án þess að vera menn tíl að segja þjóöinni hvað það kostar í raun og veru. Stjórnarherrar sem segja sannleikann eru menn að meiri þótt það kosti átök og vits- munalegt hugrekki meðan á því stendur. Þótt æpt sé að þeim í orra- hríðinni mun sagan minnast þeirra sem mikhmenna sem ekki voru th- búnir að aka sér í hægindum hugsunar og grautarlegrar eftir- gjafar á kostnað aga og framtíðar- hagsmuna þjóðarinnar. „Það er hart að heita Briem og hafa ekki th þess unnið,“ stendur einhvers staðar. Það getur enginn búist við því að koma þjóð sinni th manns án þess að það næði um tindinn. Sérstaklega þegar ljós rennur upp fyrir ýmsum grautar- hausum hvernig þeir voru búnir að klúðra þjóðarhag en reyna að klóra í bakkann og kalla úlfur, úfl- ur, th þess aö beina athygli þjóðar- innar frá heimsku eigin ákvarðana. Áhugi á skattinum Staðgreiðsluseðlamir streyma nú heim til fólks og nú eru allir íslendingar orðnir skattmeistarar. Reikna og reikna og fléstir virðast komast að því að skattkerfiö er orðið miklu einfaldara og tekju- skattsbyrðin lækkar. Söluskatturinn er einnig til um- ræðu, einfoldun hans og fækkun undanþága. Rikisvaldið haíði val að lækka söluskattsprósentuna og minnka niðurgreiðslur á innlend- um matvælum, en valdi þá leið að auka niðurgreiðslur og halda sölu- skattsstiginu óbreyttu. Þetta var hárrétt ákvöröun því nógar eru raunir íslensks landbúnaðar þótt ekki hækki afurðimar enn meir. Niðurgreiðslur efnahags- stórveldanna Sannleikurinn er auðvitað sá að niðurgreiðslupóhtík Efnahags- bandalagsríkjanna og Bandaríkj- anna á eigin landbúnaðarvörum er orðiö hreint thræði við sjálfstæðan landbúnað þjóðríkja um víða ver- öld. Tveir þriðju hlutar tekna Efnahagsbandalagsins fara í þaö að greiða niður matvæli í ríkjun- um. Styrkur á hvern bónda þar er um hálf milljón króna og ekki er þetta minna í Bandaríkjunum þótt allt þetta sé víst hátíð hjá því sem það er í Japan þar sem innflutning- ur matvæla er með öllu bannaður. Samanburður á verðlagi á heims- markaði á matvælum er því algjör- lega út í hött, þar sem umfram- framleiöslu niðurgreiddra matvæla ríkustu þjóða heims er „dúmpaö“ á heimsmarkaðinn. Af- leiðingin er sú að mhljónir smábænda um víða veröld flosna upp og þiggja ódýra matinn á möl- inni sem upphaflega hafði eyðilagt þeirra eigin afkomu. Takk fyrir matinn Fyrir okkur hér á Fróni kann þetta einfaldlega að vera spurning um það hvort við viljum spyija hvítflibbana í Brússel og Washing- ton að því hvort við fáum að éta eða ekki. Þótt þetta sé kannski nokkuð ýkt mynd, þá er svo sann- arlega hægt hér í skammdeginu á norðurslóð að þakka ríkisstjóm- inni fyrir það að eyðileggja ekki landbúnaðarframleiðsluna í landinu. Meðan við afkomendur Einars Þveræings höfum eitthvaö að éta þá verðum við ekki svo glatt hraktir frá sjálfstæði lýðveldisins okkar. Þótt það kosti undanþágu- lausan söluskatt einhvern tíma hjá einni teKjuhæstu þjóð veraldar. Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.